Jóhanna og Kári standa í ritdeilum

Ritdeila Kára Stef­áns­sonar og Jóhönnu Sig­urð­ar­dóttur heldur áfram. Kári segir rík­is­stjórn Sam­fylk­ingar og Vinstri grænna frekar hafa valið að bjarga bönkum og bora Vaðla­heið­ar­göng heldur en að bjarga heil­brigð­is­kerf­inu.

Kári Stef­áns­son, for­stjóri Íslenskrar erfða­grein­ingar, segir að rík­is­stjórn Jóhönnu Sig­urð­ar­dóttur hafi frekar valið að afla fjár til þess að bjarga bönkum og fjár­mála­stofn­unum, klára Hörpu og gera Vaðla­heið­ar­göng í stað þess að bjarga heil­brigð­is­kerf­inu. Þetta skrif­aði Kári á Facebook í gær­kvöldi sem and­svar við and­svari Jóhönnu í gær. Kári skrif­aði í gær­morg­unn að rík­is­stjórn Sam­fylk­ingar og Vinstri grænna hafði holað heil­brigð­is­kerfið að innan. Jóhanna svar­aði um hæl og sagði að Kári yrði að setja hlut­ina í rétt sam­hengi vilji hann láta taka sig alvar­lega. Rík­is­stjórnin hafi tekið við gríð­ar­lega slæmu búi, eða „erf­ið­ustu efna­hags­legu skil­yrði sem verið hafa í sögu lýð­veld­is­ins.“

Kári segir við þessu að efna­hagur þjóð­ar­innar hafi verið slæmur og og rík­is­fjár­mál í rusli.

„Og það hlýtur að hafa verið erfitt verk að taka við taumunum en þá vildu Jóhanna og hennar fólk og þá fengu þau. Það má vel vera að það séu til rök sem styðji þá skoðun að allt þetta hafi verið nauð­syn­legra en að við­halda vel­ferð­ar­kerf­inu óskertu en ég kaupi þau ein­fald­lega ekki,“ skrifar hann.

Það breyti engu hvort Alþjóða­gjald­eyr­is­sjóð­ur­inn hafi hrósað Íslend­ingum fyrir nið­ur­skurð­inn, eins og Jóhanna benti á, þar sem hann líti á sjóð­inn sem inn­heimtu­stofnun fyrir alþjóð­lega lán­ar­drottna.

„Ég er ekki í nokkrum vafa um að Jóhanna hefði viljað við­halda vel­ferð­ar­kerf­inu af því hún hefur um langan tíma verið máls­svari þeirra sem minna mega sín en það er bara eitt­hvað sem ger­ist innan höf­uð­skelja íslenskra stjórn­mála­manna þegar þeir setj­ast á valda­stóla.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár