Finnst nafnið sitt hljóma vel með „sir“ fyrir framan

Kór­ónu­veiru­far­ald­ur­inn hefur leikið Breta grátt og heil­brigð­is­kerfið hefur átt fullt í fangi með að stand­ast álagið. Í miðju fár­viðr­is­ins birt­ist hund­rað ára gam­all maður með göngu­grind sem lyfti anda þjóð­ar­innar og heims­byggð­ar­innar allrar.

Thomas Moore með orðurnar sínar fagnar því að fá aðalstign.
Thomas Moore með orð­urnar sínar fagnar því að fá aðals­tign. Mynd: EPA

Þegar Thomas Moore ákvað að ganga hund­rað hringi í garð­inum við heim­ili sitt áður en hann yrði hund­rað ára von­að­ist hann til að safna um þús­und pundum, um 175 þús­und krónum, til styrktar bresku heil­brigð­is­kerfi. Það sem hins vegar gerð­ist er krafta­verki lík­ast. Að minnsta kosti gat Moore ekki ímyndað sér að við­brögðin yrðu jafn stór­kost­leg og þau urðu. Hvað þá að hann myndi fá per­sónu­lega kveðju frá krón­prinsi lands­ins. Her­mað­ur­inn fyrr­ver­andi safn­aði í heild­ina um 40 millj­ónum punda með upp­á­tæki sínu eða um sjö millj­örðum króna.

„Ég hafði ekki hug­mynd um að þetta yrði svona vin­sælt,“ segir Moore um áheita­söfn­un­ina. „Þetta var bara hug­mynd sem kom upp innan fjöl­skyld­unnar. Að ég myndi ganga um til að hreyfa mig. En svo óx þetta og óx.“

Moore studd­ist við göngu­grind er hann fór hring­ina sem urðu að end­ingu tvö hund­ruð og með orður sem hann hafði fengið fyrir fram­lag sitt í síð­ari heims­styrj­öld­inni á brjóst­inu. Hann fór út að ganga í hvaða veðri sem var og fang­aði þar með hjörtu Breta og margra ann­arra um heim allan. „Fyrsti hring­ur­inn var erf­ið­astur,“ segir hann, „en eftir hann þá komst þetta upp í vana.“

Þegar hann svo náði tak­marki sínu á hund­rað ára afmæl­is­dag­inn, flugu Spitfire-flug­vélar yfir húsið honum til heið­urs. Þá fékk hann yfir 120 þús­und kort með heilla­óskum. Moore gamli var orð­inn alþjóð­leg hetja.

[adspot]

Til að vekja enn meiri athygli á mál­staðnum gaf hann ásamt Michael Ball út hvatn­ing­ar­lag sem náði fyrsta sæti á breskum vin­sælda­listum. Moore seg­ist hafa hugsað um boð­skap lags­ins á göng­unni – að halda áfram að ganga með von í hjarta. Og þegar sífellt fleira fólk um allan heim lét fé af hendi rakna til söfn­un­ar­innar gerði hann einmitt það: Hélt áfram að ganga. „Og ég naut hvers skrefs sem ég tók“.

Moore segir að lyk­il­inn að því að lifa löngu og ham­ingju­ríku lífi felist í því að vera jákvæður og búast alltaf við hinu besta. „Ég held að eng­inn hugsi um það að verða hund­rað ára. Þegar ég var fimm­tugur þá gat ég ekki ímyndað mér að líf mitt væri hálfnað. Núna þegar ég er orð­inn hund­rað ára þá líður mér ekk­ert öðru­vísi en þegar ég var 99 ára. Ég er mjög ánægður að hafa náð þessum aldri og svo kemur bara í ljós hvað ég tóri lengi.“

Að sitja aðgerð­ar­laus hefur aldrei verið Moore að skapi. „Allt frá því að ég var lít­ill drengur þá var ég alltaf að gera eitt­hvað. Áður en að ég fór að eiga í vand­ræðum með fót­inn þá eyddi ég miklum tíma í garð­vinnu. Ég er jafn­þungur núna og ég var 21 árs!“

Thomas Moore fædd­ist árið 1920 í Keighley í Yorks­hire. Hann lagði fór í verk­fræði­nám en var kvaddur í her­inn um tví­tugt og varð að gera hlé á nám­inu meðan hann gengdi her­þjón­ustu í síð­ari heims­styrj­öld­inni. Her­deildin hans hafði það hlut­verk að verja strönd­ina við Cornwall fyrir mögu­legri inn­rás Þjóð­verja. Síðar var hann sendur til Indlands og einnig Búrma til að verja þessi lönd, sem þá voru nýlendur Breta, fyrir inn­rásum Japana.

Hann minn­ist þess ekki að hafa ótt­ast um líf sitt. „Þegar þú ert í hernum og ert tví­tugur þá ertu ekki að hugsa mikið um hvort þú sért í hættu. Ég man ekki eftir því að hafa verið hræddur. Kannski hefði ég átt að vera það! En við lifðum af.“

Honum verður oft hugsað til áranna í hernum og þeirra félaga sem hann eign­að­ist. „Ég myndi gera þetta allt aftur ef ég gæti.“

Moore mun á næst­unni gefa út tvær bækur. Önnur þeirra verður ævi­saga og útgefin af góð­gerða­sam­tökum sem stofnuð hafa verið í hans nafni. Hin verður barna­bók. „Það hvarfl­aði aldrei að mér að ein­hver myndi hafa áhuga á sögu minni og ég átti svo sann­ar­lega ekki von á því að hún yrði ein­hvern tím­ann gefin út. Ég er svo­lítið smeykur að segja frá öllum mínum leynd­ar­málum!“

Þakkar fyrir heiðurinn

Und­ir­skrifta­söfnun hefur verið í gangi um hríð um að aðla beri Moore fyrir afrek sitt. Sjálfur hafði hann litla trú á að það yrði nokkru sinni að veru­leika. Honum fannst hug­myndin góð og fannst nafnið sitt hljóma vel með „sir“ fyrir framan.

En nú er þetta orðið að veru­leika. Thomas Moore, sem gekk tvö hund­ruð hringi í garð­inum sínum og safn­aði á meðan áheitum fyrir breska hjúkr­un­ar­fræð­inga, hefur fengið aðals­tign að til­lögu Boris Johnson for­sæt­is­ráð­herra sem kallar Moore „sann­kallað þjóð­ar­ger­semi“.

Í beinni útsend­ingu á BBC í gær­morgun sagð­ist Moore vera hrærður og þakk­látur. Hann sagð­ist stein­hissa að þessi heiður félli honum í skaut. Í fyrstu hélt hann jafn­vel að um grín væri að ræða. „En það virð­ist sem þetta hafi gerst í raun og veru!“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár