Bera íslenskar stofnanir ábyrgð í gervibarkamálinu?

Gervibarki.
Gervi­barki. Mynd: EPA

Málinu um ígræðslu gervi­barka í Eritíu­mann­inn Andemariam Beyene, sem var fyrsti mað­ur­inn á heims­vísu til að und­ir­gang­ast slíka aðgerð, er hvergi nærri lokið. Samkvæmt því sem fram hefur komið þá eru gögn frá Íslandi talin vera lyk­il­gögn í rann­sókn á mis­ferli og svikum ítalska pró­fess­ors­ins Paolo Macchiarini sem gerði til­rauna­að­gerðir á barka­ígræðslu í fólk við Karol­inska-sjúkra­húsið í Stokk­hólmi, en hann hefur nú verið rek­inn. Ástæðan er að hann hafði aldrei til­skilin leyfi til að gera aðgerð­irnar eða nota gervi­bark­ann. Þá hafi hann grafið undan trausti almenn­ings á Karol­inska-sjúkra­hús­inu með hátt­erni sínu og gerst sekur um van­rækslu en Macchiarini sinnti í engu eft­ir­liti með sjúk­lingum sínum eða upp­lýsti þá um mögu­legar hlið­ar­verk­anir gervi­barka­að­gerð­anna.

Rík­is­stjórn Sví­þjóðar hefur nú sett á stofn nefnd til að skipa nýja yfir­stjórn yfir Karol­inska-stofn­un­ina í kjöl­far þessa hneyksl­is­máls.

For­ráða­menn Karol­inska-stofn­un­ar­innar halda því fram að Íslend­ingar hafi ekki greint rétt frá ástandi Beyene og varð það kveikjan að rann­sókn máls­ins. Þá eru ásak­anir um að vill­andi upp­lýs­ingar um ástand Beyene, bæði í hinu virta lækn­is­fræði­tíma­riti Lancet og á mál­þingi sem haldið var í Háskóla Íslands, sem hafi orðið til þess að fleiri und­ir­geng­ust gervi­barka­ígræðslu með hörmu­legum afleið­ingum en flestir þeir sjúk­lingar eru látnir.

Um er að ræða alþjóð­legt hneyksl­is­mál sem teng­ist Íslandi, en málið er með­höndlað sem saka­mál og er til rann­sóknar í Svíþjóð.

Ef ásak­anir á hendur Paolo Maccharini og Karol­inska-stofn­un­inni reyn­ast á rökum reistar er vís­ast um að ræða eitt­hvert stærsta hneyksl­is­mál í sögu lækna­vís­ind­anna á síð­ustu ára­tugum, og kann að leiða til þungrar refs­ingar.

Á meðan stofn­anir hér­lendis, Land­spít­ali (LSH), Sjúkra­trygg­ingar Íslands (SÍ) og Háskóli Íslands (HÍ) sjá ekki ástæðu til að hefja rann­sókn á þessu mik­il­væga máli, jafn­vel þótt fyrsti sjúk­ling­ur­inn til að und­ir­gang­ast til­rauna­að­gerð­ina hafi komið héðan og til­skilin leyfi hafi ekki verið fyrir hendi, þá logar allt vís­inda­sam­fé­lagið bæði í Svíþjóð og víða á Vest­ur­löndum vegna máls­ins.

Saga málsins

Erít­reu­mað­ur­inn Andemariam Beyene var við meist­ara­nám í Háskóla Íslands (HÍ) þegar hann gekkst undir gervi­barka­ígræðslu sem var til­rauna­með­ferð á Karol­inska-sjúkra­hús­inu í Stokk­hólmi í júlí 2011. Hann var álit­inn vera með ólækn­andi krabba­mein í hálsi og hafði læknir hans, Tómas Guð­bjarts­son, leitað ráða bæði í Boston og síðar hjá Karol­inska-sjúkra­hús­inu um hvað væri hægt að gera fyrir Beyene. Þaðan kom upp­á­stunga um að Beyene geng­ist undir gervi­barka­ígræðslu hjá Paolo Maccharini, pró­fessor við Karol­inska-stofn­un­ina, og sú varð raunin.

Þessi nýstár­lega aðgerð byggð­ist á með­höndlun gervi­barka með stofn­frumum sem áður höfðu verið ein­angr­aðar úr sjúk­lingnum sem átti að leiða til mynd­unar önd­un­ar­færa­vefs og ef allt hefði verið með felldu hefði bark­inn átt að vera sveigj­an­legur. Barkinn yrði þannig því sem næst eðli­legur og eft­ir­gef­an­legur og ætti að starfa eðli­lega.

Hvernig Beyene vegn­aði eftir aðgerð­ina hefur orðið að ágrein­ings­efni og hafa komið fram vís­bend­ingar um að ástand barka hans hafi verið miður gott þegar hann gekkst undir berkju­speglun á LSH fáeinum mán­uðum eftir ígræðsl­una, eða um það leyti er grein sem lýsti aðgerð­inni sem árang­urs­ríkri birt­ist í hinu virta lækn­is­fræði­tíma­riti Lancet.

Tveir virtir íslenskir læknar hafa sog­ast inn í atburð­ar­rás þessa hneyk­l­is­máls. Í frétta­flutn­ingi hér á landi hefur kast­ljósið að miklu leyti beinst að þeirra þætti í þessu sorg­lega máli.

Villandi upplýsingar í Lancet og málþing í HÍ ruddu brautina fyrir fleiri aðgerðir

Í grein sem birt­ist í Lancet ein­ungis fimm mán­uðum eftir til­rauna­að­gerð­ina kom fram að hún hefði tek­ist vel, að bark­inn væri „næstum eðli­legur“. Lancet-greinin hefur enn ekki verið dregin til baka og hlýtur það að þýða að höf­undar hennar telja upp­lýs­ing­arnar þar vera réttar. Íslensku lækn­arnir eru báðir með­höf­undar hennar og eru því sam­á­byrgir fyrir því sem þar stendur. Greinin ásamt mál­þingi sem haldið var í HÍ þar sem kynntar voru jákvæðar nið­ur­stöður til­rauna­að­gerð­ar­innar, ruddu braut­ina fyrir Maccharini til að hefja fleiri aðgerðir á fólki með hörmu­legum afleið­ingum, fólki sem jafn­vel lifði ágætu lífi fyrir.

Lækna­deild HÍ kom að mál­þing­inu sem var haldið í til­efni þess að ár var liðið frá til­rauna­að­gerð­inni, þáver­andi for­seti lækna­deildar, Andemariam og nokkrir pró­fess­orar við lækna­deild­ina voru þar. Paolo Maccharini var meðal ræðu­manna á mál­þing­inu, Tómas Guð­bjarts­son, læknir Beyene og einn þeirra þriggja manna sem komu að aðgerð­inni, er pró­fessor í skurð­lækn­ingum við HÍ og yfir­læknir við LSH. Tómas sagði að aðgerðin væri aðeins eitt skref á langri leið. Þörf fyrir líf­færi væri mikil í heim­inum og verið væri að vinna að rann­sóknum á gervi­líf­færum með hjálp stofn­frumna.

Anemariam Beyene voru gefin 8-10 ár með gervi­bark­ann en hann lifði tæp 3 ár. Á innan við ári eftir til­rauna­að­gerð­ina og áður en mál­þingið var haldið í HÍ var búið að setja stoð­net í plast­barka hans til að önd­un­ar­veg­ur­inn félli ekki saman þar sem stofn­frumu­með­ferðin mistókst. Sú aðgerð var gerð í Svíþjóð og var Maccharini við­staddur hana. Beyene var illa hald­inn og leið kvalir síð­asta árið, eftir því sem eig­in­kona hans hefur lýst í þætti Bosse Lindquists í sænska sjón­varp­inu, með aðskota­hlut í önd­un­ar­vegi sínum en bólgur og sýk­ingar eru algengur fylig­fiskur slíkra aðskota­hluta í lík­ama fólks.

Lykilstofnanir þegja þunnu hljóði

Lítið verið horft til ábyrgðar íslenskra heil­brigð­is­yf­ir­valda og lyk­il­stofn­ana eins og LSH og SÍ í mál­inu allt frá því að ákvörðun var tekin um að Andemariam Beyene geng­ist undir hina mis­ráðnu plast­barka­ígræðslu. Engar fyr­ir­liggj­andi upp­lýs­ingar lágu fyrir um að til­rauna­að­gerðin væri lík­leg til að heppn­ast og ekki lágu fyrir stað­fest til­skilin leyfi fyrir aðgerð­inni eða að nota gervi­bark­ann.

Í ljósi alvar­leika máls­ins, þá hlýtur að telj­ast eðli­legt að fram fari rann­sókn á ábyrgð allra hlut­að­eig­andi. Þáttur Íslands er þar engan veg­inn und­an­skil­inn og bein­ist ekki ein­ungis að LSH og SÍ heldur einnig að HÍ. Á mál­þing­inu í HÍ voru kynntar jákvæðar nið­ur­stöður til­rauna­að­gerð­ar­innar og meintur vís­inda­legur ávinn­ingur hennar.

Mögulega hefði mátt miðla upp­lýs­ingum um alls­endis ófull­nægj­andi útkomu barka­ígræðsl­unnar til Karol­inska-stofn­un­ar­innar og vís­inda­sam­fé­lags­ins og koma þannig í veg fyrir að sjö ein­stak­lingar til við­bótar færu í gervi­barka­að­gerð hjá Maccharini.

Stór hluti þeirra hefur síðan látið lífið eða sex af átta manns, mun fyrr en ann­ars hefði verið. Ekki hafa feng­ist upp­lýs­ingar um hvað íslensku lækn­arnir létu fara í skýrslu um Beyene, varð­andi ástand hans eftir aðgerð­ina ytra og þar stendur hníf­ur­inn í kúnni.

Heil­brigð­is­yf­ir­völd hafa lítið vilja tjá sig um málið, raunar verj­ast bæði SÍ og LSH allra frétta en ljóst er að fyr­ir­komu­lag þessa máls hlýtur að vera á þeirra ábyrgð.

Í svari frá SÍ til Kjarnans kemur fram að SÍ hafi ekki greitt fyrir barka­ígræðslu­að­gerð­ina sjálfa heldur hafi kostn­að­ur­inn fallið á Karol­inska-sjúkra­húsið þar sem um til­rauna­að­gerð hafi verið að ræða en reglur SÍ kveða skýrt á um að stofn­unun greiði ekki fyrir slíkar aðgerðir. SÍ hefur samt sem áður enn ekki viljað gefa upp upp­hæð­ina sem stofn­unin greiddi eða fyrir hvað og segja það vera vegna per­sónu­vernd­ar­á­kvæða. En SÍ greiddu allt annað en til­rauna­að­gerð­ina sjálfa og einnig eft­ir­með­ferð. Beyene fór m.a. til Sví­þjóðar eftir aðgerð­ina þar sem hann dvaldi á Karol­inska-sjúkra­hús­inu og gekkst undir aðra aðgerð á barka.

Um þetta segir Ingi­björg Þor­steins­dóttir, lög­fræð­ingur hjá SÍ, í svari til Kjarnans: „Sjúkra­trygg­ingar Íslands (SÍ) greiddu ekki fyrir barka­ígræðsl­una, heldur féll kostn­að­ur­inn á Karol­inska sjúkra­húsið í Svíþjóð. Þar sem hér er um við­kvæmar per­sónu­upp­lýs­ingar að ræða geta SÍ ekki tjáð sig að öðru leyti um þetta mál, s.s. um annan kostnað sem féll á SÍ vegna þessa sjúk­lings, né afhent gögn sem snerta hann.“

Er hægt að aðskilja tilraunaaðgerðina frá öðrum þáttum meðferðarinnar?

Ætla mætti að aðgerðin væri hluti af til­rauna­með­ferð­inni og ein­kenni­legt ef hægt er að aðskilja þessa þætti. Gera má ráð fyrir viða­miklu ákvörð­un­ar­ferli af hálfu SÍ sem greiddu kostnað sem af til­rauna­með­ferð­inni hlaust, ekki síst þar sem reglur stofn­un­ar­innar (sigl­inga­nefnd), kveða á um að hún taki ekki þátt í kostn­aði við slíka með­ferð. Hvert ein­stakt mál verður sigl­inga­nefnd­ar­mál ef með­ferð er ekki í boði hér á landi en ef brýn nauð­syn er fyrir þann sem er sjúkra­tryggður að fá hana, sækir læknir við­kom­andi til sigl­inga­nefndar um að hún ann­ist og meti umsókn­ina til með­ferðar. Sé hún sam­þykkt er greiddur með­ferð­ar­kostn­aður, ferða- og uppi­halds­kostn­aður ásamt kostn­aði vegna fag­fylgdar eða ann­arrar fylgdar sem læknir vottar að nauð­syn­leg sé, sbr. reglu­gerð nr. 712/2010 en hún fjallar um mál sjúk­lings.

„Sjúkra­tryggður ein­stak­lingur sem hyggst fara erlendis í lækn­is­með­ferð þarf að huga að ýmsu áður en lagt er af stað. Skoða þarf undir hvaða mála­flokk við­kom­andi lækn­is­með­ferð flokk­ast, hvaða skil­yrði þurfa að vera upp­fyllt og hvaða gögnum þarf að skila.“

Ástríður Stef­áns­dóttir, læknir og dós­ent í sið­fræði við HÍ, segir þessa afstöðu SÍ end­ur­spegla tví­skinn­ung sem birt­ist víða í mál­inu. Í Svíþjóð hafi mikið verið rætt um að skýra þyrfti betur þá aðgrein­ingu sem gera þurfi á milli vís­inda­til­raunar á fólki ann­ars vegar og lækn­is­með­ferðar hins vegar. „Nú þegar hefur starfs­hópur verið skip­aður þar til að fara sér­stak­lega ofan í þann þátt máls­ins í Svíþjóð. Svo virð­ist sem þessi skil hafi verið óljós í afgreiðslu SÍ,“ segir Ástríður.

Ferlið sem mál hvers sjúk­lings und­ir­gengst þegar leitað er eftir fram­væmd aðgerðar erlendis, er bæði langt og ítar­legt og regl­urnar sem gilda um slík mál skýrar.

Helgi Guð­bergs­son, yfir­læknir hjá SÍ, minnir á að þagn­ar­skylda varð­andi mál ein­stak­linga sem hann og starfs­menn SÍ séu bundnir og að hann geti því ekki annað en svarað spurn­ing­unni almennt um hvort hægt sé að aðskilja til­rauna­að­gerð­ina frá með­ferð­inni. Það gildi einnig eftir að sjúk­lingar séu látnir eins og í því til­felli sem hér um ræðir. Því verði hann að svara spurn­ing­unni almennt. Í því sam­bandi segir Helgi. „Það er ófrá­víkj­an­leg regla að SÍ tekur ekki þátt í greiðslu kostn­aðar ef um er að ræða ein­hvers konar til­rauna­með­ferð, hvort sem lækn­inga­til­raun­irnar eru hluti af akademískt við­ur­kenndu ferli, eða ekki. Samkvæmt lögum eiga SÍ að standa undir kostn­aði við með­ferð erlendis þegar um gagn­reynda með­ferð er að ræða. Ef mynd­lík­ing er notuð má segja að þegar um gagn­reynda með­ferð er að ræða sé verið að vinna á hvítu svæði. Þegar um með­ferð er að ræða, sem lækn­is­fræðin hefur sýnt fram á að er gagns­laus, sé verið að vinna á svörtu svæði og þegar óvissa er um árangur, sé verið að vinna á gráu svæði. Það er bein­línis hlut­verk háskóla­sjúkra­húsa og rann­sókn­ar­stofn­ana að vinna á þessu gráa svæði, þar sem ella yrði engin fram­þróun í lækn­is­fræði og þar með í með­ferð sjúk­dóma.“

Þessi orð Helga eru athygl­is­verð í ljósi þess aðgerðin á Beyene var fram­kvæmd án und­an­geng­inna rann­sókna sem sýndu fram á að með­ferðin gæti borið árangur og án til­skil­inna leyfa. Beyene var í raun „til­rauna­við­fangið“.

Helgi segir jafn­framt að túlkun sigl­inga­nefndar SÍ á þeim lögum og reglum, sem sett hafa verið um með­ferð erlendis, sé sú að það sé ekki hlut­verk SÍ sam­kvæmt lögum, að taka þátt í vinnu á þessu gráa svæði með því að kosta ferðir sjúkra­tryggðra ein­stak­linga með erf­iða sjúk­dóma í rann­sóknir og með­ferð, þegar með öllu er óljóst hvaða með­ferð kunni að vera í boði. „SÍ telja að stofn­un­inni sé bein­línis óheim­ilt að taka þátt í slíkum kostn­aði. Háskóla­stofn­anir birta, að loknum rann­sóknum sínum og til­raunum með nýja með­ferð, nið­ur­stöð­urnar í rit­rýndum alþjóð­legum lækn­is­fræði­ritum og þá hafa aðrir læknar, þar á meðal sér­fræði­læknar hér á landi, í hönd­unum upp­lýs­ingar um með­ferð, sem hægt er að byggja á.“

„Í því til­viki sem þú spyrð um voru þessar reglur hafðar í heiðri af hálfu SÍ,“ segir Helgi.

Nauðsynlegt að viðkomandi stofnanir hefji rannsókn á málinu

Ástríður Stef­áns­dóttir telur nauð­syn­legt að þær íslensku stofn­anir sem komu að máli Beyene, þekki til þess í heild, rann­saki sér­stak­lega sinn þátt í mál­inu. Það sé bein­línis nauð­syn­legt. „Best er að þær skipi óháða utan­að­kom­andi sér­fræð­inga til að vinna málið. Slík rann­sókn þjón­aði þeim til­gangi að skoða málið sér­stak­lega út frá þeim spurn­ingum sem vakna hér á Íslandi tengum mál­inu. Enginn annar en við getur svarað þeim spurn­ingum. Jafn­framt þurfum við og munum þurfa að eiga sam­tal við erlendar rann­sókn­ar­stofn­anir um þessa hörmu­legu atburða­rás,“ útskýrir hún.

Ástríður tekur einnig fram að til þess að geta rann­sakað atburða­rás­ina með við­un­andi hætti þurfum við að þekkja málið frá sjón­ar­hóli okkar. Það sé ótækt fyrir Íslend­inga ef okkar stofn­anir séu það veik­burða að þær geti ekki sjálfar sinnt eft­ir­lits­skyldu með þessum hætti. Slíkt grafi undan almennu trausti á stofn­unum.

Eins og málið horfir við nú virð­ast lækn­arnir tveir, Tómas Guð­bjarts­son, læknir Beyene, og Óskar Ein­ars­son, sem gerði berkju­speglun á Beyene eftir ígræðslu­að­gerð­ina úti, vera á eigin vegum í þessu máli, þrátt fyrir að þeir séu starfs­menn LSH og þar af leið­andi íslensku heil­brigð­is­þjón­ust­unnar, auk þess sem annar starfar við HÍ.

Vænt­an­lega hefur sú stóra ákvörðun að þekkj­ast boð Karol­inska-sjúkra­húss­ins að fram­kvæmd yrði fyrsta plast­barka­ígræðsla í heimi á sjúk­lingi í þjón­ustu LSH verið tekin eftir umfangs­mikið ákvörð­un­ar­ferli sér­fræð­inga og yfir­manna þar sem allar upp­lýs­ingar þar að lút­andi lágu fyrir. Slíkt ferli hlýtur að hafa falið í sér vand­aða yfir­ferð yfir rann­sóknir sem áður höfðu verið fram­kvæmdar og lágu til grund­vallar því að reyna aðgerð­ina á mann­eskju.

Fram­kvæmda­stjóri lækn­inga á LSH, Ólafur Bald­urs­son, hefur lýst fullu trausti á lækn­ana tvo sem komu að máli Beyene og sagt að rann­sókn, svokölluð rót­ar­grein­ing, sem nær yfir með­ferð­ina sem Beyene var veitt þar, hafi leitt í ljós að aðgerðin hafi bæði bjargað lífi hans og lengt það. Rót­ar­grein­ingin var gerð um fag­leg vinnu­brögð á LSH og störf lækn­anna af utn­að­kom­andi fag­að­ilum en blaða- og frétta­menn hafa ekki fengið aðgang að henni. Rót­ar­grein­ingin er ekki gagnsæ, hún er und­an­þegin upp­lýs­inga­lögum og getur því ekki hjálpað til við að upp­lýsa almenn­ing eða efla traust hans á LSH og starfs­mönnum hans í þessu alvar­lega máli. Ólafur hefur ekki viljað tjá sig frekar um málið en sagði í við­tali við Vísi 1. sept 2015. „Lær­dóm­ur­inn í þessu til­felli er að við þurfum að bæta verk­lags­reglur þegar sjúk­lingar eru sendir til útlanda og það má líka alltaf bæta skrán­ingu. En þessar miklu ásak­anir sem sér­stak­lega lækn­arnir urðu fyrir, þær eiga ekki við rök að styðj­ast hvað varðar með­ferð­ina á Land­spít­al­anum."

Á hinn bog­inn má túlka orð Reynis Arn­gríms­sonar, for­manns lækna­ráðs Land­spít­ala, á þann veg að lækna­ráð vilji að málið verði upp­lýst. Hann segir að lækna­ráð hafi ekki haft beina aðkomu að gervi­barka­mál­inu en stjórn þess hafi reynt að kynna sér mála­vexti og fylgj­ast með fram­vindu þess eins og frekast sé kostur. Málið sé nú komið í ákveð­inn far­veg hjá sænskum stjórn­völdum og þeim stofn­unum sem hlut eigi að máli. „Stjórn lækna­ráðs Land­spít­ala er þeirra skoð­unar að mik­il­vægt sé að allir þættir þess séu upp­lýstir og hvetur til vand­aðrar, mál­efna­legrar og hleypi­dóma­lausrar umfjöll­unar,“ segir Reynir.

Vil­hjálmur Árnason, pró­fessor í heim­speki við HÍ, telur líkt og Ástríður að Íslend­ingar þurfi að ræða þær sið­ferði­legu spurn­ingar sem þessi til­rauna­með­ferð veki. „Sú umræða þarf bæði að snú­ast um breytni heil­brigð­is­starfs­manna og þau kerfi eða ferli sem við búum yfir til að hafa eft­ir­lit með með­ferð og rann­sóknum. Þetta þarf að gera óháð því hverjar nið­ur­stöður rann­sókn­ar­máls­ins um ábyrgð ein­stakra starf­manna eða stofn­ana verða. Þetta er hörmu­legt mál þar sem virð­ist hafa verið brotið gegn grund­vall­ar­at­riðum í vís­indasið­ferði,“ segir Vil­hjálmur um gervi­barka­málið.

Vísindasiðareglur döguðu uppi í menntamálaráðuneytinu

Vil­hjálmur bendir á að sjálfur hafi hann starfað í vinnu­hópi á vegum Rannís til að móta vand­aða starfs­hætti í vís­indum. Vinu­hóp­ur­inn skil­aði starfi sínu í drögum að siða­reglum árið 2011 til mennta­mála­ráðu­neyt­is­ins en þar hafa siða­regl­urnar legið og ekk­ert verið gert til að koma þeim á lagg­irnar. Í drög­unum er m.a. tekið fram að sér­stök siða­nefnd fjalli um mál af því tagi sem um ræðir, þ.e. til­rauna­með­ferðir, og e.t.v. hefðu þessar reglur haft ein­hverja þýð­ingu í að forða mis­ferli í vís­indum eins því sem gerð­ist í gervi­barka­mál­inu ef þær hefðu kom­ist í fram­kvæmd. Við fyr­ir­spurn Kjarnans til mennta­mála­ráðu­neyt­is­ins um hvers vegna áður­nefnd drög komust aldrei á lagg­irnar, segir Þorgeir Ólafsson, upp­lýs­inga­full­trúi í mennta­máls­ráðu­neyt­inu. „Eftir að ráðu­neytið fékk málið til með­ferðar og byrjað var að rýna í það var nið­ur­staðan sú að rétt væri að siða­regl­urnar ættu sér stoð í lögum og það kallar á breyt­ingar á lögum um opin­beran stuðn­ing við vís­inda­rann­sóknir nr. 3/2002. Slíkar breyt­ingar taka langan tíma, ekki síst þegar önnur aðkallandi og brýn mál­efni eru ofar í for­gangs­röð­inni. Þar að auki kalla breyt­ingar af þessu tagi á víð­tækt sam­ráð við marga aðila. Staðan núna er sú að hafin er vinna við gerð til­lagna um breyt­ingar á fram­an­greindum lögum og er grein um siða­nefnd vís­inda­mála hluti af þeirri vinnu. Gert er ráð fyrir að til­lögur verði lagðar fyrir ráð­herra á þessu ári.“

Vísindasamfélagið þarf að skoða þetta mál

Ástríður Stef­áns­dóttir telur ekki vafa leika á að Íslend­ingar þurfi að bera ábyrgð og skoða þetta mál og gang­ast við því ef mis­tök hafa verið gerð. „Vís­inda­sam­fé­lagið í heild þarf tví­mæla­laust að skoða þetta mál. Við þurfum einnig að útskýra hvernig fyr­ir­hugað er að koma í veg fyrir að slíkt end­ur­taki sig. Að öðrum kosti er ekki hægt að ætl­ast til þess að vís­inda­sam­fé­lag­inu og til­heyr­andi stofn­unum sé treystandi.“ Hún bendir einnig á í þessu sam­bandi áður­nefnd drög að góðum starfs­háttum í rann­sóknum sem Rann­sókn­ar­ráð Íslands samdi og hafa aldrei litið dags­ins ljós heldur dög­uðu uppi í mennta­mála­ráðu­neyt­inu. Þar er m.a. lagt til að setja skuli á fót siða­nefnd sem fjallað gæti um mál eins og gervi­barka­málið. „Ef sú siða­nefnd væri starf­andi þá ætti hún að vera einn þeirra aðila hér­lendis sem skoða ætti málið og álykta um það. Sú nefnd mynda heyra undir mennta- og menn­ing­ar­mála­ráð­neyti. Þar sem hún er ekki til þá er vel hugs­an­legt að mennta- og menn­ing­ar­mála­ráðu­neytið ætti að finna til sinnar ábyrgðar og skipa óháða nefnd til að fara ofan í málið,“ segir Ástríður.

Eft­ir­lits­stofnun heilsu- og félags­mála í Svíþjóð taldi aðgerðir Maccharini ólög­legar og að bæri að líta á þær sem til­raunir á mönnum. Sænska vís­inda­siða­nefndin taldi aðgerð­irnar hneyksli og að ekki hefði verið sýnt fram á að aðgerð­irnar hefðu verið gerðar í lækn­inga­skyni. Á þeim tíma taldi Karol­inska-stofn­unin að Maccharini væri ekki sekur um vís­inda­legt mis­ferli.

Eftir að málið var tekið upp á ný hefur Karol­inska-stofn­unin haldið því fram að upp­lýs­ingar frá Íslandi um ástand Andemariam Beyene eftir aðgerð­ina og þar til Lancet-greinin leit dags­ins ljós hafi verið lyk­il­gögn í rann­sókn í hneyksl­is­mál­inu og í því að Maccharini varð ákærður. Þessar upp­lýs­ingar hafa reynst mjög dýr­keyptar og urðu til þess að kallað var eftir afsögn rekt­ors Karol­inska-stofn­un­ar­innar, Anderes Hamsten, sem sagði af sér í febr­úar síð­ast­lið­inn.

Við rann­sókn á Maccharini kom í ljós að hann hafði aldrei gert þær til­raunir með stofn­frumur á dýrum sem hann sagð­ist hafa gert, heldur óð hann beint í lif­andi fólk og gerði það að til­rauna­við­fangs­efnum sínum. Hann hafði heldur ekki til­skilin leyfi til að gera aðgerð­irnar eða nota gervi­bark­ana. Þá reynd­ust upp­lýs­ingar frá Íslandi vill­andi skv. því sem Svíar segja og enn óljóst í hvað stóð í íslensku gögn­unum um Beyene sem rataði í Lancet-grein­ina.

Magnús Karl Magn­ús­son, for­seti lækna­deildar HÍ, hefur ekki séð ástæðu til að gera óháða rann­sókn á mál­inu og rektor HÍ, Jón Atli Bene­dikts­son, hefur lýst því yfir að hann muni bíða eftir nið­ur­stöðum rann­sókn­ar­innar í Svíþjóð en HÍ hefur verið til­bú­inn til að veita aðstoð með því að láta gögn af hendi. Hann hefur ekki lýst yfir stuðn­ingi við starfs­mann sinn, Tómas Guð­bjarts­son pró­fessor, líkt og LSH hefur gert.

Um ábyrgð HÍ á þátt­töku íslenskra vís­inda­manna í sam­starfi sem þessu sem að stórum hluta fer fram erlendis, segir rektor, dr. Jón Atli Bene­dikts­son. „Almennt séð taka vís­inda­menn þátt í rann­sókn­ar­verk­efnum á eigin ábyrgð, hvort sem þessi verk­efni eru unnin inn­an­lands eða utan. HÍ er í fæstum til­vikum beinn þátt­tak­andi í ein­stökum verk­efnum, heldur er aðkoma skól­ans í flestum til­vikum í gegnum starfs­fólk hans. Um þátt­töku starfs­fólks í rann­sókn­ar­verk­efnum gilda reglur skól­ans, þ.á m. siða­reglur. Sumar rann­sóknir eru leyf­is­skyldar og þá þarf að sækja um leyfi fyrir fram­kvæmd þeirra til þar til bærra aðila, svo sem Vís­inda­siða­nefndar.“

Siða­reglur:

Vand­virkni og heil­indi

2.1.3 Kennarar, sér­fræð­ingar og nem­endur eru gagn­rýnir á sjálfa sig og vanda dóma sína. Þeir falsa ekki eða afbaka upp­lýs­ingar, gögn eða nið­ur­stöður rann­sókna. Þeir gæta þess að birtar nið­ur­stöður veiti ekki ein­hliða og vill­andi mynd af við­fangs­efn­inu. Þeir forð­ast hvers kyns mis­tök og villur í rann­sókn­ar­starf­inu. Verði þeim á mis­tök við­ur­kenna þeir þau og gera það sem þeir geta til að bæta fyrir þau.

Jón Atli segir enn fremur að verk­efnið sem hér um ræðir hafi verið unnið innan veggja LSH og hjá Karol­inska og að eft­ir­lit með fram­gangi þess hafi því verið í höndum þeirra stofn­anna en ekki HÍ. Hann segir að mál­þingið sem haldið var ári eftir umrædda aðgerð og skipu­lagt af HÍ, hafi byggst á grunni upp­lýs­inga sem þá lágu fyrir. „Ég tel ekki rétt að tjá mig um málið á þessu stigi. HÍ mun ekki bregð­ast við fyrr en að lok­inni þeirri rann­sókn sem þegar er farin af stað í Svíþjóð hjá óháðri rann­sókn­ar­nefnd. Skólinn hefur þegar sett sig í sam­band við rann­sókn­ar­nefnd­ina og heitið fullri sam­vinnu við að upp­lýsa málið eftir því sem efni standa til,“ segir rektor.

Heil­brigð­is­yf­ir­völd hafa eins og áður segir varist fregna en ljóst er að aðkoma okkar Íslend­inga að þessu verk­efni hlýtur að vera á þeirra ábyrgð. SÍ hefur ein­göngu sagt að íslensk heil­brigð­is­yf­ir­völd hafi komið að kostn­aði í kringum aðgerð­ina á Beyene í Svíþjóð en að Svíar hafi greitt fyrir sjálfa aðgerð­ina. Heil­brigð­is­yf­ir­völd hljóta þó að vera ábyrgð fyrir að Beyene fór í til­rauna­að­gerð­ina. Ábyrgðin í þessu máli liggur fyrst og fremst þar.

„Við verðum að hafa í huga að hér er um að ræða mjög alvar­legar ásak­anir sem fela í sér grun um óboð­lega og lífs­hættu­lega lækn­is­með­ferð, rann­sóknir á fólki þar sem ekki var gætt til­hlýði­legrar var­úðar og jafn­framt ásak­anir um mis­ferli eða jafn­vel svik í rann­sóknum sem hafa hugs­an­lega haft alvar­legar afleið­ingar og jafn­vel leitt til þess að fjöldi manns hefur lát­ist. Þetta mál teygir anga sína til fjöl­margra landa og er mjög flókið. Það er því ljóst að sú rann­sókn sem nú er byrjuð í Svíþjóð mun einnig verða gerð í fleiri löndum og mun hugs­an­lega taka mörg ár. Við Íslend­ingar verðum að skoða vel okkar eigin aðkomu að þessu máli. Við getum þar ekki ein­ungis treyst á aðkomu ann­arra stofn­ana í öðrum löndum og að þau skýri fyrir okkur hvað gerð­ist, við verðum líka að gera okkar eigin rann­sókn. Vandinn sem við glímum við nú er m.a. sá að málið er for­dæma­laust hér­lendis og við virð­umst ekki hafa fyrir það skýra far­vegi,“ segir Ástríður Magn­ús­dótttir.

Mik­il­vægt er að fram­kvæmd verði ítar­leg skoðun á öllu ferl­inu í kringum hina afdrifa­ríku til­rauna­með­ferð hér á landi og hlut­verki og ábyrgð íslensku stofn­an­anna. Sænska rann­sóknin mun lík­lega ekki ná til þátta íslensku stofn­an­anna en mik­il­vægt er að við getum lært af þessu máli eins og fram hefur komið. Samt sem áður virð­ist það vera skoðun for­ráða­manna þeirra stofn­ana sem komu að mál­inu að ekki sé ástæða til sér­stakrar rann­sóknar á aðkomu þeirra hér á landi.

Fjöl­miðlar hafa ekki sýnt þessu máli mik­inn áhuga ef frá eru taldir Stundin og RÚV. Fálæti fjöl­miðla vekur upp spurn­ingu um hvort mál­inu hefði verið sýndur meiri áhugi ef ein­stak­ling­ur­inn sem var sendur héðan í til­rauna­að­gerð­ina sem mis­heppn­að­ist hefði verið íslenskur.

Viðbót klukkan 07:00 27. mars 2016:

Ályktun um að ekki hafi verið farið eftir siða­reglum starfs­manna HÍ í mál­inu hefur verið fjar­lægð úr frétta­skýr­ing­unni eftir að aðfinnslur bár­ust. Það liggur ekki fyrir að svo sé og er það hér með leið­rétt. Beðist er vel­virð­ingar á þessu.

Þá skal árétta að þótt fram komi í frétta­skýr­ing­unni að for­seti Lækna­deildar hafi ekki séð ástæðu til að fram­kvæmda óháða rann­sókn á gervi­barka­mál­inu hér­lendis þá er ekki verið að halda því fram að Lækna­deild HÍ vilji ekki óháða rann­sókn. Fyrir liggur að Lækna­deildin styðji rann­sókn óháðra aðila í Svíþjóð. Við­mæl­endur höf­undar grein­ar­innar telja hins vegar að gera verði eigin rann­sókn á Íslandi og draga af henni lær­dóm.

Hægt er að lesa aðsenda grein Magnúsar Karls Magn­ús­sonar, for­seta Lækna­deildar HÍ, vegna frétta­skýr­ing­ar­innar hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár