Sigmundur Davíð Gunnlaugsson forsætisráðherra segir það megi vera öllum ljóst hversu rangt og beinlínis óheiðarlegt það sé að saka þau stjórnvöld sem nú sitji, og hafi forgangsraða mest í þágu heilbrigðismála, að vera viljandi að svelta heilbrigðiskerfið. Það að gunguskapur stjórnvalda gagnvart erlendum kröfuhöfum föllnu bankanna hafi orðið til þess að ekki séu 150 milljarðar króna til staðar til að setja í heilbrigðiskerfið sé ómerkilegt bull.
Þetta kemur fram í aðsendri grein forsætisráðherrans í Fréttablaðinu í dag, þar sem hann svarar grein Kára Stefánssonar, forstjóra Íslenskrar erfðagreiningar, sem birtist á sama stað í gær. Kári gagnrýndi ríkisstjórnina harkalega fyrir fjársvelti gagnvart heilbrigðisþjónustu og linkind gagnvart kröfuhöfum föllnu bankanna. Hann sagði lýðnum ljóst að ríkisstjórnin myndi ekki sitja lengur en eitt kjörtímabil og hét því að hann og nokkrir félagar hans myndu safna 100 þúsund undirskriftum frá fólki sem myndi heita þess að kjósa ríkisstjórnarflokkanna aldrei aftur ef framlög til Landsspítalans yrðu ekki aukin.
Segir Kára hugsanlega verðandi forsetaframbjóðanda
Í grein sinni, sem ber heitið „Toppari Íslands“, rekur forsætisráðherra sögu af ónafngreindum manni sem hann segir að hafi verið svokallaður „toppari“, og raunar „mesti toppari Íslands“. „Enginn var betri í viðskiptum en hann en samt var ekki til meiri mannvinur, því hann mátti að eigin sögn ekkert aumt sjá. Það var líka sama hvaða sögur aðrir gestir sögðu, alltaf bætti hann um betur. Hann hafði gert merkilegri hluti, séð meira en aðrir og unnið stærri sigra. Hann taldi sig líka alltaf kunna betri brandara en hinir og sá því enga ástæðu til að leyfa öðrum að ljúka sínum skemmtisögum áður en hann kom með aðra betri.
Í hvert sinn sem hann tók orðið var það auk þess gert af yfirlæti og gefið til kynna að allir aðrir en hann væru fábjánar. Þegar reynt var að leiðrétta eina eða tvær af fjölmörgum rangfærslum þessa samkvæmisljóns brást hann hinn versti við og gerði lítið úr þeim sem dirfðust að gera slíkar athugasemdir.“
Sigmundur Davíð segir að sér hafi nokkrum sinnum verið hugsað til topparans vegna yfirlýsinga Kára Stefánssonar, sem hann segir vera hugsanlega verðandi forsetaframbjóðanda. „Sá bætir stöðugt í og skrifar nú enn eina greinina um hvað allir séu vitlausir, stjórnmálamenn og þjóðin, og standi illa að málum.
Það sem topparar þrá umfram allt annað er athygli og því er ég eflaust að veita jákvæða styrkingu með því að svara slíkum manni. Hann mun sjálfsagt líta á það sem tækifæri til að útskýra að nú hafi sannast enn betur en áður hversu illa gefnir og illviljaðir stjórnmálamenn séu. Það er samt ekki hægt að láta það óátalið þegar maður sem talinn er gáfaður á sumum sviðum heldur fram hreinum ósannindum og nýtir um leið veikindi fólks til sjálfsupphafningar.“
Forsætisráðherrann segir að gangstætt því sem nú sé haldið fram í nýjustu grein Kára, sem hann nefnir reyndar aldrei með nafni í greininni, ríki „ágæt samstaða um það bæði meðal almennings og stjórnmálamanna að forgangsraða í þágu heilbrigðiskerfisins“. Það hafi núverandi ríkisstjórn gert í meira mæli en fyrri ríkisstjórnir og að það sem af sé kjörtímabili hafi framlög til Landsspítalans aukist um 30 prósent. „Framlög til spítalans hafa aldrei verið meiri og það sama á við um heilbrigðiskerfið og velferðarkerfið í heild. Geti sérfræðingurinn toppað það með því að benda á annað vestrænt ríki sem hefur aukið jafnmikið við framlög til heilbrigðismála á sama tímabili (eða nokkru öðru tímabili í seinni tíð) hvet ég hann til að benda á slík dæmi.“
Merkilegt að maður sem reki fyrirtæki fari svona frjálslega með tölur
Sigmundur Davíð segir það mega vera öllum ljóst hversu „rangt og beinlínis óheiðarlegt það er að saka þau stjórnvöld sem hafa forgangsraðað mest í þágu heilbrigðismála um að vera viljandi að svelta heilbrigðiskerfið. En slík framganga er líka skaðleg því að við þurfum þrátt fyrir allt að ná enn betri árangri á sviði heilbrigðismála og við þurfum að vera í aðstöðu til að setja enn meira, og miklu meira, fjármagn í málaflokkinn á komandi árum og áratugum.“
Stjórnvöld verði að geta reitt sig á ráðgjöf þeirra sem best þekkja til um hvernig hægt sé að leysa úr þeim vanda sem er brýnastur og fjárfesta á sem árangursríkastan hátt í heilsu og lífsgæðum fólks. „Galgopaháttur í bland við rangfærslur hjálpar ekki til við það og enn síður lausnir byggðar á ósannindum.“
Forsætisráðherra gerir sérstakar athugasemdir við það sem Kári, eða Topparinn eins og hann er kallaður í greininni, telji gunguskap stjórnvalda gagnvart kröfuhöfum föllnu bankanna og ástæðu þess að ekki séu til 150 milljarðar króna til að skella í heilbrigðiskerfið á einu bretti. Sú fullyrðing að uppgjör slitabúa föllnu bankanna og losun fjármagnshafta skili bara 300 milljörðum króna í ríkissjóð en ekki 850, likt og boðað hafi verið, sé „eitt ómerkilegasta bull þeirra sem gremst að stjórnvöldum skuli hafa tekist það sem áður var sagt ómögulegt við losun hafta og uppgjör bankanna.“
Því næst segir Sigmundur Davíð að það sé merkilegt ef maður sem fari svo frjálslega með tölur getur rekið stórt fyrirtæki, og að minnsta kosti merkilegt ef hann geti rekið það með hagnaði. „Þótt losun hafta sé flókið mál vita flestir sem hafa gefið sér 5 mínútur eða svo í að kynna sér málið að þetta er ósatt. Stöðugleikaskattur myndi m.v. núverandi gengi skila um 622 milljörðum í fjárframlögum, auk annarra ráðstafana, en stöðugleikaframlag skilar um 500-600 milljörðum (og meiru ef með þarf) í formi peninga og eigna auk annarra ráðstafana upp á nokkur hundruð milljarða sem styrkja stöðu efnahagslífsins og ríkissjóðs. Sú leið tryggir að framlögin verða næg til að takast á við vandann, sem þeim er ætlað að leysa, sama hversu stór hann reynist.“
Ekki hægt að eyða öllum peningunum
Forsætisráðherra bendir á að ekki sé hægt að nota allt fjármagnið sem til fellur í framkvæmdir eða uppbyggingu innviða. „Slíkt myndi þýða að verið væri að nota fjármagn sem er til þess ætlað að verja efnahagslegan stöðugleika, með því að greiða niður skuldir, í að kynda undir verðbólgu og óstöðugleika. Með því, hins vegar, að nýta fjármagnið til að greiða niður skuldir og bæta afkomu ríkisins og samfélagsins til allrar framtíðar verður hægt, ár frá ári, á sjálfbæran hátt, að halda áfram að styrkja og efla heilbrigðiskerfið og aðrar grunnstoðir samfélagsins.“
Maður sem reki fyrirtæki hljóta að gera sér grein fyrir því að ekki sé hægt að reka ríkissjóð endalaust með tapi eða með því að taka bara meiri og meiri lán. „Það að eyða fullt af peningum á einu bretti, ýta undir verðbólgu og halda svo bara áfram að taka lán bitnar á þeim sem á eftir koma, þ.e. kynslóðum og þar með talið sjúklingum, framtíðarinnar.
En topparar láta staðreyndir eða framtíðina ekki þvælast mikið fyrir sér. Fyrir þá er aðalatriðið að vera maður líðandi stundar, sá sem fangar athyglina og verður vinsæll meðal trúgjarnra um sinn. Aðrir geta séð um að fást við afleiðingarnar.“
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.













































Athugasemdir