Munu breytingar á húsnæðismarkaði vera neytendum í hag?

Þrátt fyrir að íbúða­verð kunni að lækka á næstu mán­uðum gæti verið að verri lána­kjör og óstöð­ug­leiki á fast­eigna­mark­aði fylgi með.

Blikur eru á lofti um ákveðin vatna­skil á fast­eigna­mark­aðnum þessa dag­ana. Stöðnun og jafn­vel verð­lækkun á íbúðum er í kort­unum sam­hliða mik­illi fram­boðs­aukn­ingu eftir margra ára skort. Þrátt fyrir að verð­lækkun gæti reynst neyt­endum vel eftir mikla hækkun í hálfan ára­tug er þó mögu­legt að henni fylgi slæmar afleið­ingar á lána­kjör lands­manna og stöð­ug­leika á mark­aðnum.

Verðlækkun í kortunum

Líkt og hag­fræði­deild Lands­bank­ans benti á í síð­asta mán­uði hefur hægt veru­lega á verð­hækk­unum á fast­eigna­mark­aði eftir margra ára þenslu. Leita þarf aftur til árs­ins 2011 til að finna jafn­litla hækkun á fast­eigna­verði á höf­uð­borg­ar­svæð­inu og átti sér stað í fyrra.

Svipaðan tón má finna í skýrslu grein­ing­ar­deildar Arion banka fyrir tveimur vikum síðan, en sam­kvæmt henni er útlit fyrir áfram­hald­andi kólnun á mark­aðnum á næst­unni. Reyndar telur grein­inga­deildin ekki ein­ungis að dregið verði úr verð­hækk­unum, heldur spáir hún einnig að raun­verð íbúða muni lækka á næstu tveimur árum.

Meira framboð

Ástæða verð­lækk­un­ar­innar er aukin nýbygg­ing íbúða sem búist er við að muni stór­auka fram­boð og svala upp­safn­aðri íbúða­þörf hér á landi á næstu tveimur árum. Grein­ing­ar­deild Arion banka sýndi fram á aukna sem­ent­sölu, fjölda bygg­ing­ar­krana og virkni í bygg­ing­ar­starf­semi sem vís­bend­ingu um aukið fram­boð í náinni fram­tíð.

Einnig er búist við áfram­hald­andi upp­bygg­ingu á næst­unni, en Kjarninn greindi í síð­ustu viku frá til­lögu Reykja­vík­ur­borgar um að heim­ila 2000 nýjar íbúðir í Ártúni, Selás og Árbæ í nýju hverf­is­skipu­lagi. Sig­ur­borg Ósk Har­alds­dóttir, for­maður skipu­lags-og sam­göngu­ráðs Reykja­víkur, sagði einnig að svip­aðar breyt­ingar verði kynntar í níu öðrum borg­ar­hlutum.

[links]Til við­bótar við aukna bygg­ing­ar­heim­ild frá Reykja­vík­ur­borg er mögu­legt að rík­is­stjórnin liðki enn frekar til fyrir nýbygg­ingu ef nýjar til­lögur átaks­hóps um bætta stöðu á hús­næð­is­mark­aði ná fram að ganga. Kjarninn fjall­aði ítar­lega um til­lög­urnar, en þær fólu meðal ann­ars í sér nýt­ingu rík­is­lóða fyrir íbúð­ar­byggð og stuðn­ing við upp­bygg­ingu félags­legra íbúða.

Hættan við þenslu

Fái til­lögur átaks­hóps­ins hljóm­grunn hjá rík­is­stjórn­inni mætti vænta þess að útgjöld hins opin­bera auk­ist á næst­unni. Reyndar kemur þrýst­ingur á þenslu í rík­is­út­gjöldum úr mörgum áttum, til dæmis frá Samtökum Atvinnu­lífs­ins vegna auk­innar inn­viða­upp­bygg­ingar, eða frá verka­lýðs­fé­lög­unum um skatta­lækk­anir til lág-og milli­tekju­hópa.

Meiri rík­is­út­gjöld gætu leitt til vaxta­hækk­ana hjá Seðla­bank­anum, en pen­inga­stefnu­nefnd bank­ans hefur varað við aukna verð­bólgu

https://www.sedlabanki.is/library/Skraarsafn/Peningamal/2019/Februar-2019/PM_2019_1.pdf

á kom­andi mán­uðum og sagst munu hækka vexti ef ákvarð­anir á vinnu­mark­aði og í rík­is­fjár­málum skapa of mikla þenslu.

Hærri vextir koma niður á neyt­endum og auka greiðslu­byrði þeirra sem tekið hafa hús­næð­is­lán. Þannig gæti verið erf­ið­ara að fjár­magna fast­eigna­kaup, þrátt fyrir aukið fram­boð á hús­næði á næstu tveimur árum.

Hættan við samdrátt

Samhliða hærri verð­bólgu spáir Seðla­bank­inn einnig umtals­verðri kólnun í hag­kerf­inu í ár, en gert er ráð fyrir að hag­vöxtur í ár verði sá minnsti frá árinu 2012. Grein­ing­ar­deild Arion banka býst við að sam­dráttur leiði til minni útlána­aukn­ingar hjá bönk­unum, sem leiðir til enn verri lána­kjara. Áhrifa þessa sé nú þegar tekið að gæta í lægri hámarks­veð­hlut­föllum íbúða­lána og versn­andi kjörum við­bót­ar­lána. Því gæti greiðslu­byrði neyt­enda auk­ist, þrátt fyrir að raun­verð fast­eigna fari lækk­andi.

Of mikið, of seint

Ásgeir Jónsson, dós­ent í hag­fræði við Háskóla Íslands, gerði fast­eigna­mark­að­inn að umfjöll­un­ar­efni sínu í Facebook-færslu fyrr í vik­unni. Þar sagði hann að of mikil fram­boðs­aukn­ing sé sú hætta sem vofi alltaf yfir bygg­ing­ar­geir­anum eftir langt tíma­bil skorts. Magnús Hall­dórs­son fjall­aði einnig um þessa hættu í leið­ara sínum fyrir tveimur vikum síðan. Samkvæmt Magnúsi getur skyndi­á­tak á hús­næð­is­mark­aði leitt til ójafn­vægis síðar. Lækki hús­næð­is­verð of mikið sé hætta á að fjár­fest­ing í nýjum íbúðum muni aftur sitja á hak­anum í fram­tíð­inni, með til­heyr­andi óstöð­ug­leika á mark­aðnum.

Aukinn sveigjanleiki og betri lánakjör

Þrátt fyrir ótta við verri lána­kjör og óstöð­ug­leika á hús­næð­is­mark­aðnum hafa þó ýmsar til­lögur litið dags­ins ljós sem gæti spornað við þess­ari þróun.

Átaks­hóp­ur­inn um bætta stöðu á hús­næð­is­mark­aði vildi meðal ann­ars heim­ila skamm­tíma­í­búðir á athafna­svæðum og gera sam­vinnu stjórn­valda og sveit­ar­fé­laga í skipu­lags­málum skil­virk­ari. Sömu­leiðis lagði Reykja­vík­ur­borg til að heim­ila hús­eig­endum að hafa leigu­í­búðir innan síns hús­næðis, en með því gæti eig­end­urnir aukið verð­mæti eignar sinnar. Með þessum til­lögum gæti stöð­ug­leik­inn batnað til muna með sveigj­an­legra fram­boði sem komið gæti í veg fyrir upp­safn­aðri hús­næð­is­þörf.

Lánakjör neyt­enda gætu líka batnað með væntri hag­ræð­ingu í fjár­mála­kerf­inu, ef marka má til­lögur úr Hvítbók fjár­mála­ráðu­neyt­is­ins. Kristrún Tinna Gunn­ars­dóttir, sem sat í starfs­hópnum sem skrif­aði Hvít­bók­ina, kynnti nið­ur­stöður Hvít­bók­ar­innar í við­tali á sjón­varps­þætt­inum 21 fyrr í mán­uð­inum. Samkvæmt Kristrúnu eyddi starfs­hóp­ur­inn tölu­verðu púðri og orku í að skoða skil­virkni í íslenska fjár­mála­kerf­inu, en hún sagði mikið svig­rúm fyrir hag­ræð­ingu meðal íslenskra banka sem bæta ættu kjör almenn­ings.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Fasteignamarkaður

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár