Stjórnvöldum heimilt að takmarka mannréttindi

Til að bregð­ast við hættu­legum smit­sjúk­dómum eins og Covid-19 hafa stjórn­völd vítt svig­rúm til að tak­marka rétt­indi fólks og fyr­ir­tækja. Kröfur um að stjórn­völd rann­saki afleið­ingar ráð­staf­anna sinna aukast þó eftir því sem lengra líður á.

Vítt svigrúm stjórnvalda
Vítt svig­rúm stjórn­valda Páll Hreins­son telur að stjórn­völd hafi vítt svig­rúm til að tak­marka rétt­indi í bar­átt­unni gegn Covid-19. Mynd: Heiða Helgadóttir

Stjórn­völd hafa vítt svig­rúm til að tak­marka mann­rétt­indi sem varin eru af stjórn­ar­skrá og mann­rétt­inda­sáttt­mála Evrópu, sem lið í að bregð­ast við til verndar lífi og heilsu manna í bar­áttu við hættu­lega smit­sjúk­dóma eins og COVID-19. Hið sama á við um rétt­indi ein­stak­linga og fyr­ir­tækja sam­kvæmt ákvæðum EES-samn­ings­ins.

Þetta kemur fram í álits­gerð Dr. Páls Hreins­sonar, for­seta EFTA-dóms­dóls­ins, sem unnin er að beiðni íslenskra stjórn­valda, um vald­heim­ildir sótt­varna­læknis og heil­brigð­is­ráð­herra til opin­berra sótt­varn­ar­að­gerða.

Í þágu brýnna almannahagsmuna

Í álits­gerð­inni kemur fram að margar sótt­varn­ar­ráð­staf­anir tak­marki óhjá­kvæmi­lega mann­rétt­indi. Um þessi rétt­indi gildi að jafn­aði að víkja megi frá þeim í þágu brýnna almanna­hags­muna, til að mynda verj­ast far­sóttum til verndar lífi manna og heilsu þeirra. Stjórn­völdum sé ekki aðeins heim­ilt að grípa til ráð­stafna við slíkar aðstæður heldur hvíli á þeim frum­kvæð­is­skylda til að bregð­ast við far­sóttum með virkum úrræðum til verndar lífi og heilsu manna.

Því verði að telja að stjórn­völd hafi tölu­vert svig­rúm til þess að meta hvernig best sé að mæta slíkum far­aldri, án þess að lögð sé sú skylda á stjórn­völd að byrja fyrst á væg­ari úrræðum. „Væri það gert afbrigða­laust væru manns­líf og heilsa almenn­ings sett í hættu,“ segir í álits­gerð­inni.

Hafa verði í huga að COVID-19 sé nýr smit­sjúk­dómur og þekk­ing af mjög skornum skammti. Eftir því sem lengra líði verði hins vegar að ætla að kröfur auk­ist um að stjórn­völd rann­saki betur og afli upp­lýs­inga um virkni þeirra ráð­staf­ana sem gripið hefur verið til. Þá þurfi jafn­framt að afla upp­lýs­inga um það tjón sem slíkar aðgerðir hafa valdið. Með því ættu ráð­staf­anir að geta orðið mark­viss­ari.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár