Segir skort á fjarveru Sigmundar Davíðs bitna á allri þjóðinni

Kári Stef­áns­son segir í opnu bréfi til for­sæt­is­ráð­herra: „Þú værir best geymdur ann­ars staðar og við aðra iðju eins og til dæmis á Flórída að fá útrás fyrir áhuga þinn á skipu­lags­málum með því að spila Matador við sjálfan þig.“

Kári Stef­áns­son, for­stjóri Íslenskrar erfða­grein­ingar og for­svars­maður stærstu und­ir­skrifta­söfn­unar Íslands­sög­unnar, segir skort á fjar­veru Sig­mundar Davíðs Gunn­laugs­sonar for­sæt­is­ráð­herra frá Alþingi bitna á allri þjóð­inni. Sig­mundur Davíð væri „best geymdur ann­ars staðar og við aðra iðju eins og til dæmis á Flórída að fá útrás fyrir áhuga þinn á skipu­lags­málum með því að spila Matador við sjálfan þig.“ Hann segir enn fremur að for­sæt­is­ráð­herra sé í stríði við sam­starfs­flokk sinn í rík­is­stjórn, Sjálf­stæð­is­flokk­inn, með til­lögu sinni um bygg­ingu nýs Lands­spít­ala við Víf­il­staði í Garðabæ, en sú til­laga er í and­stöðu við þá stefnu sem Kristján Þór Júl­í­us­son heil­brigð­is­ráð­herra hefur í mál­inu. Þetta er meðal þess sem fram kemur í harð­orðu opnu bréfi sem Kári skrifar til Sig­mundar Davíðs og birt­ist í Frétta­blað­inu í dag.

Kári og Sig­mundur Davíð hafa átt í opin­berum orða­skiptum allt frá því að Kári skrif­aði grein í des­em­ber síð­ast­liðnum þar sem hann sagð­ist ætla að safna 100 þús­und und­ir­skriftum gegn rík­is­stjórn­inni. Sig­mundur Davíð svar­aði Kára í grein þar sem hann vís­aði ítrekað til hans sem „Toppara“. Í byrjun febr­úar birt­ist síðan við­tal við Kára í Reykja­vík Grapevine þar sem hann kall­aði for­sæt­is­ráð­herra lít­inn tveggja ára offitu­sjúk­ling. Kári baðst síðar afsök­unar á ummæl­unum með eft­ir­far­andi orðum: „Þessi skítur á minni ábyrgð. Þessa lotu vann for­sæt­is­ráð­herra 10-0."

Rekur ýmsar sögur af Sigmundi Davíð

Með opnu bréfi sínu í dag er ljóst að Kári er að hefja nýja lotu. Þar hrósar hann Sigmundi Davíð fyrir inn­komu hans í stjórn­mál en segir að það hljóti að hafa verið ungum manni áfall að verða for­sæt­is­ráð­herra. Þá kom­ist hann ekki hærra upp, finn­ist hann ekki eiga skilið að vera á þeim stalli og fari að horfa niður. „Þá fer manni að sundla,“ segir Kári.

Hann rekur síðan orðróm um sam­skipti Sig­mundar Davíð og Bjarna Bene­dikts­sonar, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra. „Það er til dæmis fleyg sú saga að fyrir um það bil ári hafi Bjarni Ben hringt í þig klukkan þrjú um eft­ir­mið­dag og sagt að hann þyrfti að hitta þig þann dag­inn og þú hafir fall­ist á að gera það um fimm­leytið á skrif­stofu þinni. Þegar Bjarni kom var þig hvergi að finna vegna þess að þú varst á leið­inni til Flórída og hafðir verið í bílnum á leið­inni til Kefla­víkur þegar sím­talið átti sér stað. Hvers vegna í ósköp­unum sagð­irðu ekki Bjarna að þú værir á leið­inni í frí? Að öllum lík­indum vegna þess að þú varst með sam­visku­bit yfir því að fara. Bjána­skapur, afreks­maður eins og þú á skilið að taka sér öll þau frí sem hann þarf á að halda. Það er hins vegar ekki skyn­sam­legt að bregð­ast vopna­bróður sínum á þennan hátt fyrir ekki meira silfur.“

Kári gagn­rýnir Sigmund Davíð einnig harð­lega fyrir hug­myndir for­sæt­is­ráð­herra um við­bygg­ingu við Alþing­is­húsið eftir gam­alli tekn­ingu Guðjóns Sam­ú­els­sonar og flutn­ing á umsjón með húsa­friðun yfir í ráðu­neyti hans vegna áhuga for­sæt­is­ráð­herra á skipu­lagi og gömlum húsum. Kári segir m.a. að Guðjón Sam­ú­els­son beini „óþægi­lega mikið athygl­inni að gömlum tengslum Fram­sókn­ar­flokks­ins við evr­ópsk stjórn­mála­öfl for­tíð­ar­innar sem við viljum helst gleyma.“

Kári nefnir síðan umkvart­anir for­sæt­is­ráð­herra gagn­vart fjöl­miðlum, en Sig­mundur Davíð hefur ítrekað ásakað fjöl­miðla um árásir og óbil­gjarna umfjöllun frá því að hann tók við emb­ætti for­sæt­is­ráð­herra. „Þú hefur æ ofan í æ kvartað undan því að fjöl­miðlar séu ósann­gjarnir við þig og blaða­menn spyrji þig vondra spurn­inga. Þessi skoðun þín byggir á grund­vall­armis­skiln­ingi. Þegar blaða­menn henda í þig hörðum boltum ber þér ekki að líta á það sem ósann­gjarna aðferð til þess að meiða þig heldur tæki­færi til þess að sýna þjóð­inni að þú sért sterkur og fastur fyrir og vitir hvað þú sért að gera og getir tjáð þig um það þannig að það fari ekk­ert á milli mála. Það kastaði þá fyrst tólf­unum þegar þú brást við þeirri gagn­rýni að þú hefðir hagað þér kjána­lega í við­tali við Gísla Martein í sjón­varps­þætti með því að segja að hann hefði gert það líka. Gísli Marteinn er bara lít­ill strákur sem vinnur við sjón­varp en þú ert for­sæt­is­ráð­herra lýð­veld­is­ins?“

Stríðsyfirlýsing gegn samstarfsflokknum

En ástæða bréfs Kára á sem fyrr rætur að rekja til heil­brigð­is­mála, og mesta púðrið í því fer að ræða til­lögu sem Sig­mundur Davíð kynnti fyrir viku síðan um að nýr Lands­spít­ali verði byggður við Víf­ils­staði í Garðabæ í stað þess að hann rísi við Hring­braut, líkt og nú er unnið að. Kári segir að það sem mestu máli skipti sé að reisa hús yfir spít­al­ann sem fyrst. „Það er akkúrat hér sem glæpur þinn liggur, Sig­mundur. Þú lagðir fram Víf­ils­staða­til­lög­una án þess að ræða hana við heil­brigð­is­mála­ráð­herra sem fer með þau mál er lúta að Land­spít­al­anum eða fjár­mála­ráð­herra sem hafði yfir­um­sjón með smíð fjár­laga sem kveða á um fé til Hring­braut­ar­lausn­ar­innar. Það er með öllu for­dæm­is­laust að for­sæt­is­ráð­herra í sam­steypu­stjórn gangi opin­ber­lega gegn mik­il­vægum ákvörð­unum fagráð­herra úr sam­starfs­flokki hans í rík­is­stjórn. Það má leiða að því rök að þar með sért þú geng­inn í lið með stjórn­ar­and­stöð­unni og sitjir beggja vegna borðs, bæði sem for­sæt­is­ráð­herra og stjórn­ar­and­stöðu­þing­maður.

Bjarni Ben og Kristján Þór fréttu af til­lög­unni þinni með því að lesa um hana í dag­blöðum. Tillagan, sem í efni sínu var í það minnsta allt í lagi, var sett fram sem nokk­urs konar stríð­yf­ir­lýs­ing gegn sam­starfs­flokki þínum í rík­is­stjórn­inni og þeim aðilum sem veita heil­brigðis­málum for­ystu í land­inu. Sá eini úr þeirra hópi sem ég veit að þú tal­aðir við áður en þú hentir sprengj­unni var land­læknir sem ráð­lagði þér gegn þessu. Það er lík­legt að með þessu hafir þú aukið á þá erf­ið­leika sem við verðum að yfir­stíga til þess að húsið rísi fljótt. Hinn mögu­leik­inn er sá að menn ákveði ein­fald­lega að hunsa þig í þessu máli, for­sæt­is­ráð­herr­ann sjálfan, og haldi áfram eins og ekk­ert hafi í skorist. Það væri býsna auð­mýkj­andi fyrir ungan for­sæt­is­ráð­herra.“

Ætti að spila Matador við sjálfan sig á Flórída

Kári segir síðan að honum skilj­ist að Sig­mundur Davíð tali sjaldan við nokkurn mann, ekki einu sinni eigin þing­menn og greini­lega ekki sam­ráð­herra sína. „Sagan segir líka að þú sitjir löngum stundum einn í myrku her­bergi í Alþing­is­hús­inu. Það getur heldur ekki talist gott vegna þess að myrkrið er ekki bara fjar­vera ljóss heldur líka eitt­hvað vont sem leggst á sál­ina og sviptir hana kær­leika sem er eitt af þeim tækjum sem for­sæt­is­ráð­herra verður að nota í sínu dag­lega starfi.“

Sú meinta til­hneig­ing Sig­mundar Davíðs að ein­angra sig hafi gert það að verkum að gár­ung­arnir séu farnir að segja eft­ir­far­andi brand­ara: „Á fyrstu tveimur árum þínum í for­sæt­is­ráð­herra­stóli kvart­aði stjórnar­and­staðan oft undan fjar­veru þinni úr þing­sal og því að þú væri gjarnan í fríi og það næð­ist ekki í þig. Sannist hér hið forn­kveðna að eng­inn veit hvað átt hefur fyrr en misst hefur. Nú þjá­ist nefni­lega ekki bara stjórn­ar­and­staðan og stjórnin heldur þjóðin öll af skorti á fjar­veru þinni. Þú værir best geymdur ann­ars staðar og við aðra iðju eins og til dæmis á Flórída að fá útrás fyrir áhuga þinn á skipu­lags­málum með því að spila Matador við sjálfan þig. Þetta er ekki nema svona rétt mátu­lega fyndið en segir svo­lítið um það hvers konar augum sam­fé­lagið lítur þig þessa dag­ana.“

Í nið­ur­lagi bréfs­ins ráð­leggur Kári Sigmundi Davíð að fara í sjó­sund og finn­ast gaman að vera for­sæt­is­ráð­herra.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Kári

Fréttir

Segir Sigmund Davíð mögu­lega hafa framið land­ráð og eigi að segja af sér

Kári Stef­áns­son, for­stjóri Íslenskrar erfða­grein­ingar, segir að leiða megi að því rök að Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son for­sæt­is­ráð­herra hafi orðið upp­vís að land­ráðum. Hann telur að Sig­mundur Davíð þurfi að víkja úr stól for­sæt­is­ráð­herra. Þjóð­ar­leið­togi sem er að semja fyrir hönd þjóðar sinnar og hefur sem ein­stak­lingur hags­muna að gæta með þeim sem hann er að semja við og gegn þjóð­inni...

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár