Stjórnmálaaflið Kári Stefánsson hræðir ráðamenn

Kári Stef­áns­son er umdeildur en áhrifa­mik­ill maður. Í des­em­ber í fyrra hófst veg­ferð hans fyrir bættu heil­brigð­is­kerfi og skæru­hern­að­ur­inn hefur staðið yfir linnu­laust síðan. Með miklum árangri.

Kári Stef­áns­son hefur verið afar umdeildur maður í íslensku sam­fé­lagi und­an­farna ára­tugi allt frá því að hann snéri heim til föð­ur­lands­ins til að setja á fót Íslenska erfða­grein­ingu/DeCode á tíunda ára­tug síð­ustu aldar. Næstu árin komust Kári og fyr­ir­tækið í frétt­irnar fyrir for­dæma­lausa til­raun íslenska rík­is­ins til þess að veita því rík­is­á­byrgð, laga sem áttu að veita fyr­ir­tæk­inu rétt til að setja upp og starf­rækja mið­lægan gagna­grunn með óper­sónu­grein­an­legum heilsu­fars­upp­lýs­ingum Íslend­inga og umfangs­mik­illa við­skipta íslenskra gull­graf­ara með bréf Decode á gráum mark­aði sem end­aði í sorg­ar­sögu hjá flestum sem ætl­uðu að verða rosa­lega ríkir rosa­lega fljótt, skrán­ingu á hluta­bréfa­markað í Banda­ríkj­unum. Í kjöl­farið fylgdi greiðslu­stöðvun slita­með­ferð og upp­risa. Já, og auð­vitað umdeildar lífs­sýna­tökur sem björg­un­ar­sveit­ar­menn söfn­uðu saman í sam­starfi við fyr­ir­tækið.

Kári hefur alltaf verið stop­ull þátt­tak­andi í þjóð­fé­lags­um­ræð­unni og vakið athygli fyrir að vera beittur, jafn­vel dóna­legur, í skrifum sínum. Frá lokum síð­asta árs hefur þessi óbeina stjórn­mála­þátt­taka Kára þó orðið mun reglu­legri, og ljóst má vera að greinar hans og skila­boð eru að hafa mikil áhrif. Það sést best á því að æðstu stjórn­mála­menn þjóð­ar­innar sjá sig oftar en ekki knúna til að svara honum þegar Kári hnýtir í þá. Og svo tókst honum auð­vitað að safna 86 þús­und und­ir­skriftum til stuðn­ings end­ur­reisnar íslenskaa heil­brigð­is­kerfis, sem er stærsta und­ir­skrift­ar­söfnun Íslands­sög­unnar. Áhrifa hennar mun gæta mjög í aðdrag­anda kom­andi kosn­inga. Því má með góðum rökum full­yrða að Kári sé orð­inn stór leik­andi í í íslenskum stjórn­málum. Þótt hann hafi aldrei boðið sig fram til þátt­töku í slíkum.

Ætlaði að safna 100 þúsund manns gegn ríkisstjórninni

Yfir­stand­andi óbein stjórn­mála­þátt­taka Kára hófst með grein sem hann skrif­aði í Frétta­blaðið 10. des­em­ber 2015. Fyr­ir­sögn grein­ar­innar var „Einnota rík­is­stjórn“.

Í grein­inni gagn­rýndi Kári þáver­andi rík­is­stjórn Sig­mundar Davíðs Gunn­laugs­sonar harka­lega vegna þess ástands sem væri við lýði í heil­brigð­is­málum þjóð­ar­innar og sagði að við það yrði ekki lengur búið. Þess vegna vildi hann láta fjár­laga­nefnd Alþingis vita að ef hún breytti ekki fjár­laga­frum­varpi árs­ins 2016, sem þá var fyr­ir­liggj­andi en ósam­þykkt, myndi hann safna 100 þús­und und­ir­skriftum undir plagg sem myndi hvetja „lands­menn til þess að kjósa aldrei aftur þá stjórn­mála­flokka sem standa að þess­ari rík­is­stjórn­ ­vegna þess kulda og afskipta­leysis sem hún sýnir sjúkum og meiddum í okk­ar ­sam­fé­lagi. Söfn­unin verður létt verk og löð­ur­mann­legt. Þjóð­inni ofbýð­ur.“

Í grein­inni sagði Kári einnig að lýðnum væri orðið ljóst að rík­is­stjórn Sig­mundar Davíðs Gunn­laugs­sonar myndi ekki sitja lengur en sem næmi einu kjör­tíma­bili. „Það er dap­ur­legt að sitja uppi með korn­unga leið­toga sem ættu aldur síns vegna að ver­a hungr­að­ir, kraft­miklir og hug­rakkir en þora ekki að taka það sem við þurfum og eigum skil­ið. Það er eins og þeir geri sér ekki grein fyrir því að það er miklu ­meiri áhætta tekin með því sækja ekki nægi­legt fé í þá einu sjóði sem eru okk­ur að­gengi­legir til þess að bylta íslensku heil­brigð­is­kerfi inn í nútím­ann. En þeir eru sem sagt reiðu­bún­ari til þess að taka þá áhættu sem felst í því að láta þjóð­ina búa við stór­gallað heil­brigð­is­kerfi og úrelt. Og Sig­mundur og ­Bjarni standa hoknir í hnjánum fyrir framan kröfu­haf­ana sem eru full­trúar hins er­lenda auð­valds, og eru hreyknir yfir því að þeir kvört­uðu ekki undan díln­um ­sem þeir fengu og virð­ast ekki gera sér grein fyrir því að það voru ekki bara ­kröfu­haf­arnir sem glöt­uðu allri virð­ingu fyrir þeim þegar bux­urnar þeirra fóru að blotna heldur hið alþjóð­lega sam­fé­lag allt og ekki síst íslensk þjóð,“ skrif­aði Kári.

„Toppari Íslands“ og beina lýðræðið

Sig­mundur Davíð svar­aði Kára dag­inn eftir í grein í Frétta­blað­inu sem hann kall­aði „Toppari Íslands“. Í grein­inni minnt­ist þáver­andi for­sæt­is­ráð­herra aldrei á Kára en rakti sögu af ónafn­greindum manni sem hann sagði að hafi ver­ið svo­kall­aður „topp­ari“, og raunar „mesti topp­ari Íslands“.

Í grein­inni sagði Sig­mundur Davíð að öllum mætti vera ljóst hversu rangt og bein­línis óheið­ar­legt það væri að saka þau ­stjórn­völd sem þá sátu, og hefðu for­gangs­raða mest í þágu heil­brigð­is­mála, að vera vilj­andi að svelta heil­brigð­is­kerf­ið. Það að gungu­skapur stjórn­valda ­gagn­vart erlendum kröfu­höfum föllnu bank­anna hafi orðið til þess að ekki séu 150 millj­arðar króna til staðar til að setja í heil­brigð­is­kerfið væri ómerki­leg­t bull.

Kári sagð­ist upp með sér að fengið skvettu úr koppi for­sæt­is­ráð­herra. Hann myndi þvo hana af sér og þurrka.

Ellefu dögum eftir að grein Kára birt­ist, 21. des­em­ber 2015, var hann mættur til við­tals í Morg­un­út­varpi Rásar 2. Þar sagð­ist hann ætla að safna und­ir­skriftum frá þjóð­inni sem nota ætti til að „hand­járna næstu rík­is­stjórn þannig að hún verði að setja það fé í heil­brigð­is­málin sem eðli­legt má telj­ast." Hann sagði Íslend­inga nú eyða 8,7 pró­sent af vergri þjóð­ar­fram­leiðslu til heil­brigð­is­mála en með­al­talið í lönd­unum í kringum okkur væri rúm­lega tíu pró­sent. „Við erum lítil þjóð þannig að það er lík­legt að kostn­aður við heil­brigð­is­þjón­ustu á nef hvert sé tölu­vert meiri hér en á meðal stærri þjóð­anna. Þannig að ég held að það sé ekk­ert óeðli­legt að við stefnum að því að við eyddum í kringum 11 pró­sent af vergri þjóð­ar­fram­leiðslu til heil­brigð­is­mála."

Kári sagð­ist hafa verið að forma með sér, með hjálp góðra manna, hug­mynd að und­ir­skrifta­söfn­un­ um heil­brigð­is­mál og velti fyrir sér hvort ekki væri mögu­legt að ná meiri­hluta þjóð­ar­innar til að skrifa undir hana. „Og það sem ég er raun­veru­lega að segja er að það er kom­inn tími til þess að beita beinu lýð­ræði í mála­flokki eins og þess­um. Beina lýð­ræðið er mögu­leiki í dag með net­að­gangi. Ég held að það sé hægt að ná til fólks­ins í land­inu og gefa því tæki­færi til þess að tjá sig um þennan mála­flokk á til­tölu­lega stuttum tíma. Ekki held ég að það verði þægi­legt fyrir þá sem setj­ast á ráð­herra­stóla næst að sitja uppi með und­ir­skrift­ir, við skulum segja 80 pró­sent þjóð­ar­inn­ar. Hvernig í ósköp­unum ættu þeir að hunsa slíkan vilja?"

Söfnun og tveggja ára offitusjúklingur

22. jan­úar 2016 var til­kynnt um að Kári hefði hleypt af stokk­unum und­ir­skrifta­söfnun á síð­unni end­ur­reisn.is. Í til­kynn­ingu frá Kára vegna þessa sagði að und­ir­skrifta­söfn­unin væri til stuðn­ings kröf­unni um end­ur­reisn heil­brigð­is­kerf­is­ins. Þar var eft­ir­far­andi haft eftir Kára: „Heil­brigð­is­kerfi er einn af horn­steinum nútíma­sam­fé­lags og sýnir vilja þess til þess að hlúa að þeim sem eru sjúkir og meidd­ir. Gott heil­brigð­is­kerfi end­ur­speglar sjálf­sagða sam­hygð en lélegt heil­brigð­is­kerfi óá­sætt­an­legan kulda gagn­vart þeim sem eru hjálpar þurfi. Það er okkar mat að á síð­asta ald­ar­fjórð­ungi hafi stjórn­völd vannært íslenskt heil­brigð­is­kerfi, að því marki að það sé ekki lengur þess megn­ugt að sinna hlut­verki sínu sem skyldi.[...]Þar sem kjörnir full­trúar þjóð­ar­innar um ald­ar­fjórð­ungs­skeið hafa ekki haft að því frum­kvæði að fjár­magna heil­brigð­is­kerfið eins og skyldi, ætlum við und­ir­rituð að taka frum­kvæðið."

Fyrsta tvo dag­anna sem söfn­unin var í loft­inu skrif­uðu 36 þús­und manns undir hana.

2. febr­úar skrif­aði Kári síðan aðra grein, í þetta sinn í Morg­un­blaðið. Þar sagði hann ekk­ert að marka það sem rík­is­stjórnin seg­iði um að hlúa að heil­brigð­is­kerf­inu og það sama mætti segja um margar þeirra sem á undan henni hafa set­ið. Rík­is­stjórnin segði einn dag­inn að ekki sé til fé til að setja 2,5 millj­arða króna í heil­brigð­is­kerfið en til­kynni nokkrum dögum seinna að afgangur af rík­is­rekstri verði 300 millj­arðar króna.

Þann 5. febr­úar var birt við­tal við Kára í blað­inu Reykja­vík Grapevine, sem er skrifað á ensku. Þar kall­aði Kári Sigmund Davíð, sem þá var enn for­sæt­is­ráð­herra þjóð­ar­innar, lít­inn tveggja ára offitu­sjúk­ling. Hann baðst síðar afsök­unar á ummæl­unum. „Þessi skítur á minni ábyrgð. Þessa lotu vann for­sæt­is­ráð­herra 10-0."

Skortur á fjarveru bitnar á þjóðinni

Þrátt fyrir afsök­un­ar­beiðn­ina hafði áhugi Kára á Sigmundi Davíð síst minnkað. 18. mars skrif­aði hann opið bréf til for­sæt­is­ráð­herr­ans þar sem hann sagði að skortur á fjar­veru hans frá Alþingi bitn­aði á allri þjóð­inni. Sigmundur Davíð væri „best geymdur ann­ars staðar og við aðra iðju eins og til dæmis á Flór­ída að fá útrás fyrir áhuga þinn á skipu­lags­málum með því að ­spila Matador við sjálfan þig.“

Skömmu áður hafði Sig­mundur Davíð kynnt til­lögu sína um að byggja nýjan Lands­spít­ala við Víf­ils­staði í Garðabæ í stað þess að hann byggð­ist upp við Hring­braut, líkt og stefna rík­is­stjórnar hans sagði til um. Kári var gíf­ur­lega harð­orður um þessa til­lögu í grein­inni. „Þú lagðir fram Víf­ils­staða­til­lög­una án þess að ræða hana við heil­brigð­is­mála­ráð­herra sem fer með þau mál er lúta að Land­spít­al­anum eða fjár­mála­ráð­herra sem hafði yfir­um­sjón ­með smíð fjár­laga sem kveða á um fé til Hring­braut­ar­lausn­ar­inn­ar. Það er með­ öllu for­dæm­is­laust að for­sæt­is­ráð­herra í sam­steypu­stjórn gangi opin­ber­lega gegn ­mik­il­vægum ákvörð­unum fagráð­herra úr sam­starfs­flokki hans í rík­is­stjórn.[...]Til­lagan, sem í efni sínu var í það minnsta allt í lagi, var sett fram sem nokk­urs konar stríðs­yf­ir­lýs­ing gegn sam­starfs­flokki þínum í rík­is­stjórn­inni og þeim aðilum sem veita heil­brigð­is­­málum for­ystu í land­in­u,“ skrif­aði Kári.

Þar rakti hann orðróm um sam­skipti Sig­mundar Davíð og ­Bjarna Bene­dikts­son­ar, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra. „Það er til dæmis fleyg sú saga að fyrir um það bil ári hafi Bjarni Ben hringt í þig klukkan þrjú um eft­ir­mið­dag og sagt að hann þyrfti að hitta þig þann dag­inn og þú hafir fall­ist á að gera það um fimm­leytið á skrif­stofu þinni. Þegar Bjarni kom var þig hverg­i að finna vegna þess að þú varst á leið­inni til Flór­ída og hafðir verið í bíln­um á leið­inni til Kefla­víkur þegar sím­talið átti sér stað. Hvers vegna í ósköp­unum sagð­irðu ekki Bjarna að þú værir á leið­inni í frí?“

Wintris og ásakanir um landráð

Á þeim tíma sem Kári skrif­aði hið opna bréf var Wintris-málið að taka á sig mynd. Hann skrif­aði síðan aðra grein í Morg­un­blaðið sem birt­ist 29. mars síð­ast­lið­inn þar sem umfjöll­un­ar­efnið var enn og aftur Sig­mundur Davíð. Þar sagði hann að færa mætti rök fyrir því að for­sæt­is­ráð­herr­ann hefði orðið upp­vís að land­ráðum og taldi að hann þyrfti að víkja. Þjóð­ar­leið­togi sem væri að semja fyrir hönd þjóðar sinnar og hefði sem ein­stak­lingur hags­muna að gæta með þeim sem hann væri að semja við og ­gegn þjóð­inni væri óhæfur til þess að sinna starfi sínu.

Kári sagði lík­legt að það væru aðilar í póli­tík og utan sem væru hon­um ó­sam­mála um þessi efni. Næsta víst væri þó að margir sæju þetta á sama hátt. „Þar af leið­andi kem­urðu til með að hrekj­ast úr emb­ætti að end­ingu þótt svo þú berj­ist gegn því með kjafti og klóm. Því ráð­legg ég þér að sýna auð­mýkt og ­lít­il­læti og segja af þér til þess að koma í veg fyrir að þjóðin þurfi að eyða þeirri orku í enn eina innri bar­átt­una sem mætti ann­ars nýta til upp­bygg­ing­ar.“

Sig­mundur Davíð sagði ekki af sér í kjöl­far grein­ar­innar. Það gerði hann hins vegar nokkrum dögum síðar, þann 5. apríl, í kjöl­far þess að sjón­varps­þáttur um aflands­fé­laga­eign hans var sýndur á RÚV og eftir að 26 þús­und manns höfðu mót­mælt honum og kraf­ist kosn­inga á Aust­ur­velli.

Stærsta söfnun Íslandssögunnar

Í lok apríl afhenti Kári Sigurði Inga Jóhanns­syni, nýjum for­sæt­is­ráð­herra, um 86 þús­und und­ir­skriftir um end­ur­reisn heil­brigð­is­kerf­is­ins. Um var að ræða stærstu und­ir­skrifta­söfnun Íslands­sög­unnar sem hafði þá staðið yfir í um þrjá mán­uð­i.

Kári hætti hins vegar ekk­ert að skrifa greinar. Og hann hætti ekki að beina spjótum sínum að Sigmundi Davíð heldur, þótt hann væri nú „bara“ for­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins og óbreyttur þing­maður.

Þann 8. júní skrif­aði kann grein í Frétta­blaðið sem bar fyr­ir­sögn­ina „Buxurnar heillar þjóðar“.

Þar rifj­aði Kári upp að hann hefði ein­hverju sinni í for­tíð­inni gefið tveggja ára gam­alli dóttur sinni of mikið sæl­gæti með þeim afleið­ingum að hún kúkaði í sig. Þegar móðir hennar spurði hana út í hvort þetta væri rétt kenndi hún systur sinni um að hafa kúkað í bux­urnar sínar. „Þetta er svo­lítið fyndið og jafn­vel sætt út úr munni tveggja ára barns en eitt­hvað allt annað þegar það heyr­ist frá fyrr­ver­andi for­sæt­is­ráð­herra lýð­veld­is­ins. Það vill meira að segja svo til að upp­takan af Sigmundi Davíð, for­sæt­is­ráð­herra Íslands, þar sem hann sat aula­legur fyrir framan mynda­vél­ina og tafs­aði og laug, barst um allan heim og varð til þess að grínistar í sjón­varpi og útvarpi, frá Íslandi til Ástralíu, hædd­ust að honum og landi og þjóð. Það má því leiða að því rök að Sig­mundur Davíð hafi ekki bara gert í eigin buxur heldur bux­urnar heillar þjóðar,“ skrif­aði Kári.

Hann sagði að það yrði íslenskri þjóð til ævi­var­andi skammar ef maður sem heims­byggðin liti á sem ljúg­andi aula yrði aftur í for­ystu­sveit íslenskra stjórn­mála. Það yrði að koma í veg fyrir það. „Framsókn skuldar þjóð­inni að verja hana gegn Sigmundi Davíð. Hann er hennar Franken­stein.“

Kári snýr sér að Jóhönnu og fortíðinni

Eftir stutt sum­ar­frí hefur Kári verið iðinn við grein­ar­skrif und­an­farnar vikur. Þann 9. ágúst setti hann stöðu­upp­færslu á Facebook sem vakti mikla athygli og rataði í fjöl­miðla.

Þar sagð­ist hann vilja að Bjarni Bene­dikts­son myndi leggja fram frum­varp til fjár­auka­laga í ágúst til að losa sjúk­linga undar greiðslu­þátt­töku, efla Land­spít­al­ann og end­ur­reisa heilsu­gæsl­una. Allir þing­menn ættu að greiða frum­varp­inu atkvæði og sýna þannig að þeir þjóni þjóð­inni sem vill að þetta ger­ist.

En Kári gagn­rýndi fleiri. Hann sagði mun á stjórn­mála­flokkum virð­ast ein­ungis vera til staðar þegar þeir væru í stjórn­ar­and­stöðu. „Þegar þeir eru komnir í stjórn eru þeir allir eins án til­lits til hægri eða vinstri, upp eða nið­ur, himna­ríkis eða hel­vít­is“. Í færsl­unni sagði hann rík­is­stjórn Jóhönnu Sig­urð­ar­dóttur hafa holað heil­brigð­is­kerfið að innan og end­an­lega losað hann við þá tál­sýn að póli­tísk hug­mynda­fræði hafi for­spár­gildi um það hvernig stjórn­mála­menn hagi sér á valda­stól­u­m.

Jóhanna svar­aði Kára fullum hálsi og sagði að hann yrði að setja hlut­ina í rétt sam­hengi ef hann vildi láta taka sig alvar­lega. „Hefur Kári Stef­áns­son gleymt því að þegar vinstri stjórnin tók við árið 2009 voru for­dæma­lausar aðstæður á Íslandi og gjald­þrot blasti við þjóð­inn­i,“ sagði Jóhanna í eigin stöðu­upp­færslu.

Kári svar­aði aftur og sagði rík­is­stjórn Jóhönnu hafa frekar valið að afla fjár til þess að bjarga bönkum og fjár­mála­stofn­un­um, klára Hörpu og gera Vaðla­heið­ar­göng í stað þess að bjarga heil­brigð­is­kerf­inu. „Ég er ekki í nokkrum vafa um að Jóhanna hefði viljað við­halda vel­ferð­ar­kerf­inu af því hún hefur um langan tíma verið málsvari þeirra sem minna mega sín en það er bara eitt­hvað sem ger­ist innan höf­uð­skelja íslenskra stjórn­mála­manna þegar þeir setj­ast á valda­stóla.“

Silfur er þungur málmur

Síðasta lotan í gagn­rýnum skrifum Kára um ráða­menn þjóð­ar­innar átti sér svo stað í síð­ustu viku. Grein birt­ist í Morg­un­blað­inu sem snérist um gagn­rýni á fimm ára fjár­mála­á­ætlun rík­is­stjórn­ar­innar.

Þar sagði Kári að það væri ginn­ungagap milli þess sem höf­uðið segir Bjarna Bene­dikts­syni, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, og þess sem hjartað knýr hann til að gera. Bjarni hefði oft­sinnis tekið undir þá skoðun Kára að það yrði að minnka greiðslu­þátt­töku sjúk­linga og auka fjár­fram­lög til heil­brigð­is­kerf­is­ins. Þetta væri ekki sýni­legt í áætl­un­inni og því væri ekki að marka eitt orð sem Bjarni segði.

„Það er bara þannig að það er ekki í sam­ræmi við eðli Bjarna sem for­manns Sjálf­stæðis­flokks­ins að hlúa að vel­ferðar­kerf­inu, án til­lits til skoð­ana hans og yf­ir­lýsts vilja. Silf­ur er þung­ur málm­ur og þung­ir málm­ar eru hættu­leg­ir heil­an­um og heil­inn er það líf­færi þar sem eðli manna verður til. Þegar menn til­heyra fjöl­skyldu þar sem börn hafa fæðst með silf­ur­skeið í munni í tvær kyn­slóðir er hætta á því að þeim sé eðli­legra að vera kóngu­ló­in sem sit­ur í miðjum vefn­um sem teng­ir sam­an við­skipti og stjórn­mál en að hlúa að almúg­an­um í land­inu. Eðlið er nefni­lega oft­ast vilj­an­um yf­ir­sterk­ara. Þess vegna hljót­um við að koma Bjarna út af þingi við kosn­ing­arn­ar í haust og með því bjarga hon­um frá þeim sárs­auka sem hlýst af árekstri vilja og eðlis en fyrst og fremst kæm­um við þannig í veg fyr­ir að stjórn lands­ins lendi aft­ur í hönd­un­um á mönn­um sem er ekk­ert að marka.,“ skrif­aði Kári.

Dagur fær sneið

Á fimmtu­dag bætti Kári enn við gagn­rýni sína í grein sem hann skrif­aði í Frétta­blaðið. Þar bað hann Bjarna afsök­unar á því að hafa haft hann einan í mynd í fyrri grein, þótt allt sem hann hefði skrifað um ráð­herr­ann hefði verið meira og minna satt. „Ég hefði til dæmis átt að sýna félags­hyggju­tröllið og borg­ar­stjór­ann hann Dag B. Egg­erts­son sem ríkir í umboði Sam­fylk­ingar, Vinstri grænna, Pírata og Besta flokks­ins: Grunn­skólar borg­ar­innar eru þær stofn­anir þar sem stór hluti þjóð­ar­innar hefur menntun sína sex ára að aldri. Það er í grunn­skól­unum sem börnin eru mót­an­leg­ust og mót­tæki­leg­ust fyrir hollum áhrifum. Góður grunn­skóli er líka sú stofnun sem getur hlúð að börnum sem búa við erf­iðar aðstæður heima fyrir. Grunn­skólar Reykja­víkur eru hins vegar illa mann­aðir og sveltir af fé að því marki að skóla­stjórar þeirra hafa mót­mælt svo kröft­ug­lega að búast má við að næsta skref þeirra verði vopnuð bylt­ing.

Og svo eru það leik­skól­arnir þar sem gullin okkar og gim­steinar, blómin okkar allra, dvelja í fyrsta sinn utan heim­ilis og undir umsjón vanda­lausra. Leik­skólar Reykja­víkur búa svo illa að þeir geta ekki einu sinni séð börn­unum fyrir almenni­legum mat. Dagur B. Egg­erts­son, borg­ar­stjóri og læknir, sættir sig við að leik­skóla­börn í hans umdæmi fái ekki almenni­lega nær­ingu á meðan borgin eyðir fé í að mjókka Grens­ás­veg fyrir hjól­reiða­menn, til dæmis.“

Kári ætlar að safna liði ef honum verður ekki hlýtt

Athygl­is­verð­asti hluti grein­ar­innar var hins vegar nið­ur­lag hennar. Þar sagði Kári að hann væri að safna liði sem muni fylgj­ast grannt með hvernig núver­andi stjórn­ar­flokkar, Sjálf­stæð­is­flokkur og Fram­sókn­ar­flokkur, sinna heil­brigð­is­kerf­inu fyrir kosn­ingar. Ef ekki verði gert raun­veru­legt átak í þeim málum muni Kári og lið hans „gera allt sem við getum til þess að sann­færa kjós­endur um að hunsa ykkur[...]Við munum einnig geta okkar besta til þess að sjá til þess að stjórn­ar­and­stöðu­flokk­arnir heiti stuðn­ingi við heil­brigð­is­kerfið á þann hátt að það verði ekki auð­veld­lega svikið.“

Í ljósi þess hversu við­kvæmir stjórn­mála­menn virð­ast vera fyrir gagn­rýni Kára, hversu vel hann nær eyrum almenn­ings með hvassri fram­setn­ingu sinni og hversu stað­ráð­inn hann virð­ist vera í að ná sínu fram eru tölu­verðar líkur á því að stjórn­mála­aflið Kári Stef­áns­son muni leika lyk­il­hlut­verk í kom­andi kosn­inga­bar­áttu. Og það án þess að vera einu sinni á kjör­seðl­inum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár