Mun meira kynbundið ofbeldi í útgöngubanni

Þrátt fyrir að útgöngu­bann auki veru­lega líkur á ofbeldi gagn­vart konum og trans­fólki hefur mála­flokk­ur­inn fengið lítið sem ekk­ert fjár­magn í aðgerðum stjórn­valda víða um heim til að bregð­ast við afleið­ingar heims­far­ald­urs­ins.

Yfir­stand­andi heims­far­aldur gæti leitt til mik­ils bakslags í bar­átt­unni gegn kynd­bundnu ofbeldi, en búist er við að það auk­ist um fimmt­ung þegar útgöngu­bann stendur yfir. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu hjálp­ar­sam­tak­anna Oxfam um stöðu ójafn­aðar í heim­inum sem kom út fyrr í dag.

Faraldur kynbundins ofbeldis

Samkvæmt sam­tök­unum geisar nú far­aldur kyn­bund­ins ofbeldis sem hefur magn­ast upp vegna ýmissa afleið­inga far­ald­urs­ins. Þar nefna þau sér­stak­lega útgöngu­bann, en einnig hafi aukið efna­hags­legt óör­yggi, og erf­ið­ara aðgengi að vörum og þjón­ustu leitt til þess að líkur á slíku ofbeldi hafi auk­ist.

Í skýrsl­unni er vitnað í nið­ur­stöður mann­fjölda­sjóðs Sam­ein­uðu þjóð­anna, en sam­kvæmt þeim myndi þriggja mán­aða útgöngu­bann á heims­vísu leiða til 15 millj­óna heim­il­is­of­beld­is­at­vika. Vandinn hefur einnig aðrar birt­inga­myndir, en sam­kvæmt Sam­ein­uðu þjóð­unum myndu tveimur millj­ónum kvenna vera mein­aður aðgangur að getn­að­ar­vörnum á þeim tíma.

Þar að auki hefur morð­tíðni á meðal kvenna og trans­fólks hækkað, en konur í Bret­landi eru nú þrisvar sinnum lík­legri til að vera myrtar en þær voru fyrir ára­tug síðan. Sömu­leiðis hafa morð á trans­fólki auk­ist um sex pró­sent, en þar eru 98 pró­sent fórn­ar­lambanna trans­konur.

Þrátt fyrir þessar vís­bend­ingar hefur litlu sem engu fé verið varið í að bæta stöðu þess­ara þjóð­fé­lags­hópa í sér­stökum aðgerð­ar­pökkum stjórn­valda, en sam­kvæmt Oxfam hefur 0,0002 pró­sent af við­bragðs­að­gerðum þeirra vegna veirunnar farið til að berj­ast gegn kyn­bundnu ofbeldi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár