Bankar lána metupphæðir til húsnæðiskaupa og heimilin yfirgefa verðtrygginguna

Við­skipta­bank­arnir lán­uðu 306 millj­arða króna í ný hús­næð­is­lán umfram upp- og umfram­greiðslur í fyrra. For­dæma­laus vöxtur var í töku óverð­tryggðra lána og heim­ili lands­ins greiddu upp meira af verð­tryggðum lánum en þau tóku.

Húsnæðismarkaðurinn hefur verið á fleygiferð undanfarna mánuði. Ódýrt lánsfjármagn er þar helstu drifkrafturinn.
Hús­næð­is­mark­að­ur­inn hefur verið á fleygi­ferð und­an­farna mán­uði. Ódýrt láns­fjár­magn er þar helstu drif­kraft­ur­inn. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Alls lán­uðu bankar 305,8 millj­arða króna í ný hús­næð­is­lán með veði í fast­eign til heim­ila lands­ins í fyrra, umfram upp- og umfram­greiðslur. Það er næstum þrisvar sinnum hærri upp­hæð en þeir lán­uðu í ný útlán á árinu 2019 og nán­ast sama upp­hæð og þeir lán­uðu á árunum 2017 til 2019 sam­an­lagt. Á því tíma­bili námu ný útlán umfram upp- og umfram­greiðslur 328,8 millj­örðum króna.

Til að setja þetta umfang í annað sam­hengi þá hafa bank­arnir lánað nettó sam­tals 828,6 millj­arða króna í ný hús­næð­is­lán með veði í fast­eign frá byrjun árs 2013 og fram til síð­ustu ára­móta, eða á átta árum. Alls kom 37 pró­sent þeirrar upp­hæðar til í fyrra.

Þetta kemur fram í nýjum tölum Seðla­banka Íslands um stöðu banka­kerf­is­ins sem birtar voru í gær.

Óverðtryggð lán inn, verðtryggð lán út

Árið 2020 var árið sem íslensk heim­ili flúðu verð­trygg­ing­una í unn­vörpum. Umfang óverð­tryggðra nýrra hús­næð­is­lána sem bank­arnir veittu heim­ilum lands­ins umfram upp- og umfram­greiðslur var 363,7 millj­arðar króna.

[adspot]Upp­greiðslur og umfram­greiðslur á verð­tryggðum lánum bank­anna voru á sama tíma 58 millj­örðum króna umfram ný veitt útlán.

Hjá líf­eyr­is­sjóðum lands­ins, hinum stóra virka lán­veit­and­an­um, var líka gríð­ar­legur sam­dráttur í veit­ingu nýrra verð­tryggðra útlána. Upp­greiðslur og umfram­greiðslur verð­tryggðra lána voru sam­tals 18,2 millj­örðum krónum meiri á fyrstu ell­efu mán­uðum síð­asta árs en umfang nýrra lána.

Til að setja þann við­snún­ing í sam­hengi þá lán­uðu sjóð­irnir nettó út 69 millj­arða króna í ný verð­tryggð hús­næð­is­lán árið 2018 og 60,5 millj­arða króna árið 2019.

Hröð stýrivaxtalækkun ráðandi breyta

Ástæðan fyrir þess­ari hröðu breyt­ingu eru stór­bætt óverð­tryggð lána­kjör. Eftir að vaxta­lækk­un­ar­ferli Seðla­banka Íslands hófst svo í maí 2019 hafa stýri­vextir lækkað úr 4,5 pró­sent í 0,75 pró­sent. Fyrir vikið er nú hægt að taka óverð­tryggt hús­næð­is­lán á 3,3 pró­sent vöxt­u­m.

Vegna þess­arar stöðu hafa við­skipta­bank­arnir end­ur­heimt stöðu sína sem helstu veit­endur hús­næð­is­lána, en líf­eyr­is­sjóðir lands­ins höfðu tekið við henni haustið 2015 þar sem þeir gátu boðið mun betri kjör, sér­stak­lega á verð­tryggðum lánum, á meðan að stýri­vextir voru háir og verð­bólga lítil.

Fyrir vikið hefur verið mikið líf á hús­næð­is­mark­aði. Mikil ásókn er íbúðir og tak­markað fram­boð hefur sett þrýst­ing á íbúða­verð á höf­uð­borg­ar­svæð­inu. Frá nóv­em­ber 2019 og fram í sama mánuð ári síðar hækk­aði hús­næð­is­verðið þar um 7,7 pró­sent.

Til stendur að banna verðtryggingu án þess að banna hana

Þrátt fyrir að Íslend­ingar séu ekki að taka verð­tryggð lán sem neinu nemur lengur lagði Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, fram frum­varp í síð­ustu viku um breyt­ingu á lögum um vexti og verð­trygg­ingu sem fela í sér að tak­mark­anir verða settar á það hverjir mega taka svokölluð Íslands­lán, sem eru verð­tryggð jafn­greiðslu­lán til 40 ára.

Verði frum­varpið að lögum mun verða bannað að taka verð­tryggt hús­næð­is­lán til lengri tíma en 25 ára. Nokkrar und­an­tekn­ingar eru þó á því banni. Þannig má fólk undir 35 ára aldri áfram taka lán til allt að 35 ára og lán­taki á aldr­inum 35-40 ára má taka lánin til allt að 30 ára. þeir ein­stak­lingar sem eru með árs­tekjur undir 4,2 millj­ónum króna (350 þús­und krónur á mán­uði) eða hjón/­sam­býl­is­fólk sem eru með undir 7,2 millj­ónir króna á ári (600 þús­und krónur á mán­uði) mega áfram taka 40 ára lán.

[links]Enn fremur munu tak­mark­anir á veit­ingu nýrra verð­tryggðra jafn­greiðslu­lána ekki gilda í tengslum við yfir­töku á eldri lán­um, heldur ein­ungis á veit­ingu nýrra lána. Þá eru ekki settar skorður við veit­ingu verð­tryggðra hús­næð­is­lána með jöfnum afborg­un­um.

Því stendur til að und­an­skilja þá hópa sem lík­leg­astir eru til að taka verð­tryggð lán til lengri tíma, ungt og tekju­lágt fólk sem sæk­ist eftir lágum mán­að­ar­legum afborg­un­um, frá því að 25 ára bannið gildi um þau.

Frum­varpið felur líka í sér að bannað verður að lána verð­tryggt til styttri tíma en tíu ára.

Verið að efna vilyrði

Til­efni frum­varps­ins er ekki aðsteðj­andi vandi þeirra sem valið hafa þennan lána­kost eða verð­bólgu­skot sem hækkað hefur höf­uð­stól lán­anna skyndi­lega. Það er í fyrsta lagi að krafa um bann á veit­ingu Íslands­lána rataði inn í stjórn­ar­sátt­mála rík­is­stjórn­ar­innar að kröfu Fram­sókn­ar­flokks­ins. Í honum sagði að rík­is­stjórnin myndi taka mark­viss skref á kjör­­tíma­bil­inu til afnáms verð­­trygg­ingar á lánum en sam­hliða þeim verði ráð­ist í mót­væg­is­að­­gerðir til að standa vörð um mög­u­­leika ungs fólks og tekju­lágra til að eign­­ast hús­næð­i.

Í öðru lagi var gerð krafa um það á síð­ustu metrum við­ræðna um gerð Lífs­kjara­samn­ings­ins svo­kall­aða í byrjun apríl 2019 að ríkið þyrfti að beita sér fyrir banni við verð­trygg­ingu. Sú krafa kom meðal ann­ars fram frá Vil­hjálmi Birg­is­syni, sem þá var einn vara­for­seta Alþýðu­sam­bands Íslands og lék lyk­il­hlut­verk í kjara­samn­ings­gerð­inni í sam­floti við tvö stærstu stétt­ar­fé­lög lands­ins, VR og Efl­ing­u.

Í lífs­kjara­samn­ingnum skuld­bundu stjórn­völd sig á end­anum til að banna 40 ára verð­tryggð lán og að grund­valla ætti verð­trygg­ingu við vísi­tölu neyslu­verðs án hús­næð­isliðar frá og með árinu 2020. Með fylgdi vil­yrði um að það yrði skoðað hvort að verð­tryggð hús­næð­is­lán yrðu alfarið bönnuð fyrir lok árs 2020.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár