Verkföllum Eflingar frestað frá og með morgundeginum

Verk­falls­að­gerðum sem staðið hafa yfir hjá félags­mönnum Eflingar sem starfa hjá Kópa­vogsbæ, Sel­tjarn­ar­nesbæ, Mos­fellsbæ, Hvera­gerð­isbæ og Sveit­ar­fé­lag­inu Ölfus hefur verið slegið á frest vegna COVID-19 far­ald­urs­ins.

Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar.
Sólveig Anna Jóns­dóttir, for­maður Eflingar. Mynd: Bára Huld Beck

Samn­inga­nefnd Eflingar hefur ákveðið að fresta verk­falls­að­gerðum sem staðið hafa yfir hjá félags­mönnum sem starfa hjá Kópa­vogsbæ, Sel­tjarn­ar­nesbæ, Mos­fellsbæ, Hvera­gerð­isbæ og Sveit­ar­fé­lag­inu Ölfus.

Verk­fallið, sem staðið hefur yfir yfir frá 9. mars, mun því hætta tíma­bundið frá og með morg­un­deg­inum, 25. mars 2020. Félags­mönnum Eflingar hjá umræddum sveit­ar­fé­lögum er því heim­ilað að ganga til reglu­bund­inna starfa sam­kvæmt ráðn­ing­ar­samn­ingum frá og með klukkan 00:01 á morgun.

[adspot]

Í yfir­lýs­ingu frá samn­inga­nefnd Eflingar gagn­vart ofan­greindum sveit­ar­fé­lög segir að COVID-19 far­ald­ur­inn hafi leitt til mik­illar óvissu á öllum sviðum sam­fé­lags­ins, meðal ann­ars í starf­semi stofn­ana þar sem félags­menn Eflingar vinna. „Í því ástandi teljum við skyn­sam­leg­ast að fresta verk­falls­að­gerðum þangað til far­ald­ur­inn er lið­inn hjá. Við höfum átt sam­ráð við okkar félags­menn um þessa ákvörðun og tökum hana með stuðn­ingi þeirra.

Við munum aldrei taka annað í mál en að félagar okkar hjá Kópavogi, Sel­tjarnesbæ og víðar fái kjara­bætur sam­bæri­legar þeim sem var í kjara­samn­ingum Eflingar við ríkið og Reykja­vík­ur­borg. Við erum til­búin að hefja verk­falls­að­gerðir af krafti á nýjan leik þegar far­ald­ur­inn hefur gengið yfir og það er ein­dregin stuðn­ingur meðal félags­manna okkar fyrir því. Þá höfum við mót­tekið afger­andi sam­stöðu­yf­ir­lýs­ingu frá félögum okkar hjá Reykja­vík­ur­borg. Við erum því reiðu­búin að mæta fílefld í verk­falls­að­gerðir innan nokk­urra vikna, mögu­lega í umfangs­meiri og beitt­ari mynd en hingað til.“

Sólveig Anna Jóns­dóttir, for­maður Eflingar, segir að félags­menn­irnir vinni flestir við grunn­þjón­ustu og umönnun og þeir skilji mjög vel hvað veiru­fald­ur­inn þýði fyrir sam­fé­lagið. „Þeir hafa sýnt mikla ábyrgð vegna far­ald­urs­ins, til dæmis með því að veita rúmar verk­fallsund­an­þágur. Sveit­ar­fé­lögin hafa hins vegar kosið að nýta sér far­ald­ur­inn á ein­stak­lega ómerki­legan hátt til að hamla eðli­legum fram­gangi við­ræðna. Skömm Sambands íslenskra sveit­ar­fé­laga er mikil. Ósvífni þeirra breytir því þó ekki að félags­menn okkar hjá Kópavogi og hinum sveit­ar­fé­lög­unum munu fá sínar eðli­legu kjara­bætur.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár