Búist við erfiðri stjórnarmyndun í Noregi

Jonas Gahr Støre, for­maður norska verka­manna­flokks­ins, gæti fengið stjórn­ar­mynd­un­ar­um­boð í kjöl­far þing­kosn­inga þar í landi í næstu viku. Hins vegar er útlit fyrir að stjórn­ar­mynd­unin sjálf muni reyn­ast honum erfið.

Jonas Gahr Støre og Erna Solberg í kappræðum á sjónvarpsstöðinni TV2 fyrr í vikunni.
Jonas Gahr Støre og Erna Solberg í kapp­ræðum á sjón­varps­stöð­inni TV2 fyrr í vik­unni. Mynd: EPA

Á mánu­dag­inn munu Norðmenn ganga að kjör­köss­unum og kjósa sér nýja full­trúa á norska Stór­þing­inu. Samkvæmt nýj­ustu skoð­ana­könn­unum er næstum full­víst að núver­andi hægri­st­jórn muni ekki ná stuðn­ingi meiri­hluta þing­manna, en fylgi norska hægri­flokks­ins hefur minnkað tölu­vert það sem af er ári. Á sama tíma hafa miðju- og vinstri­flokkar verið að sækja í sig veðrið, en þar sem mörgum þeirra kemur ekki saman um ýmis mál, þar á meðal olíu­vinnslu, má búast við miklum mála­miðl­unum til að mynda stjórn.

Örlagaríkt sextugsafmæli Solberg

Norska dag­blaðið VG hefur reglu­lega spurt lands­menn hvern þeir vilja fá sem for­sæt­is­ráð­herra eftir kosn­ing­arnar. Í byrjun árs svar­aði meiri­hluti aðspurðra að þeir vildu helst að Erna Solberg, sitj­andi for­sæt­is­ráð­herra, héldi áfram. Á síð­ustu mán­uðum hafa vin­sældir hennar þó dalað hratt og í síð­ustu skoð­ana­könnun sem var fram­kvæmd í gær vildu ein­ungis 35 pró­sent aðspurðra að hún sæti áfram sem for­sæt­is­ráð­herra að loknum kosn­ing­unum.

Minnk­andi vin­sældir Solberg má meðal ann­ars rekja til gleð­skaps sem var hald­inn í til­efni sex­tugs­af­mælis hennar í febr­úar, en þar fagn­aði hún í hópi 13 ann­arra, á meðan 10 manna sam­komu­tak­mörk voru í gildi í land­inu. For­sæt­is­ráð­herr­ann baðst síðar afsök­unar á að hafa brotið eigin sótt­varn­ar­reglur og hefur nú borgað lög­regl­unni sekt að and­virði 300 þús­und íslenskra króna vegna þess. Eftir að upp komst um veisl­una hefur fylgi norska Hægri­flokks­ins, sem Solberg er í for­svari fyrir, sömu­leiðis lækkað úr rúmum 24 pró­sentum niður í tæp 20 pró­sent.

Væringar á miðjunni og vinstrivængnum

Á sama tíma og Hægri­flokkur Solberg hefur verið í vand­ræðum hefur norski Verka­manna­flokk­ur­inn, með Jonas Gahr Støre í far­ar­broddi, eflst tölu­vert. Fylgi flokks­ins hefur auk­ist úr rúmu 21 pró­senti upp í tæp 25 pró­sent á síð­ustu mán­uðum og mælist hann nú stærstur allra stjórn­mála­flokka í Noregi. Sögulega séð er þetta þó ekki mikið fylgi hjá Verka­manna­flokknum, en hann náði rúmum 27 pró­sentum atkvæða í síð­ustu kosn­ingum.

Um tíma leit út fyrir að norski Mið­flokk­ur­inn, syst­ur­flokkur íslenska Fram­sókn­ar­flokks­ins sem er leiddur áfram af bónd­anum Trygve Slags­vold Vedum, yrði stærsti flokkur lands­ins. Í árs­gömlum skoð­ana­könn­unum mæld­ist flokk­ur­inn á sömu slóðum og Verka­manna­flokk­ur­inn með 20 pró­sent, en það er tvö­falt meira fylgi en hann fékk í síð­ustu kosn­ing­unum árið 2017. Þessi upp­gangur Mið­flokks­ins hefur þó snú­ist við á loka­sprett­inum, og hefur fylgi hans dalað hratt á síð­ustu vikum. Nú mælist flokk­ur­inn sá þriðji stærsti með 12 pró­senta fylgi.

Engin meirihlutastjórn í kortunum

Norskir kjós­endur vilja helst fá Støre í for­sæt­is­ráð­herra­sætið, sam­kvæmt nýrri skoð­ana­könnun dag­blaðs­ins VG, en lík­legt er að hann fái stjórn­ar­mynd­un­ar­um­boð eftir kosn­ingar og reyni að mynda stjórn yfir miðju og til vinstri. Sjálfur hefur hann sagt að hann kysi helst að mynda stjórn með Mið­flokknum og Sós­íal­íska vinstri­flokknum, sem er syst­ur­flokkur VG.

Hins vegar er ólík­legt að þessir flokkar, eða aðrir flokkar sem eru lík­legir til að geta unnið saman, muni ná þing­meiri­hluta, sam­kvæmt nýj­ustu skoð­ana­könn­unum. Því er lík­legt að næsta rík­is­stjórnin verði með minni­hluta þing­sæta á bak við sig, en reiði sig á stuðn­ing ann­arra vinstri­flokka.

Slíkt stjórn­ar­mynstur gæti falið í sér miklar mála­miðl­anir fyrir Verka­manna­flokk­inn, en aðrir vinstri­flokkar, líkt og Græni umhverf­is­flokk­ur­inn Rautt vinstri vilja mun rót­tæk­ari aðgerðir í lofts­lags­málum.

Ósætti um olíuleit og Evrópusamstarf

Samkvæmt Verka­manna­flokknum og Mið­flokknum ættu norsk olíu­fyr­ir­tæki en að mega leita að olíu og jarð­gasi, en Græni umhverf­is­flokk­ur­inn, Rautt vinstri og Sós­íal­íski vinstri­flokk­ur­inn vilja allir að olíu­leit verði hætt strax. Einnig telur Græni umhverf­is­flokk­ur­inn að Norðmenn ættu að hætta allri olíu­vinnslu fyrir árið 2035.

Flokk­arnir eru ekki heldur sam­stíga í orku­málum, þar sem Verka­manna­flokk­ur­inn og Mið­flokk­ur­inn eru mun jákvæð­ari í garð vind­orku­fram­leiðslu heldur en hinir vinstri­flokk­arnir.

Þeir eru einnig ósam­mála fram­lög til hern­að­ar­mála og Evr­ópu­sam­starf, en Sós­íal­íski vinstri­flokk­ur­inn, Rautt vinstri og Mið­flokk­ur­inn vilja allir slíta EES-samn­ingnum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár