Íslensk erfðagreining heldur áfram að skima í viku í viðbót

Til stóð að dag­ur­inn í dag ætti að vera síð­asti dag­ur­inn sem Íslensk erfða­grein­ing myndi skima á landa­mær­unum.

Kári Stefánsson, forstjóri ÍE.
Kári Stef­áns­son, for­stjóri ÍE. Mynd: Bára Huld Beck

Íslensk erfða­grein­ing (ÍE) heldur áfram að greina sýni vegna skim­ana á landa­mærum í viku í við­bót, að því er fram kemur í frétt RÚV í dag.

Mikla athygli vakti í síð­ustu viku þegar Kári Stef­áns­son, for­stjóri ÍE, til­kynnti að fyr­ir­tækið ætl­aði að hætta skimun en til stóð að síð­asti dag­ur­inn ætti að vera í dag.

Hann sagði enn fremur í stöðu­upp­færslu á Facebook fyrir helgi að það væri ekki verk­efni ÍE að skima eftir veir­um. Fyr­ir­tækið hefði gert það á meðan far­ald­ur­inn gekk yfir landið vegna þess að þess hefði þurft og að eng­inn annar hefði verið til þess að gera það.

[links]Kári sagði að nú væri ástandið allt annað og ekki rétt­læt­an­legt fyrir ÍE að halda því áfram. Land­spít­al­inn væri „ágæt­lega í stakk búinn til þess að höndla þetta. Við munum gefa honum hug­búnað sem við settum saman til þess halda utan um sýni og gögn og senda þangað fólk til þess að kenna á hann. Og þess utan ef þau lenda í vanda, eða út í mýri, þá erum við hér, atvinnu­menn og konur í því að vera út í alls konar mýrum og kunnum að takast á við það og rjúkum til og hjálp­um. Þetta verður í fínu lag­i,“ skrif­aði hann fyrir helgi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár