Yfirlýsing Óskars vegna plastbarkamálsins

Skýrslu rann­sókn­ar­nefnda Land­spít­al­ans og Háskóla Íslands var skilað í dag.

Óskar Ein­ars­son, læknir, hefur sent frá sér yfir­lýs­ingu vegna „plast­barka­máls­ins“ svo­kall­aða. Hann seg­ist engan þátt hafa tekið í und­ir­bún­ingi eða fram­kvæmd aðgerðar, sem um er fjallað í skýrslu rann­sókn­ar­nefndar Land­spít­al­ans og Háskóla Íslands sem kynnt var í dag.

Yfir­lýs­ing Óskars fer hér að neðan í heild:

„Í kjöl­far þess að skýrsla nefndar Land­spít­ala (LSH) og Háskóla Íslands (HÍ) um „plast­barka­málið” svo­nefnda hefur verið gerð opin­ber, og þar sem borið hefur á því í fréttum að ekki hafi verið greint rétt frá varð­andi öll atvik hvað mig varðar, vil ég koma á fram­færi nokkrum atriðum til að skýra minn þátt:

1. Ég kom ekki að þeirri ákvörðun að leitað var til Karol­inska Sjúkra­hús­ins (KS) um annað álit (second opinion) á með­ferð­ar­úr­ræðum fyrir við­kom­andi sjúk­ling.

2. Ég tók ekki þátt í und­ir­bún­ingi eða fram­kvæmd aðgerð­ar­innar. Mér var ekki kunn­ugt um að læknar KS væru að íhuga plast­barka­ígræðslu. Ég heyrði hennar fyrst getið eftir á þegar sjúk­lingur var fluttur á LSH til eft­ir­með­ferðar.

3. Mér var þá falið að sinna lækn­is­með­ferð sjúk­lings við inn­lögn á lungna­deild LSH. Ég kom hvergi að þeirri ákvörðun en sá enga ástæðu til þess að víkj­ast undan þeim starfs­skyldum. Ég nálg­að­ist það verk­efni sem lækn­is­verk og leit ekki á mig sem þátt­tak­anda í vís­inda­til­raun, enda er ráðn­ing mín við LSH af lækn­is­fræði­legum en ekki vís­inda­legum toga. Ég hafði á þessum tíma enga ástæðu til þess að draga í efa óskir skurðteymis KS um upp­lýs­ingar varð­andi ástand sjúk­lings, þar með talið óskir um sýni frá sjúk­ling.

4. Ég harma að hafa ekki borið gæfu til að neita að ger­ast með­höf­undur að grein í lækna­tíma­ritun Lancet þegar ekki var orðið við ábend­ingum um breytt orða­lag grein­ar­innar. Á þessum tíma hafði ég engar for­sendur til þess að efast um heil­indi grein­ar­höf­unda og ann­arra sem stóðu að aðgerð­inni og því ekki kunn­ugt um þær vís­vit­andi blekk­ingar og fals­anir sem komið hafa í ljós m.a. varð­andi leyfi þar til bærra aðila í Svíþjóð. Í árs­byrjun 2017 sendi ég rit­stjóra Lancet erindi um að ég yrði fjar­lægður sem með­höf­undur grein­ar­innar.

5. Ég hef aldrei haldið erindi eða verið höf­undur á öðrum greinum sem fjalla um þetta efni. Ég var hvorki upp­lýstur um né við­staddur mál­þing Háskóla Íslands vorið 2012 um stofn­frumur í skurð­lækn­ingum, í til­efni þess að ár var liðið frá umræddri plast­barka­ígræðslu.

6. Ég hef aldrei hitt eða rætt við hinn umdeilda skurð­lækni Macchiarini, né nokkurn úr hans rann­sóknar/aðgerð­arteymi annan en Tómas Guð­bjarts­son.

Ég mun nú gefa mér tíma til að lesa skýrslu nefnd­ar­innar og í fram­hald­inu ráð­færa mig við yfir­menn mína á LSH um efni hennar.

Virð­ing­ar­fyllst, Óskar Ein­ars­son.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár