Skýrsla um plastbarkamálið áfellisdómur

Alvar­legar ávirð­ingar koma fram í nið­ur­stöðum íslensku rann­sókn­ar­nefnd­ar­innar sem Land­spít­ali og Háskóli Íslands settu á stofn og kynntar voru í gær en við lestur skýrsl­unnar virð­ist sem mörgum þáttum hafi verið mjög ábóta­vant.

Gervibarki græddur í manneskju.
Gervi­barki græddur í mann­eskju. Mynd: EPA

Í nið­ur­stöðum íslensku rann­sókn­ar­nefnd­ar­innar sem Land­spít­ali og Háskóli Íslands settu á stofn og kynntar voru í gær kom fram að lífi þriggja ein­stak­linga hafi verið kerf­is­bundið stofnað í hættu vegna plast­barka­ígræðslu á Karol­inska-sjúkra­hús­inu og að allir hafi þeir átt undir högg að sækja í sam­fé­lag­inu. Þetta hafi verið gert á grund­velli áforma stofn­un­ar­innar um upp­bygg­ingu mið­stöðvar fyrir háþró­aðar aðgerðir á önd­un­ar­vegi og er að mati nefnd­ar­innar ekki hægt að úti­loka að með þessu hafi 2. gr. mann­rétt­inda­sátt­mála Evrópu verið brot­inn.

Fram kom einnig að ekki verði annað séð en að Tómasi Guð­bjarts­syni, lækni Andemariam Beyene, sem fyrstur gekkst undir plast­barka­ígræðslu í júní 2011, hafi gengið gott til með plast­barka­ígræðsl­unni en að hann hafi látið blekkj­ast af Maccharini og breytt til­vísun en það varði lög um lækna, 11. gr., sem þá voru í gildi um vönduð vinnu­brögð og jafn­framt að ákvarð­ana­taka í aðdrag­anda aðgerð­ar­innar hafi verið ómark­viss.

Rann­sókn­ar­nefnd­ina skipa dr. Páll Hreins­son dóm­ari við EFTA-dóm­stól­inn, dr. María Sig­ur­jóns­dóttir, geð­læknir við rétt­ar­geð­deild­ina í Dikemark í Noregi og Georg Bjarna­son, krabba­meins­læknir og vís­inda­maður við Sunnybrook-stofn­un­ina í Toronto í Kanada.

Skýrslan varpar skýr­ara ljósi á málið og sýnir hversu brýnt var að rann­saka þátt íslenskra stofn­ana í mál­inu eins og fjallað var um í frétta­skýr­ingu Kjarnans í mars 2016.

Upp­haf­lega var Anemarian Beyene, Eretr­íu­manni sem var við nám í Háskóla Íslands, vísað til Karol­inska-sjúkra­húss­ins til að fá fag­legt mat á mögu­legu með­ferð­ar­úr­ræði vegna krabba­meins í barka en Beyene var með æxli sem sagt var næstum loka bark­anum sökum umfangs. Þá hafi Paolo Macchiarini, pró­fessor við Karol­inska-stofn­un­ina, lagt hart að Beyene að gang­ast undir plast­barka­ígræðslu sem varð raunin, aðgerð sem ekk­ert lá stað­fest fyrir um að myndi takast og engin til­skilin leyfi voru fyrir.

Haft er eftir Beyene í rann­sókn­ar­skýrsl­unni að hann hafi verið við það að hætta við aðgerð­ina þegar hann vissi að hún hafði ekki verið fram­kvæmd á mann­eskju. „Þá tal­aði ég við Tómas, ætt­ingja, lækna og skurð­lækna og sann­færð­ist um að fara í aðgerð­ina.”

Bréfaskipti Macchiarini og Tómasar veita einnig vísbend­ingu um að Tómas hefði mátt gruna að verið var að ræða um ígræðslu á barka úr gervi­efni. Þannig lýsir Macchiarini þessum með­ferð­ar­kosti í bréfi til Tómasar 15. apríl 2011 sem „a tis­sue engineered trans­plant using a new technique via nanomedicine approach.“ Þessar upp­lýs­ingar koma því fram tæpum 2 mán­uðum fyrir aðgerð­ina og mætti því ætla að starfs­fólk Land­spít­ala hafi haft nægan tíma til að kanna þetta mögu­lega með­ferð­ar­úr­ræði nánar. Rétt er þó að taka fram að í við­tali við rann­sókn­ar­nefnd­ina síðar sagð­ist Tómas ekki hafa skilið þessi hug­tök.

Í bréfi Macchiarini til Tómasar frá 20. apríl 2011 segir m.a.: „A review of my mea­sures by your best radi­olog­ist so that we could generate a tis­sue engineered graft. In very simple words, we need to estimate what his normal trachea (including width of the wall) would be without tumor, prox­imal above the tumor and distally at the origin of the main bronchi. With this mea­sures we could make a scaffold and eventu­ally use it if primary reconstruction would not be feasi­ble". Hér er því enn verið að ræða um ein­hvers konar gervi­barka­ígræðslu. Áður hafði verið leitað til læknis á Massachusetts General Hospital í Boston, eins virtasta spít­ala í heimi, sem ráð­lagði laser-aðgerð á æxli í barka Beyene en það var ekki nefnt í til­vís­un­inni.

Í skýrslu rann­sókn­ar­nefnd­ar­innar segir: ,,Það er mat nefnd­ar­innar að Tómas Guð­bjarts­son yfir­læknir hafi gert sér grein fyrir því að Macchiarini og sam­starfs­menn hans væru í það minnsta að velta fyrir sér barkaígræðslu sem með­ferð­arúrræði fyrir Andemariam áður en hann var inn­rit­aður á Karol­inska-háskólasjúkrahúsið. Fram­an­greint orða­lag umsóknar Tómasar til Sjúkra­trygg­inga Íslands stað­festir það, en þar segir m.a.: „or possi­bly curative resection with or without a trachea-trans­plant.“

Ferlið í aðdraganda aðgerðarinnar virðist hafa verið nokkuð óljóst

Nið­ur­stöður rann­sókn­ar­nefnd­ar­innar eru á þá leið að Tómas hafi verið blekktur til að breyta texta í til­vísun Andemari­ams undir því yfir­skyni að skjölin væru ætluð til að fá leyfi siða­nefndar fyrir aðgerð­inni. Mark­miðið var að sýna fram á að plast­barka­að­gerðin væri eini val­kost­ur­inn en fram kemur í skýrsl­unni að slík aðgerð hafði aldrei verið gerð á mann­eskju. Siða­nefnd­inni sænsku bár­ust aldrei þau skjöl en sænska teymið, sem var undir for­ystu Macchiarini, tal­aði um til­vís­un­ina frá Tómasi sem hindrun, sem ryðja þyrfti úr vegi.

[links]

Með bréfi, dag­settu 12. maí 2011, fór Maccharini fram á að Tómas breytti lýsingu sinni og mati á sjúkrasögu Andemari­ams til þess að setja auk­inn þrýsting á siða­nefnd um að fall­ast á beiðni um plast­barka­ígræðslu. Hinn breytti texti fól í sér að ekki var lengur gert ráð fyrir mögu­leika á laser-aðgerð á krabba­mein­inu, heldur aðeins hefð­bund­inni skurð­að­gerð með eða án ígræðslu. Þessi breyt­ing sem Tómas gerði síðar á til­vís­un­inni, er litin alvar­legum augum, því hún sam­rým­ist ekki góðum starfs­háttum lækna og hafi tæp­lega verið í sam­ræmi við 11. gr. lækna­laga en þar sagði að lækni bæri að sýna varkárni og nákvæmni við útgáfu vott­orða og ann­arra lækna­yf­irlýsinga.

Tómas bar því við að Macchiarini hafi blekkt sig. Í við­tali við nefnd­ina síðar taldi Tómas að hann hefði ekki átt að verða við þess­ari ósk Macchiarini. Hann hafi ætlað að greiða götu Andemari­ams að aðgerð sem gæti bjargað lífi hans. Tómas við­ur­kenndi að ekki hefðu verið for­sendur til þess að útil­oka laser-aðgerð á krabba­mein­inu á þessum tíma.

Tómas hafnar því að hafa vitað um áætlanir Macchiarini

Spyrja má hvort ekki hefði verið eðli­legt að fram færi umræða um svo alvar­legt og sér­stakt mál þar sem læknar og yfir­menn á Land­spít­al­anum hefðu komið að málum. Rann­sókn­ar­nefndin telur í skýrsl­unni að í ljósi þess hversu óvana­legar hug­myndir komu fram í bréfum Macchiarinis hafi það vakið athygli að Tómas virð­ist ekki hafa ráðfært sig við aðra sérfræð­inga á Landspítala um þá með­ferð­ar­kosti sem hann hafði kynnt Tómasi. Í and­mæla­bréfi Tómasar vísar hann því á bug að ein­hver skylda hafi hvílt á honum að ræða málið við aðra lækna. Um þetta hefði þurft að fara fram víð­tæk umræða á Land­spít­al­anum og ekki verður annað séð en að tími hefði gef­ist til þess frá miðjum apríl þegar mögu­leiki á braut­ryðj­andi aðgerð kom fyrst upp.

Þá er fjallað um þátt siða­nefnda í rann­sókn­ar­skýrsl­unni. Víðast gildir sú regla að ekki þarf leyfi siða­nefndar eða vísinda­siða­nefndar fyrir aðgerðum sem gagn­reynd þekk­ing á sviði heil­brigð­is­þjónustu liggur fyrir um. Það verður að ætla að Tómasi hafi mátt vera ljóst af bréfaskiptum við Macchiarini að um var að ræða til­rauna­að­gerð þar sem hann greindi Tómasi frá að hann þyrfti til­teknar upplýsingar frá honum til þess að geta sótt um leyfi siða­nefndar.

Í viðtölum við nefnd­ina hefur Tómas hafnað því að honum hafi í reynd verið ljóst að Macchiarini var að velta fyrir sér gervi­barka­að­gerð, þar sem hann hafi verið undir ein­stak­lega miklu starfsálagi á þessum tíma, próf hafi staðið yfir í lækna­deild auk ann­arra starfs­skyldna sem hvílt hafi á honum á Landspítala eins og segir í rann­sókn­ar­skýrsl­unni.

Vísindamisferli í Lancet-greininni

Þá er einnig gerð alvar­leg athuga­semd við vís­inda­störf í rann­sókn­ar­skýrsl­unni sem snúa að Lancet-grein­inni (Proof-of-Concept). Nefndin greindi frá því á fund­inum í gær að Tómas hafi reynt að draga úr hástemmdri lýs­ingu á bata Andemari­ams og vildi að meiri tíma yrði varið í ritun grein­ar­innar. Tómas valdi þó ekki að segja sig frá grein­inni vegna ótta um að það gæti haft slæm áhrif á með­ferð Andemari­ams. Grein­inni hafði verið hafnað af öðru mjög virtu lækn­is­fræði­tíma­riti, The New England Journal of Medicine, áður en hún var send til The Lancet.

Óskar Ein­ars­son, sér­fræð­ingur í lungna­lækn­ingum við Land­spít­ala, er einnig með­höf­undur Lancet-grein­ar­innar ásamt Tómasi, en hann fram­kvæmdi berkju­spegl­anir á Andemariam sem voru hluti af eft­ir­með­ferð hans. Óskar, sem hefur ekki stöðu við Háskóla Íslands, hefur sent frá sér yfir­lý­ingu þar sem hann harmar þátt sinn í Lancet-grein­inni.

Þá skorti leyfi til að nota blóð­sýni úr Andemariam, berkju­spegl­anir og sneið­myndir en Tómas bar fyrir sig að hann taldi að um eðli­lega þætti í klínískri með­ferð hans hafi verið að ræða. Nið­ur­stöður þess­arar þátta skil­uðu sér hins vegar í Lancet-grein­inni. Leyfi til að safna og nýta þessar upp­lýs­ingar skorti og heldur Páll Hreins­son því fram að gera þurfi skýran grein­ar­mun á vís­inda­starfi og klínísku starfi lækna á Land­spít­ala. Þetta eru stór orð sem gefa til kynna að vís­inda­menn Land­spít­ala og Háskóla Íslands séu ekki með réttan skiln­ing á eða skorti þekk­ingu á hvað heyri undir vís­inda­rann­sókn.

Vís­inda­mis­ferli í Lancet-grein­inni og að aðgæslu hafi verið ábóta­vant hjá Tómasi í sam­skiptum við Macchiarini um plast­barka­ígræðslu Andemari­ams Beyene eru meðal helstu nið­ur­stöður rann­sókn­ar­nefndar sem rann­sak­aði plast­barka­málið. Einnig kom fram að plast­barka­ígræðslan hafi ekki verið besti kostur fyrir sjúk­ling­inn, heldur laser-með­ferð sem ráð­lögð var af lækni á Massachusetts General Hospital í Boston. Ekki virð­ist hafa verið leitað eftir áliti fleiri sér­fræð­inga, til dæmis á Land­spít­ala, um hvor með­ferðin væri væn­legri.

Ekki nægar upplýsingar um málþingið HÍ

Mál­þingið sem haldið var í Háskóla Íslands var lítið til umræðu á kynn­ing­ar­fundi rann­sókn­ar­nefnd­ar­innar. Mál­þingið var haldið í til­efni að eitt ár var liðið frá plast­barka­ígræðsl­unni í Andemariam Beyene. Ef marka má frétta­fluttn­ing af þing­inu þá má ætla að þessi braut­ryðj­andi aðgerð hefði heppn­ast mjög vel. Ástæða þess að mál­þingið var ekki tekið fyrir sér­stak­lega er að það hafi ekki verið tekið upp og því engar áreið­an­legar upp­lýs­ingar til um hvað þar fór fram.

Þó var nefnt að það hefði verið óæski­legt að Andemariam skyldi sjálfur tala á þing­inu því staða hans hafi verið erfið og hann hafi átt mikið undir læknum sínum. Þess má þó geta að Andemariam var þá þegar kom­inn með stoð­net til að halda bark­anum opnum og hefur mál­þingið verið gagn­rýnt, m.a. af Kjell Asplund, for­manni siða­ráðs lækn­inga í Svíþjóð og fyrr­ver­andi land­lækni Sví­þjóðar en hann var gestur á mál­þingi í H.Í. síð­ast­lið­inn vetur.

Kostnaður Sjúkratrygginga Íslands óuppgefinn

Sjúkra­trygg­ingar Íslands tóku þátt í kostn­að­inum sem ekki hefur feng­ist upp­gef­inn. Sjúkra­trygg­ingar Íslands greiddu ekki fyrir aðgerð­ina sjálfa en annar kostn­aður hefur að öllum lík­indum fallið á Íslend­inga. Afar skýrar reglur eru um aðgerðir sem ekki eru við­ur­kenndar eins og plast­barka­ígræðsl­una. Í reglu­gerð um brýna lækn­is­með­ferð erlendis frá árinu 2010 segir að með­ferðin skuli vera alþjóð­lega við­ur­kennd og byggj­ast á gagn­reyndri þekk­ingu á sviði lækn­is­fræði og að ekki sé heim­ilt að taka þátt í kostn­aði við til­rauna­með­ferð.

Samkvæmt frétt frá land­lækni í maí 2015 segir að hér hafi klár­lega verið um til­rauna­með­ferð að ræða. Hér hlýtur að hafa komið ákvörðun frá fleirum en sigl­inga­nefnd í máli sem hlýtur mjög að þurfa sér­þekk­ingu eins og til dæmis er á Land­spít­ala.

Eft­ir­lits­stofnun heilsu- og félags­mála í Svíþjóð taldi aðgerðir Maccharini ólög­legar og að bæri að líta á þær sem til­raunir á mönnum. Sænska vís­inda­siða­nefndin taldi aðgerð­irnar hneyksli og að ekki hefði verið sýnt fram á að aðgerð­irnar hefðu verið gerðar í lækn­inga­skyni. Á þeim tíma taldi Karol­inska-stofn­unin að Maccharini væri ekki sekur um vís­inda­legt mis­ferli.

Læknum sjúkratrygginga stillt upp við vegg

„Í við­tali við nefnd­ina 25. janúar 2017 kvaðst Magnús Páll Alberts­son, læknir Sjúkra­trygg­inga Íslands, hafa rætt við Birgi Jak­obs­son, þá for­stjóra Karol­inska háskólasjúkrahússins, hinn 31. maí 2011. Eftir nokkrar umræður hefði Birgir ákveðið að fá Johan Permert til þess að koma með tillögu að því hvernig hægt væri að leysa vandamálið. Sjúkling­ur­inn var þá inn­rit­aður á sjúkrahúsið og jafn­ljóst að Sjúkra­trygg­ingum Íslands var óheim­ilt að greiða fyrir til­rauna­með­ferð. Þeim hefði hins vegar verið stillt upp við vegg. Sjúkling­ur­inn var þegar inn­rit­aður og var að deyja en í boði hafi verið þessi með­ferð sem sögð var geta bjargað lífi hans. Johan Permert hefði síðan rætt við sig í síma sama dag og tvisvar dag­inn eftir og hefði hann samið drög að samn­ingi sem á end­anum hefði leyst málið.

Markmið lækn­is­fræði­legu rannsóknar­innar og með­ferð­ar­innar sem var í gangi á K var að kanna for­sendur fyrir, og væru þær fyrir hendi, ígræðslu nýrrar teg­undar gervi­barka sem PM hafði þróað og sagt var þá að virk­aði. Sagt var að eng­inn annar með­ferð­ar­kostur en aðferð PM væri fyrir hendi hvorki á K né ann­ars staðar í heim­inum. Að sögn voru PM, íslenskir sérfræð­ingar og sérfræð­ingar á HNE-deild K sammála um að ígræðslu­með­ferðin, sem lögð var til, væri eina mögulega með­ferðin sem til væri til að hjálpa sjúklingnum. Ástand hans var sagt mjög alvar­legt og myndi leiða til dauða án með­ferðar.

Greini­legt var að rannsókn, und­irbúningur með­ferðar og flutn­ing­ur­inn á K var gerður að frum­kvæði og sam­kvæmt sam­komu­lagi milli lækna á Íslandi og á K. Sjúkling­ur­inn og allir aðrir málsað­ilar bjugg­ust við að aðgerðin yrði umfangs­mikil væri hún lækn­is­fræði­lega möguleg. Greini­legt var að umsvifin á K höfðu gerst án þess að nauð­syn­leg stjórnun­ar­leg sam­skipti hefðu átt sér stað hvorki á Íslandi né á K. Engir samn­ingar voru til um greiðslu kostn­aðar vegna gerðra og yfir­stand­andi rannsókna og með­ferðar á K. Loks var ekki til sam­komu­lag um end­ur­gjald fyrir hugs­an­lega ígræðslu,” segir í skýrsl­unni.

Bótaskyldur gagnvart ekkju Andemariam og úrbótatillögur

Í nið­ur­stöðum rann­sókn­ar­skýrsl­unnar kemur fram að ekkja Andemariam Beyene geti kraf­ist bóta frá Karol­inska-stofn­un­inni vegna plast­barka­ígræðsl­unnar og að ahuga beri hvort Land­spít­ali sé bóta­skyldur vegna þess hvernig staðið var að vísinda­rannsókn á Andemariam þar og með­ferð persónuupplýsinga um hann í vísinda­grein­inni í Lancet.

Telur nefndin ástæðu til að Landspítali taki til athug­unar hvort ekki sé rétt að veita ekkju Andemari­ams fjárhags­að­stoð svo hún geti ráðið sér lögmann til að fara yfir það hvort um bótaskyld atvik sé um að ræða. Ástæðan er ekki síst sú að mál þetta á sér vart neina hlið­stæðu á Íslandi og því er ástæða til að Landspítali sýni sérstakt frum­kvæði við að leysa úr málinu. Þá beri að athuga hvort Land­spít­ali sé bóta­skyldur vegna þess hvernig var staðið að vís­inda­rann­sókn á Andemariam og með­ferð per­sónu­upp­lýs­inga um hann í Lancet-grein­inni. Ekkja Andemari­ams hefur komið þeim upplýsingum á fram­færi við for­mann nefnd­ar­innar að Karol­inska-háskólasjúkrahúsið hafi ekki haft sam­band við hana til þess að fara yfir mögulega bótaskyldu fyrir þau mistök sem gerð voru í máli Andemari­ams.

Ljóst er að þessi umfangs­mikla skýrsla gefur til kynna fjöl­mörg atriði sem betur máttu fara í þessu ferli hér á landi og fróð­legt að sjá hvernig hlut­að­eig­andi stofn­anir munu bregð­ast við.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár