Framhaldsskólum refsað fyrir góðan árangur

Bók­náms­skólar hafa ekki komið vel út úr fjár­veit­ingum rík­is­ins síð­ast­liðin miss­eri, að mati rekt­ors Mennta­skól­ans við Sund en fram­lag til nem­enda er mjög mis­mun­andi eftir skólum.

Már Vilhjálmsson, rektor Menntaskólans við Sund.
Már Vil­hjálms­son, rektor Mennta­skól­ans við Sund. Mynd: Bára Huld Beck

Nýtt reikni­líkan hefur verið tekið í notkun hjá mennta­mála­ráðu­neyt­inu þegar ákvarða skal fram­lög til fram­halds­skóla og hefur það líkan ekki reynst öllum skólum vel. Már Vil­hjálms­son, rektor Mennta­skól­ans við Sund, gagn­rýnir hvernig fjár­munum er úthlutað milli skóla og telur hann að verið sé refsa þeim skólum sem halda lengur í nem­endur og skila góðum árangri.

Himinn og haf milli skóla

Fjárlög til ársnem­enda eru mis­mun­andi eftir skólum. Már segir að Mennta­skól­inn við Sund sé mjög ódýr og að fram­lagið í ár sé 1,1 milljón á nem­anda. Það sé með því allra lægsta en það hæsta nemur nær þremur millj­ónum á nem­anda.

„Þannig er him­inn og haf á milli skóla. Við erum milli 30 og 40 pró­sent undir með­al­tal­inu,“ segir Már. Hann bendir á að hið sama eigi við um Mennta­skól­ann í Reykja­vík, Mennta­skól­ann í Hamra­hlíð og fleiri skóla.

Sérstaða Mennta­skól­ans við Sund er, að sögn Más, að þegar ákveðið var að stytta námið úr fjórum árum í þrjú þá var skólum skylt að skrifa nýja skóla­náms­skrá. MS fór strax í þá vinnu og segir Már að þau hafi haft Hvít­bók­ina að leið­ar­ljósi en mark­miðið var meðal ann­ars að draga úr brott­falli. „Við breyttum líka kerf­inu okkar, lögðum niður bekkja­kerfið og tókum upp þriggja anna kerfi,“ segir Már.

Ráðuneytið borgar ekki fyrir nemendur sem haldast í námi

Ein afleið­ingin af þessum aðgerðum er að snar­dregið hefur úr brott­falli úr skól­anum. Már segir að mark­miðum mennta­mála­ráðu­neyt­is­ins hafi þar með verið náð. „Stað­reyndin er aftur á móti sú að góður árangur hefur komið okkur alvar­lega í koll,“ segir hann. Ráðu­neytið hafi ekki brugð­ist við með því að borga með þessum nem­endum sem hald­ast lengur í námi.

Staðan er þannig núna að fjölgað hefur í MS – fleiri nem­endur taka fleiri áfanga – og er sá árangur vel yfir vænt­ingum, að sögn Más. Hann segir að staðan hafi verið þannig árið 2017 að skól­inn fékk ekki fjár­magn fyrir 70 til 80 nem­endur sem stund­uðu nám við skól­ann. Hann seg­irað ekki sé tekið til­lit til þess­ara þátta og gagn­rýnir ósveigj­an­leika í ákvörð­unum Alþingis varð­andi fjár­veit­ingu til fram­halds­skól­anna.

Már segir að áhersla hafi verið lögð á að styrkja iðn- og verk­nám og að það sé af hinu góða. Aftur á móti virð­ist sem svo að fjár­munir séu fluttir frá bók­námi yfir í verk­nám í stað þess að auka þá heilt yfir.

Fá ekki fjárveitingu fyrir forfallakennslu

Margir þættir spila inn í vax­andi fjár­hags­erf­ið­leika skól­ans og ber þar meðal ann­ars að nefna langvar­andi veik­indi kenn­ara. Ekki er gert ráð fyrir for­falla­kennslu kenn­ara í fjár­veit­ingu rík­is­ins en hætt var slíkum fjár­veit­ingum fyrir átta árum. Már segir að skól­inn myndi þola þessi auka áföll ef fjár­veit­ing­arnar væru ekki svona lágar.

Hann segir að ástandið sé algjör­lega óvið­un­andi. Skólinn sé að ná miklum árangri með litlum til­kostn­aði. Honum finnst sem verið sé að refsa þeim fyrir að ganga vel. Á sama tíma sé mennta­mála­ráðu­neytið að borga öðrum skólum fyrir nem­endur sem ekki eru á staðnum.

Reiknilíkan verður að vera skýrt

Hann spyr sig í fram­hald­inu hvaða reglur séu not­aðar til að skipta fjár­magni milli skóla. Hann telur að reikni­líkanið þurfi að vera skýr­ara um hvernig þessum fjár­veit­ingum er háttað. Hann segir að hann hafi ítrekað reynt að fá svör frá ráðu­neyt­inu varð­andi það en að lítið hafi verið um þau. Hann spyr sig enn fremur hvort fjár­magnið renni í reynd til nem­enda sem stunda nám að stað­aldri í fram­halds­skóla.

Í svari mennta­mála­ráðu­neyt­is­ins við fyr­ir­spurn Mannlífs segir að reikni­líkanið sem ákvarði fram­lög til fram­halds­skól­anna sé svo­kallað deili­líkan. Und­an­farin 20 ár hafi verið stuðst við líkan sem byggir á nákvæmum útreikn­ingum á náms­ein­ingum nem­enda í ein­stökum áföngum hvers skóla.

„Taldar eru þær ein­ingar sem nem­endur ganga til prófs í eða sæta lokamati á hverri önn. Fjöldi þeirra er lagður saman og síðan deilt með tölu sem mælir fullt nám og útkoman verður ársnem­enda­tala skól­ans. Miðað er við 35 náms­ein­ingar á ári sem er fjórð­ungur af 140 ein­ingum eða við­mið um stúd­ents­próf á fjórum árum í gamla kerf­inu,“ segir í svar­inu.

Nýja líkanið miðar við skráða nemendur í upphafi annar

Þetta líkan hefur nú runnið sitt skeið á enda þar sem nýjar ein­ingar hafa tekið við, eða 60 fram­halds­skóla-ein­ingar á ári, og miða þær við vinnu nem­enda en í gamla kerf­inu var tekið mið af fjölda kennslu­stunda á viku. Nýja líkanið mið­ast, sam­kvæmt ráðu­neyt­inu, við fjölda skráðra nem­enda í fullu námi eftir náms­brautum sem skipt er í mis­mun­andi verð­flokka eftir því meðal ann­ars hversu mik­inn tækja­búnað þarf, hve margir nem­endur eru í náms­hóp o.fl.

Helsti mun­ur­inn á þessum tveimur aðferðum er að ekki er reiknuð nákvæm­lega hver ein­ing í hverjum áfanga og miðað er við skráða nem­endur á náms­brautum í upp­hafi annar en ekki ein­ingar þeirra í lok annar.

Til við­bótar bendir ráðu­neytið á að inn í þessu lík­ani séu breytur sem hafa áhrif á fram­lag á nem­anda, til að mynda fjár­magn fyrir hús­næð­is­kostnað og sér­verk­efni skóla. Það skýri hversu ólíkt fram­lag er milli fram­halds­skóla.

Segir jafn­framt í svar­inu að fjár­heim­ildir fram­halds­skóla­stigs­ins muni hækka um 4,3 pró­sent til árs­ins 2023 sam­kvæmt nýrri rík­is­fjár­mála­á­ætlun. Framlög á hvern nema hækk­uðu um 6,5 pró­sent milli áranna 2017 til 2018 og er gert ráð fyrir 8 pró­sent hækkun á næsta ári.

Niðurskurður framundan

Eina ráðið til að bregð­ast við aðstæðum er að skera niður, að sögn Más. „Við munum þurfa að fækka nem­endum við skól­ann, draga úr kennslu­kostn­aði og fækka stöðu­gildum,“ segir hann. Lík­leg­ast muni þurfa að fækka nem­endum um allt að hund­rað.

Már seg­ist vera búinn að leita allra mögu­legra lög­legra leiða, hann hafi meðal ann­ars sent ráð­herra ótal bréf og óskað eftir fundi. Ekki hafi verið brugð­ist við þeim óskum. Hann segir að við stjórn­ar­skiptin hafi orðið hik í ráðu­neyt­inu og hann upp­lifir sam­skiptin eins og það hafi algjör­lega verið skorið á þau. „Það er auð­veld­ara að fá fund með rík­is­end­ur­skoð­anda en með ráð­herra,“ segir hann að lokum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár