Sjö sekir um misferli vegna plastbarkamálsins

Karol­inska stofn­unin hefur sak­fellt sjö rann­sókn­ar­menn vegna aðkomu sína að plast­barka­mál­inu svo­kall­aða.

Nýr barki græddur inn í manneskju árið 2010.
Nýr barki græddur inn í mann­eskju árið 2010. Mynd: EPA

Sjö rann­sókn­ar­menn Karol­inska stofn­un­ar­innar eru fundnir sekir vegna mis­ferlis í starfi í grein­ar­skrifum um plast­barka­málið. Þetta kemur fram í yfir­lýs­ingu frá stofn­un­inni fyrr í dag.

Grein­arnar sem um ræðir voru sex tals­ins og birt­ust í tíma­rit­unum The Lancet, Bioma­ter­i­als, Journal of Biomedical Mater­i­als Research og Thoracic Surgery Clinics. Ítalski skurð­lækn­ir­inn Paolo Macchiarini var meðal aðal­höf­unda grein­anna, en rík­is­sak­sókn­ari felldi niður ákæru gegn honum fyrir mann­dráp af gáleysi síð­asta haust.

Í til­kynn­ing­unni segir að ákvörð­unin hafi verið tekin vegna raðar alvar­legra rang­færslna og mis­vísandi upp­lýs­inga í rit­rýndu fræði­grein­unum. Þá verða sjö höf­undar fundnir sekir, en til við­bótar fái 31 höf­undur ávít­anir án þess að ger­ast sekir um mis­ferli. Aðrir fimm með­höf­undar grein­anna telj­ast ekki hafa brotið af sér á neinn hátt og fá því ekki ávít­anir af neinu tagi. Samhliða þessu skipar Karol­inska stofn­unin að grein­arnar sex verði allar teknar úr birt­ingu.

Uppljóstrari fundinn sekur

Meðal þeirra sem fundnir voru sekir var einn af upp­ljóstr­urum máls­ins sem til­kynnti Macchiarini vegna gruns um mis­ferlis í rann­sóknum árið 2014. Ole Petter Ottersen, rektor Karol­inska stofn­un­ar­innar, segir í til­kynn­ing­unni að þrátt fyrir upp­ljóstr­un­ina hafi rann­sókn­ar­mað­ur­inn átt virka aðkomu að mál­inu og geti ekki vikið sér undan þeirri ábyrgð.

[links]For­stjóri Land­spít­ala og rektor Háskóla Íslands skip­uðu óháða rann­sókn­ar­nefnd sem rann­sak­aði aðkomu stofn­an­anna og starfs­manna þeirra að mál­inu. Í skýrslu nefnd­ar­innar eru fjallað um aðkomu Tómasar Guð­bjarts­sonar, pró­fess­ors við lækna­deild HÍ og yfir­læknis á Land­spít­al­anum, en hann var meðal með­höf­unda grein­ar­innar sem birt­ist í The Lancet árið 2011, ásamt Óskari Ein­ars­syni, sér­fræð­ingi í lungna­lækn­ingum við Land­spít­ala. Jón Atli Bene­dikts­son, rektor HÍ,tók undir nið­ur­stöður skýrsl­unnar og segir vinnu­brögð Tómasar hafi verið aðfinnslu­verð en muni ekki beita neinum við­ur­lögum.

Kjarninn hefur áður fjallað um íslensku skýrsl­una, en þar virð­ist mörgum þáttum í aðkomu íslenskra stofn­anna að mál­inu hafa verið ábóta­vant.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár