Ugla Stefanía: Nei, það er ekki búið að skipta um þjóðfána

Formaður Trans Íslands róar Guðmund Oddsson, for­mann Golf­klúbbs Kópa­vogs og Garðabæj­ar, en hann hafði viðrað áhyggjur sínar af því að Ísland væri búið að skipta um þjóð­fána. Hann hefur síðan beðið félags­menn klúbbs­ins afsök­unar á skrifum sínum.

Uglu Stefaníu Kristjönudóttur Jónsdóttur
Uglu Stefaníu Krist­jönu­dóttur Jóns­dóttur Mynd: Samsett mynd

Ugla Stefanía Krist­jönu­dóttir Jóns­dóttir, kynja­fræð­ingur og for­maður Trans Íslands, svarar fyrr­ver­andi skóla­stjór­anum Guðmund­i Odds­syni og for­manni Golf­klúbbs Kópa­vogs og Garðabæj­ar í aðsendri grein í Morg­un­blað­inu í morgun en hann hafði meðal ann­ars áhyggjur af því hvort búið væri að skipta þjóð­fána Íslend­inga út fyr­ir regn­boga­fán­ann.

Hann viðr­aði skoð­anir sínar í grein í Morg­un­blað­inu í fyrra­dag um við­brögð ýmissa fyr­ir­tækja við heim­sókn vara­for­seta Banda­ríkj­anna, Mike Pence, í síð­ustu viku en mörg hver flögg­uðu regn­boga­fán­anum til að styðja við mál­stað hinsegin fólks.

Guðmund­ur bað fé­lags­menn í golf­klúbbnum af­sök­un­ar á grein­inni í gær­kvöldi í gegnum tölvu­póst sem Kjarninn hefur undir höndum. Í honum segir hann að hann hafi orðið þess áskynja að hanni hafi sært ákveðna félags­menn með þess­ari grein en að það hafi aldrei verið ætl­unin. „Mér þykir það leitt og bið þá sem það á við inni­legrar afsök­unar,“ skrifar hann.

Pence þekktur fyrir grófa fordóma gagnvart hinsegin fólki

„Ekki er að undra að Guðmundi hafi fund­ist regn­boga­fána­málið frekar dramat­ískt, enda ekki á hverjum degi sem þjóð­ar­leið­togi ann­ars ríkis kemur á klak­ann. Ekki er Mike Pence heldur bara hvaða þjóð­ar­leið­togi sem er, heldur þjóð­ar­leið­togi sem er þekktur fyrir grófa for­dóma gagn­vart hinsegin fólki í þokka­bót,“ skrifar Ugla Stefanía í grein sinni.

Hún útskýrir ítar­lega ástæðu þess að regn­boga­fán­inn blakti við hún þegar vara­for­set­inn kom til lands­ins. „Hún var sú að Mike Pence, vara­for­seta Banda­ríkj­anna, finnst að það sé í lagi að reka fólk eins og mig úr vinnu og neita mér um þjón­ustu fyrir það eitt að vera eins og ég er. Ekki finnst honum það bara í lagi, heldur hefur staðið fyrir laga­setn­ingum og breyt­ingum á lögum sem leyfa það.

Hann styður sömu­leiðis svo­kall­aðar „afhomm­un­ar­búðir“, þar sem er reynt að fá fólk til að hætta að vera hinsegin með öfga­fullum hætti, eins og t.d. pynt­ingum, heila­þvotti og ofbeldi. En það veit allt vel þenkj­andi fólk að ekki er hægt að neyða fólk til að vera eitt­hvað sem það er ekki, enda held ég að þá eng­inn myndi vera hinsegin.“

Hinsegin dagar lengi verið mikilvægur hluti af íslenskri dægurmenningu

Henni finnst jafn­framt mik­il­vægt að árétta að Hinsegin dagar séu hátíð sem hefur verið til í nær tvo ára­tugi – og í raun lengur ef kröfu­göngur frá ’93 og ’94 séu taldar með – en ekki ein­ungis nokkur ár eins og Guð­mundur telur.

Hinsegin dagar hafi því lengi verið mik­il­vægur hluti af íslenskri dæg­ur­menn­ingu. „Mér þykir það miður að Guðmundi þyki ekki mikið til hátíð­ar­innar koma og hvet ég hann og allt það fólk sem hefur ekki gert það nú þegar að skella sér á næsta ári. Við munum taka vel á móti ykkur. Þar eru ýmsir fræðslu­við­burðir, skemmt­anir, ganga og annað skemmti­legt og efl­andi fyrir gesti og gang­andi. Þessi hátíð er haldin til að vekja athygli á hinsegin mál­efnum og hverju þarf enn að berj­ast fyrir svo við getum öll lifað í rétt­látu og frjálsu sam­fé­lagi – og auð­vitað til þess að fagna fjöl­breyti­leik­anum í okkar litla og víð­sýna sam­fé­lagi,“ skrifar hún.

Guðmundur þarf litlar áhyggjur að hafa

Í grein sinni spyr Guð­mundur hvers fólk sem er ekki hinsegin eigi nú að gjalda. „Ég get huggað Guðmund með því að hann þurfi nú að hafa litlar áhyggjur af því, enda er staða fólks sem er ekki hinsegin yfir­burða­góð. Engin lög eru í gildi neins staðar í heim­inum sem hefta frelsi þess né þarf það að ótt­ast for­dóma, skiln­ings­leysi og jafn­vel ofbeldi fyrir það eitt að vera ekki hinsegin. En það er alltaf í mynd­inni að stofna bara sína eigin hátíð og sýna þannig frum­kvæði. Það ætti nú að vera lítið mál ef áhyggj­urnar eru ein­lægar og drif­kraft­ur­inn til staðar.“

Enn fremur hefur Guð­mundur áhyggjur af börnum og við­kvæmri stöðu þeirra í skrifum sínum. „Mér finnst það frá­bært að hann láti sig mál­efni barna varða, enda er það eitt­hvað sem er mikið bar­áttu­mál fyrir mér að börnum á Íslandi líði vel. Hinsegin ung­menni upp­lifa mikla van­líðan vegna þess að þau geta ekki verið þau sjálf og upp­lifa jafn­vel ein­elti í skólum fyrir það að vera hinsegin eða sýna hegðun sem fellur út fyrir normið. Það er því rosa­lega mik­il­vægt að við byggjum frjálst og rétt­látt sam­fé­lag þar sem fólk getur verið það sjálft og fengið að vera ham­ingju­samt.“

Trans fólk fullkomlega fært um að eignast börn

Að lokum bendir Ugla Stefanía á að eng­inn þurfi að hafa sér­stakar áhyggjur af lít­illi fjölgun þjóð­ar­innar, eins og Guð­mundur virð­ist hafa. „Íslend­ingar hafa aldrei verið fleiri og þrátt fyrir að fæð­ing­ar­tíðni hafi lækkað hér­lendis þá efast ég stór­lega um að það sé vegna trans fólks. Trans fólk er nefni­lega full­kom­lega fært um að eign­ast börn líkt og allt annað fólk.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár