Er Ísland land þitt?

Hvernig á fólk utan EES að setj­ast að á Íslandi til fram­búðar?

A.

Giftast eða eign­ast barn með Íslend­ingi

B. Búa yfir sér­þekk­ingu
C. Sleppa því að koma hingað


„Ef hann væri hjarta­skurð­læknir myndi málið kannski snúa öðru­vísi ... það eina sem ég get ráð­lagt ykkur er að gift­ast.“ Þetta sagði ónefndur lög­maður þegar ég spurði hvernig þáver­andi kær­asti minn, kanadískur blaða­maður og uppi­stand­ari, gæti fengið dval­ar­leyfi á Íslandi. Í sem stystu máli tók við langt og dýrt ferli með nei­kvæðum hvötum í boði Útlend­inga­stofn­unar áður en hann eygði von um að geta kallað Ísland land sitt.

Frjálst flæði fólks, fjár­magns, vöru og þjón­ustu er grund­völlur EES. Fólk fætt utan þess þarf hins vegar að hafa góða ástæðu til þess að mega setj­ast hér að. Allra best er að barna Íslend­ing eða gift­ast Íslend­ingi. Næstbest er að vera sér­fræð­ingur í ein­hverju sem íslenskt sam­fé­lag skortir, t.d. sér­hæft heil­brigð­is­starfs­fólk, for­rit­arar eða íþrótta­fólk. Sú sér­hæfða þekk­ing þarf þó að vera meiri og betri en nokkur annar býr yfir á EES svæð­inu og íslenskt fyr­ir­tæki þarf að votta það.

Þessi umfjöllun birt­ist fyrst í nýj­ustu útgáfu Mannlífs.

Dval­ar­leyfi vegna sér­fræði­þekk­ingar getur orðið grund­völlur ótíma­bund­ins dval­ar­leyfis – það er hins vegar ekk­ert víst í þessu. Báðir mögu­leik­arnir krefj­ast þess að fólk eigi böns af monní, því áður en kennitala og atvinnu­leyfi er komið í hús, sem getur tekið marga mán­uði, má fólk eðli máls­ins sam­kvæmt ekki vinna nema svart – einmitt af því það er hvorki komið með kenni­tölu né atvinnu­leyfi. Catch 22, ein­hver? Fyrir utan það krefst umsókn­ar­ferlið þess að við­kom­andi sé ekki lengur en þrjá mán­uði á Íslandi í senn sem flækir mál enn frekar. Þriðji mögu­leik­inn er aug­ljós­lega að gleyma hinum algræna skrúði og halda sig utan við EES.

Þurfum uppfærslu

En hvað með þá sem neita að gef­ast upp? Banda­ríska skóg­ar­höggs­mann­inn eða úkra­ínska kokk­inn? Þeirra bíður staður í Skóg­ar­hlíð, þangað sem allir vegir liggja. Útlend­inga­stofnun. Stofnun allra sem eru ekki Íslend­ingar. Stofnun sem, því miður, í hugum margra stendur fyrir tíma­frekt, dýrt og kvíða­vald­andi vesen. Í lok árs 2015 báru 17,9% Íslend­inga mikið traust til stofn­un­ar­innar sam­kvæmt MMR. Í skýrslu Alþjóða­mála­stofn­unar sem kom út fyrr á árinu sögð­ust 50% flótta­fólks og inn­flytj­enda bera mikið traust til stofn­un­ar­innar. Í sömu skýrslu er lagt til að Útlend­inga­stofnun verði lögð niður í núver­andi mynd. Í stað­inn verði til ný stofnun, sem sjái til þess að verk­efnin (sem heyra í dag undir tvö ráðu­neyti), verði ein­földuð og sam­þættuð.

Og fleira þarfn­ast upp­færslu; kerfin okkar og stofn­anir ættu að vinna í takt. Það þarf að stór­auka ensku- og tungu­mála­kunn­áttu innan ein­inga sem eiga í sam­skiptum við allan heim­inn, hafa sem reglu að kalla til túlk ef fólk skilur ekki hvort annað og taka upp raf­ræna stjórn­sýslu í meira mæli. Eða finnst ein­hverjum það góð hug­mynd að Útlend­inga­stofnun sendi bara bréf til skjól­stæð­inga, og þá er ég sér­stak­lega að vísa til þeirra sem mega bara vera á Íslandi 3 mán­uði í senn og eru því ólík­lega með fasta búsetu? Svo mætti skoða að leyfa fólki að borga með kredit­korti og hafa opið lengur en 5 tíma á dag.

Við þurfum að taka umræðuna

https://kjarninn.is/skyring/2017-11-24-er-island-land-thitt/Íslendingar með erlendan bak­grunn eru 8,9 pró­sent lands­manna. Það eru 31 þús­und manns, flestir frá Póllandi. Ef þessi hlut­föll myndu end­ur­spegl­ast á Alþingi sætu þar 6 þing­menn af erlendum upp­runa. Í síð­ustu kosn­ingum duttu hins vegar bæði Nicole og Pawel af þingi og eftir sitja 63 bornir og barn­fæddir Íslend­ingar. Hvað með æðstu starfs­menn fyr­ir­tækja, við­mæl­endur í ljós­vaka­miðlum, frétta­les­ara eða dóm­ara í Hæsta­rétti? Hversu margir eru ekki fæddir í Gnúp­verja­hreppi eða Breið­holt­inu? Íslend­ingar og útlend­ingar. Við og hinir. Þú og ég.

Í kringum 1900 fóru þús­undir Íslend­ingar til Kanada, gerð­ust Vest­ur­farar. Og við höfum sest að víðar með ágætis árangri. Í Brasilíu, Banda­ríkj­unum, Danmörku. Nokkur þús­und fóru til Noregs eftir hrun. Stundum er ástæða flutn­inga nei­kvæð; upp­skeru­brestur, skortur á tæki­færum, fátækt - hrun. Það er þó ekk­ert algilt. Suma langar bara að kynn­ast meiru af heim­inum áður en þeir drep­ast.

Við ferð­umst meira en nokkru sinni fyrr og fjöldi ferða­manna hingað hefur ýtt undir sögu­legt góð­æri. Aldrei fleiri erlendir rík­is­borg­arar hafa greitt skatt á Íslandi en árið 2016 og Hag­stofan spáir stöðugri fjölgun nýbúa næstu árin. Við stöðvum ekki þessa þróun en við ráðum hvernig við bregð­umst við henni. Ætlum við að berj­ast við vind­myllur eða byggja upp vandað og not­enda­vænt kerfi sem býður fólk vel­komið?

--

Þessi kanadíski kær­asti sem ég nefndi í upp­hafi gat bara valið mögu­leika A (í sam­ráði við mig), þar sem hvorki blaða­mennska né uppi­stand er skil­greind sem sér­fræði­kunn­átta. Ári eftir gift­ingu gat hann loks sótt um dval­ar­leyfi á grund­velli hjóna­bands og er nú nýr Íslend­ingur.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár