Frakkland 2016

Róttækar breyt­ingar, umskipti, krefj­andi og tíma­bær verk­efni. Þetta verður erfitt og eflaust róst­ur­samt ár; en það eru bjartir tímar framundan. Svona eru skila­boð ráða­manna frönsku þjóð­ar­innar fyrir árið 2016. Ásýnd og skipu­lag Parísar tekur miklum stakka­skiptum.

Neyðarástand enn í gildi

Blóð­ug­ustu ofbeld­is­verk síðan í seinni heim­styrj­öld­inni settu mark sitt á árið sem var að líða. Alls lét­ust 147 manns í hryðju­verka­árásum, lýst var yfir neyð­ar­á­standi sem hafði ekki gerst síðan í Alsír-stríð­inu á sjötta ára­tug síð­ustu aldar. Framundan eru rót­tækar stjórn­ar­skrár­breyt­ingar til þess að fram­lengja þau lög. Með því er nán­ast ekk­ert eft­ir­lit haft með lög­regl­unni og leyni­þjón­ust­unni í að fylgj­ast með og hand­taka almenna borg­ara.

Uppi eru hug­myndir að banna hrein­lega opið, þráð­laust net og öllum gert skylt að nafn­greina sig skil­merki­lega á net­inu til þess að koma í veg fyrir und­ir­bún­ing hryðju­verka.

Það er svo meg­in­tak­mark stjórn­valda á árinu að gera út af við DAESH sam­tökin með sam­eig­in­legu heims­átaki. Það er hins vegar mikið álita­mál hvort auknar árs­ásir í Sýrlandi og Írak, aukið eft­ir­lit með almenn­ingi skili sér í örugg­ari fram­tíð.

Stærri og öflugari París

Frakkar líta á París sem meira og annað en sína höf­uð­borg – hún er höf­uð­borg heims, vest­rænnar menn­ingar, frjálsrar hugs­unar, lýð­ræðis. En samt er eng­inn sam­mála um hvernig París eigi að vera og líta út. Í þús­und ár hafa Par­ís­ar­búar rif­ist um skipu­lags­mál. Þegar Haussman tók París í gegn og bjó til fyrstu nútíma­borg­ina kom þessi end­an­lega mynd á hana; þessi rjóma­guli, sex hæða, art-nouveau stíll. Eftir það mátti engu breyta í París. Enginn má mála húsið sitt grænt eða breyta svöl­unum, laga glugga­karmana. Það er hrein­lega bannað með lögum. Hún er eins og hún er. En París má samt ekki vera Róm, hún má ekki vera safn um sjálfa sig; breyt­ast smátt og smátt í forn­minjar. Hún verður að þró­ast stöðugt og end­ur­nýj­ast. Þess vegna fékk Mitt­er­and að byggja gler­pýramíd­ann sinn fyrir framan Louvre-safnið. Hann var tákn um fram­tíð­ina í for­tíð­inni. Eða for­tíð­ina í fram­tíð­inni. Sem er kannski hinn eig­in­legi andi Parísar.

Um ára­mótin tók í gildi nýtt borg­ar­skipu­lag. Borg­ar­mörkin hafa verið stækkuð og víkkuð út og ná nú langt út fyrir Périphérique hring­braut­ina. París hefur stækkað! Úthverfin eru því orðin partur af borg­inni sem nær nú yfir 814 fer­kíló­metra og telur um sjö millj­ónir íbúa. Áform erum um að stækka lest­ar­kerfið og efla almenn­ings­sam­göngur. Draga skal úr mengun með fjölgun hjóla- og göngu­stíga, á meðan bíla­götum verður fækkað.

París ætlar sér að verða mesta hjól­reiða­borg Evrópu innan nokk­urra ára. Franskir atvinnu­rek­endur eru hvattir til þess að verð­launa starfs­menn sér­stak­lega sem mæta á hjóli í vinn­una og greiða því fyrir hvern kíló­metra sem það hjólar. Þannig geta starfs­menn aukið tekjur sínar og sömu­leiðis bætt heils­una, fyr­ir­tækið sparar bíla­stæða­kostnað og dregið er úr mengun í borg­inni. Allra hagur.

Landakortið breytist

Um ára­mótin tók í gildi ný stjórn­skipan í Frakk­landi. Héröð hafa verið sam­einuð og þeim fækkað úr 22 í 13. Einfalda á stjórn­kerfið og gera það hag­kvæmara og skil­virkara. Umtals­verðar breyt­ingar á skatt­kerf­inu taka sömu­leiðis gildi. Það skal verða ein­fald­ara og sann­gjarn­ara. Meira verður litið til tekna og beinnar afkomu fólks og fyr­ir­tækja og dregið verður úr beinum nef­skatti og ýmis­konar gjöldum. Hið nýja skatt­kerfið er sagt vera í takt við það breska: „pay as you earn“.

Airbnb skattskyld og plastpokar bannaðir

Deili­hag­kerfið, og allir þeir sem stunda við­skipti í gegnum Airbnb, Drivy og BlaBlacar og sam­bæri­legar síður, er nú gert skylt að skila upp­gjöri til skatt­stjóra. Þessi starf­semi verður því gerð skatt­skyld á árinu. Mikill þrýst­ingur hefur verið á stjórn­völd að þessi starf­semi sé rekin á jafn­rétt­is­grund­velli við aðra sam­bæri­lega starf­semi og greiði því sams­konar opin­ber gjöld. Rík­is­sjóður býst auð­vitað við stór­auknum tekjum með þessum aðgerðum.

Í kjöl­far árang­urs­ríkrar loft­lags­ráð­stefnu í París verður ráð­ist í umfangs­miklar aðgerðir til þess að draga úr mengun. Draga skal úr notkun plast­poka og hrein­lega banna þá í mat­vöru­versl­unum. Matvæli eiga að vera pökkuð inn í efni sem hægt er að end­ur­vinna. Á næsta ári, 2017, verður svo bannað að pakka ávöxtum og græn­meti í plast.

Horft til Kína

Frönsk stjórn­völd hafa gert hosur sínar grænar fyrir Kín­verjum og gert mikið til þess að efla sam­skipti ríkj­anna. Frakkar búast við auknum fjölda ferða­manna frá Kína og ráð­gert er að kín­verskir lög­reglu­menn muni áfram aðstoða lög­regl­una í París næst­kom­andi sumar til þess að bæta þjón­ustu við þennan mik­il­væga ferða­manna­hóp. Kín­verjar kaupa mikið af frönskum lúxus- og merkja­varn­ingi og hafa gert mik­il­vægar fjár­fest­ingar í Frakk­landi. Þetta daður við Kínverja er ekki síst gert til þess að hrista efna­hags­lífið aftur í gang.

EM 2016

Mikil eft­ir­vænt­ing ríkir fyrir Evr­ópu­keppni lands­liða í fót­bolta enda er búist við mörg hund­ruð þús­und ferða­mönnum í kringum þann við­burð. Það er mikil áskorun fyrir Frakk­land að halda þessa keppni í kjöl­far hryðju­verka­árása og neyð­ar­á­stands og tryggja öryggi allra gesta og kepp­enda næst­kom­andi sumar.

Franska lands­liðið er síðan mikil ráð­gáta. Það gæti unnið eða tapað öllum leikjum. Stundum er það brillj­ant – og stundum getur það ekki neitt. Það er ungt og spenn­andi; lyk­il­menn eins og Benzema eru farnir á brott eftir kyn­lífs­hneyksli og ýmis vand­ræði. Það kemur í ljós hvort að nýja kyn­slóðin end­ur­taki leik­inn frá 1998 þegar Frakkar unnu HM á heima­velli.

Bráðum kemur betri tíð

Í ræðum og ritum virð­ist for­ystu­fólk Frakk­lands vera afar bjart­sýnt þessi ára­mót þrátt fyrir mikla erf­ið­leika í efna­hags­líf­inu, atvinnu­leysi, hryðju­verk og upp­gang öfga­flokka. Það talar um unga og dug­lega þjóð, öfl­ugt fjöl­menn­ing­ar­sam­fé­lag og hag­vöxt. Gildi lýð­veld­is­ins, frelsi, jafn­rétti og bræðra­lag standa enn traustum fótum í þjóð­líf­inu. Iðnaður, fram­leiðsla og ferða­mennska er í vexti og atvinnu­leysi fer þrátt fyrir allt minnk­andi. Frakk­land mun enn fremur leika lyk­il­hlut­verk í milli­ríkja­deilum, alþjóða­samn­ingum og alþjóð­legu sam­starfi á kom­andi ári.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár