Andleg heilsa sem hinn sanni ólympíuandi

Sögu­legir sigrar og stór­brotin íþrótta­afrek eru ekki það sem vetr­ar­ólymp­íu­leik­anna í Beijing verður minnst fyrir. Hvernig kepp­endur brugð­ust við erf­iðum áskor­unum og áhrif þeirra á and­lega heilsu er það sem stendur upp úr eftir leik­ana.

Kamila Valieva, 15 ára listdansskautari frá Rússlandi, varð ein helsta stjarna vetrarólympíuleikanna í Beijing. Ástæða þess er þó umdeild.
Kamila Valieva, 15 ára list­dans­skaut­ari frá Rúss­landi, varð ein helsta stjarna vetr­ar­ólymp­íu­leik­anna í Beijing. Ástæða þess er þó umdeild. Mynd: EPA

Nærri þrjú þús­und kepp­endur tóku þátt í 109 keppn­is­greinum á 24. vetr­ar­ólymp­íu­leik­unum sem lauk í Beijing í Kína um síð­ustu helgi. Noregur fór heim með flestar gull­medal­íur, Finnar unnu til gull­verð­launa í fyrsta sinn þegar þeir lögðu Rússa í ísknatt­leik og breska kvenna­liðið í krullu hreppti fyrstu og einu gull­verð­laun Breta á leik­unum.

Fjöldi gull­verð­launa og skipt­ing þeirra var hins vegar ekki það sem vakti mesta athygli á vetr­ar­ólymp­íu­leik­unum í Beijing. Alþjóða­ólymp­íu­nefndin hefur verið gagn­rýnd fyrir að hunsa alfarið and­lega og lík­am­lega heilsu íþrótta­fólks.

Í opnu bréfi sem birt­ist í Washington Post eftir Richard W. Pound, sem hefur setið hvað lengst í alþjóða­ólymp­íu­nefnd­inni, full­yrðir hann að ólymp­íu­leikar geri heim­inn að betri stað og að nefndin setji ólymp­íu­fara ávallt í fyrsta sæti. Margt bendir hins vegar til þess að á vetr­ar­ólymp­íu­leik­unum í Beijing hafi ýmis­legt annað en vel­ferð íþrótta­fólks­ins verið í for­gangi, svo sem íburður og gróði, og hafi það ekki síst sést á and­legri heilsu kepp­enda. Pressan var ein­fald­lega óbæri­leg oft á tíðum.

Simone Biles átti að veita bandarískum keppendum innblástur

Í her­búðum Banda­ríkj­anna fyrir leik­ana var and­leg heilsa kepp­enda sett í for­grunn. Simone Biles, fremsta fim­leika­kona heims, setti tón­inn á ólymp­íu­leik­unum í Tókýó síð­asta sumar þegar hún dró sig að hluta úr keppni þar sem hún sagð­ist þurfa að ein­beita sér að and­legri heilsu sinni. Ákvörðun Biles vakti heims­at­hygli og hlaut hún mikið lof fyr­ir að vekja at­hygli á and­legri heilsu íþrótta­fólks, þrátt fyrir að gagn­rýn­is­radd­irnar hafi ekki verið langt undan.

Biles átti því að vera banda­rísku kepp­end­unum í Beijing hug­leikin þegar leik­arnir hófust í upp­hafi mán­að­ar­ins. Biles hafði veitt til­finn­ing­unum sem flest íþrótta­fólk upp­lifir rödd, til­finn­ingum á borð við efa, áhyggjur og að upp­lifa gríð­ar­lega pressu. Með því að tala opin­skátt um and­lega heilsu voru kepp­endur ekki lengur ber­skjald­aðir. Biles minnti aðdá­endur, vini og fjöl­skyldu á að jafn­vel besta íþrótta­fólks heims hefur til­finn­ingar og upp­lifir ótta.

„Það sem Biles gerði var kröft­ugt og sendi okkur skýr skila­boð, að það er í lagi að vera ekki allt í lagi,“ segir Anna Gasser í sam­tali við New York Times. Grasser hefur unnið til gull­verð­launa á snjó­bretti og keppti nú á sínum þriðju leikum.

En það reyndi svo sann­ar­lega á and­lega heilsu banda­rísku kepp­end­anna, auk fjölda ann­arra, á leik­unum.

„Nú er mér líka kalt á rassinum“

Mikaela Shiffrin, ein fremsta skíða­kona heims í alpa­greinum, var von­ar­stjarna Banda­ríkj­anna á leik­unum, rétt eins og Biles var á sum­ar­ólymp­íu­leik­unum. Hún gat orðið fyrst Banda­ríkja­manna til að vinna til þriggja gull­verð­launa á einu og sömu vetr­ar­leik­unum og var hún talin eiga raun­hæfa mögu­leika á því. Mörgum stóð því ekki á sama þegar hún keyrði út úr braut­inni í fyrstu keppn­is­grein­inni, stór­svigi. Daginn eftir gerð­ist það sama, hún skíðaði út úr braut­inni ofar­lega í brekkunni. Fjöl­miðlar veittu ógöngum Shiffrin athygli, of mikla að margra mati, og voru gagn­rýndir fyrir að sýna Shiffrin sitj­andi í brekkunni með kross­lagðar hendur yfir hnén.

Shiffrin tók þá ákvörðun eftir keppn­is­grein­arnar tvær að veita fjöl­miðlum ekki frek­ari við­töl. Hún tók alls þátt í sex greinum en náði sér ekki á strik og lauk leik­unum án verð­launa. Shiffrin gerði upp leik­ana að þeim loknum þar sem hún fór meðal ann­ars yfir það sem hún hugs­aði eftir að hafa skíðað út úr braut­inni. „Það er kannski ekki eins áhuga­vert og fólk vill halda. Mér var kalt og ég sett­ist í snjó­inn en hugs­aði um leið: Þetta var mjög slæm hug­mynd, nú er mér líka kalt á rass­inum og blaut - mér leið eins og væri föst.“

Shiffrin við­ur­kennir að hún hafi byrjað að efast um skíða­iðkun sína, ekki síst eftir að henni bár­ust mörg sví­virði­leg skila­boð eftir frammi­stöð­una. En hún ákvað að bregð­ast við með því að birta þau og taka þannig völdin af nettröll­unum.

Of mikil pressa er ekki það sem varð Shiffrin að falli á leik­unum að hennar mati. „Það hræðir mig ekki að detta, sér­stak­lega þar sem ég datt þar sem ég var að leggja mig alla fram, kannski of mikið,“ segir Shiffrin, sem er stað­ráðin í að skíða á ný, og það fljót­lega. „Það er hægt að mis­takast án þess að vera mis­heppnuð.“

Óbærileg pressa á 15 ára stúlku

Önnur keppn­is­grein sem vakti mikla athygli á leik­unum var list­dans á skautum. Það ætti ekki að koma á óvart, enda fangar greinin gjarnan athygli flestra, óháð áhuga á vetr­ar­í­þróttum yfir höfuð.

Augu allra beindust fljótt að hinni 15 ára gömlu Kamilu Valievu. Stuttu eftir að leik­arnir hófust kom í ljós að Valieva hafði fallið á lyfja­prófi sem var tekið eftir rúss­neska meist­ara­mótið í des­em­ber. Nið­ur­stöð­urnar bár­ust hins vegar ekki fyrr en eftir að Valieva keppti í liða­keppn­inni en áður en keppni hófst í flokki ein­stak­linga.

Lyfið sem greind­ist í sýni hennar er hjarta­lyfið trimetazidine sem getur aukið úhald. Alþjóða íþrótta­dóm­stóll­inn ákvað hins vegar að veita Valievu leyfi til að halda áfram keppni, meðal ann­ars sökum ungs aldur hennar og að það gæti valdið henni var­an­legum skaða að banna henni að taka þátt á leik­unum.

Allt gerð­ist þetta á örfáum dögum og voru því allra augu á Valievu þegar hún steig á ísinn í ein­stak­lingskeppn­inni. Fyr­ir­komu­lag keppn­innar er með þeim hætti að fyrri dag­inn skauta kepp­endur svo­kall­aðar skyldu­æf­ingar og dag­inn eftir frjálsar æfingar. Sam­an­lögð ein­kunn gildir svo til að ákvarða árangur kepp­enda.

Valieva var efst eftir skyldu­æf­ingar en þegar kom að frjálsu æfing­unum var ljóst að hún var mjög stressuð, pressan var gríð­ar­leg og það fór ekki á milli mála að allir voru að fylgj­ast með henni. Valieva féll nokkrum sinnum á meðan æfing­unum stóð og fljót­lega varð ljóst að hún kæm­ist ekki á pall. Ein­hverjir önd­uðu þá léttar þar sem nú var mögu­legt að halda verð­launa­af­hend­ingu. Alþjóða­ólymp­íu­nefndin hafði nefni­lega gefið það út fyrir keppn­ina að verð­launa­af­hend­ing færi ekki fram ef Valieva yrði í einu af þremur efstu sæt­unum.

Valieva brast í grát eftir að hún lauk keppni og við­brögð þjálf­ara hennar vöktu athygli en hún virt­ist skamma Valievu harð­lega fyrir frammi­stöð­una. Valieva kom þjálf­ara sínum til varnar á færslu á Instagram eftir leik­ana. „Með þér mér við hlið líður mér öruggri og finnst ég vera til­búin í hvaða áskorun sem er. Takk fyrir að hjálpa mér að vera sterk. Ég verð ein af þessum góðu,“ skrifar hún í færsl­unni.

„Ég ætla aldrei að skauta aftur“

Tvær rúss­neskar skauta­drottn­ingar komust hins vegar á verð­launa­pall. Anna Shcherbakova fékk gull og Alex­andra Trusova silfur. Báðar eru þær 17 ára. Viðbrögð Trusovu vöktu athygli en hún var afar ósátt með nið­ur­stöð­una og lét þjálf­ar­ann sinn heyra það. „Allir fá gull­verð­laun nema ég. Ég hata skauta. Ég hata alla. Ég hata þessa íþrótt. Ég ætla aldrei að skauta aftur. Aldrei. Þetta er ömur­legt. Svona á þetta ekki að vera,“ sagði Trusova.

Aðspurð á blaða­manna­fundi eftir keppn­ina af hverju hún hefði grátið sagði Trusova að svarið væri ein­falt. „Af því bara. Ég vildi gráta og þess vegna grét ég. Ég hef verið ein í þrjár vikur, án mömmu minnar og hund­anna minna. Þess vegna grét ég,“ sagði hún.

Tak­mark­anir vegna COVID-19 settu settu óneit­an­lega auk­inn þrýst­ing á kepp­endur í ár, líkt og Trusova greindi frá. Kepp­endur nutu ekki stuðn­ings fjöl­skyldu og vina þar sem áhorf­endur voru ekki leyfðir á leik­unum.

Trusova stóð þó ekki við stóru orðin og var mætt aftur á ísinn á loka­degi leik­ana, sem Wonder Woman á gala­sýn­ingu sem var hluti af loka­at­höfn leik­anna. Hvað hún var hins vegar að hugsa um á meðan sýn­ing­unni stóð liggur ekki fyrir.

Hávær krafa um að hækka lágmarksaldur keppenda

Ungur aldur kepp­enda hefur líka verið til umræðu eftir leik­ana, sér­stak­lega í keppni á list­skautum. Valieva er aðeins 15 ára og mörgum þykir um of að leggja það á barn að keppa á Ólymp­íu­leikum, hvað þá þegar lyfja­hneyksli bæt­ist ofan á allt saman.

15 ára er einmitt lág­marks­aldur Alþjóða­skauta­sam­bands­ins til að öðl­ast keppn­is­rétt en nú heyr­ast raddir þess efnis að hækka verði ald­ur­inn, meðal ann­ars frá kepp­endum og þjálf­urum í grein­inni. Þannig geti kepp­endur borið ábyrgð á sjálfum sér og haft meiri þroska í að takast á við press­una sem fylgir keppnum eins og ólymp­íu­leikum.

Í þessu sam­hengi hefur verið litið til fim­leika á sum­ar­ólymp­íu­leikum þar sem með­al­aldur kven­kyns þátt­tak­enda hefur farið hækk­andi eftir að lág­marks­aldr­ur­inn var hækk­aður í 16 ár fyrir leik­ana í Sydney árið 2000.

Með­al­aldur fim­leika­kvenna sem tóku þátt á Ólymp­íu­leik­unum í Tókýó í fyrra var 21 ár og 11 mán­uð­ir, sam­an­borið við 20 ár og níu mán­uðir í Ríó 2016 og er því um tölu­vert stökk að ræða. Með­al­aldur í þess­ari vin­sæl­ustu keppni hverra ólymp­íu­leika hefur ekki verið svona hár frá árinu 1964.

Oft hefur ungur aldur fim­leika­kvenna verið gagn­rýnd­ur, en svo virð­ist sem margar þjóðir sendi nú eldri fim­leika­konur til leiks en áður. Frá árinu 2000 hefur reglan verið sú að til að fá að keppa á ólymp­íu­leikum þurfi fim­leika­kona að hafa náð 16 ára aldri þegar hún kepp­ir.

Óvíst er hvort hærri aldur kepp­enda á ólymp­íu­leikum komi til með að skila sér í betri and­legri heilsu kepp­enda. Margt annað virð­ist spila þar inn í. Samkvæmt könnun sem gerð var í Bret­landi í fyrra glíma um 24 pró­sent ólymp­íu­fara við and­legan heilsu­brest að ólymp­íu­leikum loknum. Augljóst er þó síð­ustu tvennir ólymp­íu­leikar, í Tókýó og Beijing, hafa opnað umræð­una um and­lega heilsu ólymp­íu­fara.

Ætli hinn sanni ólymp­íu­andi muni fel­ast í áherslu á and­lega heilsu íþrótta­fólks í París 2024?

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár