Kári Stefánsson segist þvo skvettu forsætisráðherra af sér og þurrka

Kári Stef­áns­son, for­stjóri Íslenskrar erfða­grein­ingar, seg­ist vera upp með sér að hafa fengið skvettu úr koppi Sig­mundar Davíðs Gunn­laugs­sonar for­sæt­is­ráð­herra. Hann muni þvo hana af sér og þurrka. Að öðru leyti vill hann ekki tjá sig um efni greinar sem for­sæt­is­ráð­herra skrif­aði í Frétta­blaðið í morgun. Frá þessu er greint á vef RÚV.

Grein Sig­mundar Davíðs var and­svar við grein sem Kári skrif­aði í sama blað dag­inn áður. Þar hafði Kári gagn­rýnt rík­is­stjórn­ina harka­lega fyrir fjársvelti gagn­vart heil­brigð­is­þjón­ustu og lin­kind gagn­vart kröfu­höfum föllnu bank­anna. Hann sagði lýðnum ljóst að rík­is­stjórn Sig­mundar Davíðs myndi ekki sitja lengur en eitt kjör­tíma­bil og hét því að hann og nokkrir félagar hans myndu safna 100 þús­und und­ir­skriftum frá fólki sem myndi heita þess að kjósa rík­is­stjórn­ar­flokk­anna aldrei aftur ef fram­lög til Lands­spít­al­ans yrðu ekki aukin.

Sig­mundur Davíð sagði í sinni grein að það megi vera öllum ljóst hversu rangt og bein­línis óheið­ar­legt það sé að saka þau stjórn­völd sem nú sitji, og hafi for­gangs­raða mest í þágu heil­brigð­is­mála, að vera vilj­andi að svelta heil­brigð­is­kerfið. Það að gungu­skapur stjórn­valda gagn­vart erlendum kröfu­höfum föllnu bank­anna hafi orðið til þess að ekki séu 150 millj­arðar króna til staðar til að setja í heil­brigð­is­kerfið sé ómerki­legt bull. Þá gaf for­sæt­is­ráð­herra sterk­lega í skyn að Kári væri yfir­læt­is­fullur bess­ervisser sem telji alla aðra vera fábjána og virt­ist auk þess telja að Kári væri á leið í for­seta­fram­boð.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár