Skelfingin í Kaliforníu kemur betur í ljós

Yfir 1.200 manns er nú saknað í Kali­forníu eftir skelfi­lega elda.

Samtals hafa verið stað­fest 76 dauðs­föll vegna eld­anna í Kali­forníu og er um 1.200 manns saknað, sam­kvæmt fréttum breska rík­is­út­varps­ins BBC.

Vonir standa til þess að tala þeirra sem saknað er muni lækka, en vegna þess hve eld­arnir breidd­ust út hratt þá er ekki vitað hversu margir voru á svæð­inu þegar aðstæður voru sem verstar.

Eyði­legg­ingin á stórum svæðum er gíf­ur­leg. Sviðin jörð og ónýt hús. Þurr jarð­veg­ur­inn kynti undir mestu eldum sem sést hafa í Kali­forníu, í fimmtán ár, en ennþá loga eldar á stórum svæðum. Þurr jarð­vegur, heitir vindar og erf­iðar aðstæður til að fyr­ir­byggja elda hafa leitt til hættu­legra aðstæðna víða.

Donald Trump Banda­ríkja­for­seti heim­sótti svæðið og skoð­aði aðstæður með rík­is­stjór­anum Jerry Brown, og arf­taka hans í starfi, Gavin Newsom. Þeir eru báðir Demókratar og er Brown þekktur fyrir and­stöðu sína við Trump.

Þeir sögð­ust hafa rætt við Trump áður en hann kom í heim­sókn, og sögð­ust ætla að vinna með yfir­völdum að því að tryggja að hjálp­ar­starf gangi vel fyrir sig og end­ur­bygg­ing svæð­anna sem fór verst út úr eld­unum sömu­leiðis.

„Nú er tími sam­stöðu,“ sagði Brown, og undir það tóku Trump og Newsom.

Kali­fornía er fjöl­menn­asta ríki Banda­ríkj­anna með 38 millj­ónir íbúa.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár