Hið opinbera verður að nýta svigrúmið

Samtök iðn­að­ar­ins segja að nú sé tím­inn til að fara í umfangs­mikla inn­viða­upp­bygg­ingu.

Samtök iðn­að­ar­ins segja að nú séu kjörað­stæður að skap­ast í hag­kerf­inu fyrir hið opin­bera til að fara í frek­ari inn­viða­upp­bygg­ingu.

Þetta kemur fram í umfjöllun á vef SI en þar er ný þjóð­hags­spá Seðla­banka Íslands gerð að umtals­efni. Samkvæmt henni er gert ráð fyrir að það hægi veru­lega á gangi mála í efna­hags­málum þjóð­ar­innar á þessu ári, og að hag­vöxtur verið 1,8 pró­sent sem 0,9 pró­sentu­stigum lægra en fyrri spá gerði ráð fyrir.

Í umfjöllun SI segir að upp­söfnuð þörf á fjár­fest­ingu í vega­kerf­inu sé á bil­inu 350 til 400 millj­arðar króna. Vitnað er til umfjöll­unar meiri­hluta í sam­göngu- og umhverf­is­nefnd Alþingis, þar sem segir að upp­safn­aður vandi sé mik­ill.

„Rétti­lega er bent á í álit­inu að upp­safn­aður vandi er mik­ill og brýnt að fram­kvæmda­hraði yrði meiri en áætlað er í sam­göngu­á­ætlun. Bent hefur verið á að Ísland er strjál­býlt og vega­kerfið umfangs­mikið miðað við fólks­fjölda, og upp­bygg­ing þess hefur alla tíð verið á eftir nágranna­lönd­unum. Fjár­fest­ing­ar­þörfin í heild er á milli 350–400 millj­arðar kr.,“ segir í umfjöllun SI.

Sigurður Hann­es­son, fram­kvæmda­stjóri Samtaka iðn­að­ar­ins, benti á fyrir skömmu að hið opin­bera verði að nýta það svig­rúm sem skap­ist „þegar fjár­fest­ing atvinnu­veg­anna drag­ist saman og hægist á gangi hag­kerf­is­ins og hafa beri í huga að mikil upp­söfnuð þörf sé fyrir fjár­fest­ingu í innviðum eftir fjársvelti síð­ustu tíu ár.“

Hann segir að spáin sé heldur var­færin og ætla megi að fjár­fest­ingin á árunum 2020-2022 verði jafn­vel umfram þá áætlun sem kom fram á þing­inu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár