Kári Stefánsson ætlar að handjárna næstu ríkisstjórn með undirskriftum

Kári Stef­áns­son, for­stjóri Íslenskrar erfða­grein­ingar, ætlar að safna und­ir­skriftum frá þjóð­inni sem nota á til að „hand­járna næstu rík­is­stjórn þannig að hún verði að setja það fé í heil­brigð­is­málin sem eðli­legt má telj­ast." Hann segir Íslend­inga nú eyða 8,7 pró­sent af vergri þjóð­ar­fram­leiðslu til heil­brigð­is­mála en með­al­talið í lönd­unum í kringum okkur sé rúm­lega tíu pró­sent. „Við erum lítil þjóð þannig að það er lík­legt að kostn­aður við heil­brigð­is­þjón­ustu á nef hvert sé tölu­vert meiri hér en á meðal stærri þjóð­anna. Þannig að ég held að það sé ekk­ert óeðli­legt að við stefnum að því að við eyddum í kringum 11 pró­sent af vergri þjóð­ar­fram­leiðslu til heil­brigð­is­mála." Þetta kom fram í við­tali við Kára í Morg­un­út­varpi Rásar 2 í morgun.

Kári seg­ist hafa verið að forma með sér, með hjálp góðra manna, hug­mynd að und­ir­skrifta­söfn­un­inni og veltir fyrir sér hvort ekki sé mögu­legt að ná meiri­hluta þjóð­ar­innar til að skrifa undir hana. „Og það sem ég er raun­veru­lega að segja er að það er kom­inn tími til þess að beita beinu lýð­ræði í mála­flokki eins og þessum. Beina lýð­ræðið er mögu­leiki í dag með net­að­gangi. Ég held að það sé hægt að ná til fólks­ins í land­inu og gefa því tæki­færi til þess að tjá sig um þennan mála­flokk á til­tölu­lega stuttum tíma. Ekki held ég að það verði þægi­legt fyrir þá sem setj­ast á ráð­herra­stóla næst að stija uppi með und­ir­skriftir, við skulum segja 80 pró­sent þjóð­ar­innar. Hvernig í ósköp­unum ættu þeir að hunsa slíkan vilja?"

Afturenda hinna loforðaglöðu

Það vakti gríð­ar­lega athygli þegar Kári skrif­aði grein í Frétta­blaðið 10. des­em­ber síð­ast­lið­inn þar sem hann hót­aði að safan 100 þús­und und­ir­skriftum gegn sitj­andi rík­is­stjórn. Í grein­inni sagði Kári m.a.: „Það er orðið lýðum ljóst að rík­is­stjórn Sig­mundar Davíðs mun ekki sitja lengur en sem nemur kjör­tíma­bil­inu. Ástæðan er marg­þætt og það á við hér eins og segir í Geir­mund­ar­sögu Helj­ar­skinns að: „það renna margir orsaka­lækir að einum ósi örlaga.“ Rýnum nú í þau spjöld í sögu rík­is­stjórn­ar­innar sem gera það að verkum að það er búið að skammta henni þá daga sem hún mun telja.“

Kári sagði að við það ástand sem er við lýði í heil­brigð­is­málum þjóð­ar­innar verði ekki lengur búið. Þess vegna vilji hann láta fjár­laga­nefnd Alþingis vita að ef hún breytir ekki fyr­ir­liggj­andi fjár­laga­frum­varpi fyrir árið 2016 á þann veg að mun meira fari til Lands­spít­al­ans en stefnt er að „munum við nokkrir félagar safna 100.000 und­ir­skriftum undir plagg sem hvetur lands­menn til þess að kjósa aldrei aftur þá stjórn­mála­flokka sem standa að þess­ari rík­is­stjórn vegna þess kulda og afskipta­leysis sem hún sýnir sjúkum og meiddum í okkar sam­fé­lagi. Söfnunin verður létt verk og löð­ur­mann­legt. Þjóðinni ofbýður.“

Í grein­inni setti Kári fram harða og ítar­lega gagn­rýni á fram­göngu rík­is­stjórn­ar­innar gagn­vart heil­brigð­is­kerf­inu og segir að hún hafi lofað því í aðdrag­anda síð­ustu kosn­inga að styðja betur við það. „Nú æxl­uð­ust mál þannig að aft­ur­endar hinna lof­orða­glöðu hafa vermt valda­stóla í tvö og hálft ár en heil­brigð­is­kerfið er í engu minna rusli en áður og það horfir ekki til bóta nema síður sé.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár