6 milljarða samdráttur í rekstri fasteignafélaganna

Fast­eigna­fé­lögin Reitir, Reginn og Eik högn­uð­ust öll á rekstri sínum í fyrra. Þó var hagn­að­ur­inn tölu­vert minni en á síð­asta ári, en sam­kvæmt félög­unum leiddi heims­far­ald­ur­inn til mik­ils sam­dráttar í tekjum.

Fasteignafélagið Eik tapaði mikið á rekstri hótels 1919, sem er í eigu þess
Fast­eigna­fé­lagið Eik tap­aði mikið á rekstri hót­els 1919, sem er í eigu þess Mynd: Birgir Þór Harðarson

Sam­an­lagður rekstr­ar­hagn­aður Reita, Regins og Eikar nam 22 millj­örðum króna í fyrra, sem er 6 millj­örðum krónum minni en á árinu 2019. Félögin segja að far­ald­ur­inn hafi leitt til 4,3 millj­arða króna sam­dráttar í fyrra og búast við að veiran muni einnig draga úr tekjum í ár. Þetta kemur fram í nýbirtum árs­reikn­ingum fast­eigna­fé­lag­anna sem birtst hafa á vef Kaup­hall­ar­innar á síð­ustu vikum.

400 milljarða eignasafn

Félögin þrjú eru einu fast­eigna­fé­lögin í Kaup­höll­inni, en þau sér­hæfa sig í fjár­fest­ingum, þróun og útleigu á hús­næði. Sam­an­lagt eigna­safn þeirra nemur 400 millj­örðum króna, en meiri­hluti þess er bund­inn í hús­næði sem félögin leigja út. Þessi upp­hæð jafn­gildir 14 pró­sentum af lands­fram­leiðslu Íslands í fyrra.

Minni tekjur og lægra virði eigna

Ein helsta tekju­lind félag­anna eru leigu­tekjur frá fyr­ir­tækjum, en sam­kvæmt árs­reikn­ing­unum leiddi far­ald­ur­inn til töl­verðs sam­dráttar í þeim. Í árs­reikn­ingi Regins kemur fram að 360 millj­ónir króna af leigu­tekjum félags­ins frá við­skipta­vinum sínum hafi verið felldar niður. Reitir áætla svo að leigu­tekjur félags­ins hafi dreg­ist saman um 935 millj­ónir króna vegna efna­hags­legra áhrifa COVID-19. Hins vegar var áætl­aður sam­dráttur leigu­tekna hjá Eik vegna veirunnar mun minni, eða um 50 millj­ónir króna.

Til við­bótar við sam­drátt í leigu­tekjum telja félögin að heims­far­ald­ur­inn hafi haft nei­kvæð áhrif á aðra rekstr­ar­þætti mats­breyt­ingu fjár­fest­ing­ar­eigna, við­skipta­kröfur og afskriftir þeirra.

Áætlaður heild­ar­sam­dráttur vegna veirunnar virð­ist vera mestur hjá Regin, en þar býst félagið við að hafa tapað 2,5 millj­örðum vegna virð­is­rýrn­unar eigna félags­ins og minni leigu­tekna. Reginn telur aftur á móti að far­ald­ur­inn hafi leitt til 1,1 millj­arða króna sam­dráttar hjá félag­inu.

Eik telur far­ald­ur­inn hafa minnkað tekjur félags­ins um rúm­lega 655 millj­ónir króna, en ólíkt hinum tveimur félög­unum vegur virð­is­rýrnun við­skiptakrafna þess þyngst í stað minnkun leigu­tekna. Einnig bætir félagið við að rekstur Hótels 1919, sem er í eigu félags­ins, hafi verið 230 millj­ónum lak­ari en fyrri áætl­anir gerðu ráð fyrir.

Sam­an­lagt telja því félögin að veiran hafi leitt til sam­dráttar að and­virði 4,3 millj­arða króna

Hagnaður og arðgreiðslur hjá Reitum og Eik

Þrátt fyrir þetta mikla tekju­tap skil­uðu félögin öll hagn­aði af rekstri sínum. Rekstr­ar­hagn­aður Eikar nam 5,5 millj­örðum króna, en hann náði 8 millj­örðum hjá Regin og 9 millj­örðum hjá Reitum. Sam­an­lagt eru þetta um 22 millj­arðar króna, sem er fimmt­ungi minna en rekstr­ar­hagn­aður félag­anna árið 2019.

Stjórnir Reita og Eikar hafa báðar sam­þykkt arð­greiðslur vegna rekstr­ar­nið­ur­stöðu síð­asta árs. Hjá Reitum stendur til að greiða 778 millj­ónir króna í arð, en væntar arð­greiðslur Reita nema 650 millj­ónum króna. Stjórn Regins ákvað hins vegar að sleppa því að greiða arð í ár, í ljósi óviss­unar í þróun efna­hags­mála í land­inu vegna COVID-19.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Fasteignamarkaður

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár