Arion banka tókst að selja evruskuldabréf í annarri tilraun

Arion banki til­kynnti fyrr í dag að hann hefði gefið út skulda­bréf fyrir 500 millj­ónir evra, um 45 millj­arða króna, og að umfram­eft­ir­spurn hefði verið eftir bréf­unum. Þetta er í fyrsta sinn sem íslenskur banki nær að selja skulda­bréfa­út­gáfu í erlendri mynt til breiðs hóps fjár­festa. Á manna­máli þýðir það að ein­staka bankar kaupa hana ekki alla.

Það er afar mik­il­vægt fyrir íslensku bank­anna að fjár­magna sig erlendis. Og að fá meiri fjöl­breytni í því hvernig þeir fjár­magna sig, enda uppi­staðan af fjár­mögn­un­inni síð­ustu ár verið inn­lán frá íslenskum fyr­ir­tækjum og almenn­ingi, víkj­andi lán frá íslenska rík­inu og sétryggð skulda­bréf sem íslenskir fag­fjár­festar (aðal­lega líf­eyr­is­sjóðir) hafa keypt.

Af 771 millj­arða króna skuldum Arion banka um síð­ustu ára­mót voru til dæmis 454 milj­arðar inn­lán, 129 millj­arðar króna sér­tryggð skulda­bréf, 8,5 millj­arðar óverð­tryggð skulda­bréf í norskum krónum, 1,7 millj­arður króna óverð­tryggð skulda­bréf í evrum og 2,1 millj­arður króna. Auk þess skuld­aði Arion banki Seðla­bank­anum 55 millj­arða króna.

Í annað sinn sem Arion banki reynir


Þótt þetta sé í fyrsta sinn sem íslenskur banki nær að selja „breiðum hópi fjár­festa“ skulda­bréfa­út­gáfu í evrum eftir hrun þá er þetta ekki í fyrsta sinn sem það er reynt. Og ekki heldur í fyrsta sinn sem Arion banki reynir það.

[quote font="0" align="right"]ótt þetta sé í fyrsta sinn sem íslenskur banki nær að selja „breiðum hópi fjár­festa“ skulda­bréfa­út­gáfu í evrum eftir hrun þá er þetta ekki í fyrsta sinn sem það er reynt. Og ekki heldur í fyrsta sinn sem Arion banki reynir það.[/quote]

Um miðjan april 2014 til­kynnti Arion banki að hann ætl­aði sér í skulda­bréfa­út­gáfu í evrum. Und­ir­bún­ingur hafði þá staðið yfir í nokkurn tíma, enda fyrsta slika útgáfan sem bank­inn ætl­aði að ráð­ast í eftir banka­hrun.

Áður hafði Arion banki gefið út skulda­bréf í norskum krónum, í upp­hafi árs 2013, til þriggja ára. Vextir þeirra bréfa voru fimm pró­sent ofan á NIBOR vexti, sem þykir mjög dýr fjár­mögnun. Til­gangur útgáf­unnar var þó miklu fremur sá að sýna fram á að íslenskt fjár­mála­fyr­ir­tæki gæti gefið út skulda­bréf á erlendum vett­vangi og nyti nægj­an­legs trausts til að kaup­endur væru af því. Í raun var mark­miðið að opna aðganga að erlendum láns­fjár­mörk­uðum og bæta gæði fjár­mögn­unar bank­ans.Arion banki þurfti enda ekki á fjár­mögnun að halda á þessum tíma. Umfang þeirrar útgáfu var 500 millj­ónir norskra króna, eða um 11,2 millj­arðar króna á þeim tíma.

Í jan­úar síð­ast­liðnum til­kynnti Arion banki að hann hefði keypt til baka hluta þeirra skulda­bréfa, fyrir alls 59 millj­ónir norskra króna. Þau skulda­bréf voru keypt á verð­inu 102,5 sem sam­svarar 2,79 pró­sent álagi yfir NIBOR. Arion banki er því byrj­aður að kaupa til baka dýru fjár­mögn­un­ina.

Of dýr fjármögnun


Í vik­unni eftir páska í fyrra fóru for­svars­menn Arion banka í fjár­festa­heim­sóknir til London, Stokk­hólms, Helsinki og Kaup­manna­hafnar. Í sömu viku fór gríski bank­inn NBG á markað með fimm ára skulda­bréfa­út­gáfu sem seld­ist illa. Þessi mis­heppn­aða útgáfa NBG olli nokkrum óróa á fjár­mála­mörk­uðum. Auk þess hafði

[caption id="attachment_16722" align="align­right" width="200"] Hösk­uldur Ólafsson, banka­stjóri Arion banka.[/caption]

ástandið í Úkraínu nei­kvæð áhrif á kjör á þessum tíma.

Þau kjör sem Arion banka buð­ust voru því 350 punktar yfir Euribor vöxtum, sem var hærra en lagt var upp með. Því var til­kynnt um það í byrjun mai að Arion hefði frestað útgáf­unni.

Sú fjár­mögnun sem Arion er að ná í núna er um 310 punktar yfir milli­banka­vöxtum og því er um mun betri kjör að ræða en buð­ust síð­ast.

Ýmislegt sem þurfti að gerast


Kjarninn fjall­aði ítar­lega um þessa til­raun Arion banka til útgáfu í maí 2014. Í þeirri umfjöllun var haft eftir Haraldi Guðna Eiðssyni, upp­lýs­inga­full­trúa Arion banka, að bank­inn hefði fengið þau skila­boð að tvennt þyrfti að ger­ast til að þau kjör sem væru ásætt­an­leg yrðu í boði. Annars vegar væru það mark­aðs­að­stæður. Ef kjör mynd batna almennt, til dæmis ef það drægi úr ólgu í sam­skiptum Úkraínu og Rúss­lands, þá myndi það hafa áhrif á kjör Arion banka. „Hins vegar er það staða íslenskra banka og þess umhverfis sem þeir starfa í. Það er til dæmis mik­il­vægt að auk­inn stöð­ug­leiki sé í efna­hags­líf­inu hér á landi og að óvissu­þáttum haldi áfram að fækka. Þar erum við ekki síst að horfa til mik­il­vægis þess að áætlun um losun gjald­eyr­is­hafta verði hrint í fram­kvæmd. Einnig myndi hækk­andi láns­hæf­is­mat íslenskra rík­is­ins geta leitt til betri kjara“.

Ljóst má vera að ekki hefur dregið neitt sér­lega mikið úr ólgu í sam­skiptum Úkraínu og Rússland. Og áætlun um losun hafta hefur alls ekki verið hrint í fram­kvæmd. En láns­hæf­is­mat rík­is­sjóðs hefur batnað vegna betri afkomu rík­is­sjóðs og hag­vaxtar.

Íslandsbanki var fyrstur


Nokkrum dögum eftir að Arion banki frestaði sinni útgáfu til­kynnti Íslands­banki um fyrstu skulda­bréfa­út­gáfu sína í evrum. Kjörin voru 300 punktar ofan á Euribor vexti. Um var að ræða fyrstu útgáfu íslensks banka í evrum sem hefur selst eftir banka­hrun.

Hún var þó bæði mun minni, 100 millj­ónir evra, um 15 millj­arðar króna, og til styttri tíma, tveggja ára, en sú sem Arion banki réðst í nú og var til­kynnt um í dag.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár