Átjándu aldar morðsaga af Austurlandi – Morðið í Naphornsklettum

„Þetta er stór­merki­leg saga sem lét mig ekki í friði,“ segir Ásgeir Hvíta­skáld, sem ritað hefur skáld­sögu sem byggir á sann­sögu­legum atburðum sem áttu sér stað austur á fjörðum undir lok 18. aldar.

Naphorn er á milli Berufjarðar og Breiðdalsvíkur.
Naphorn er á milli Beru­fjarðar og Breið­dals­víkur. Mynd: Aðsend

Ásgeir Hvíta­skáld hefur skrifað skáld­sögu sem byggir á sann­sögu­legum atburðum, um morðið í Naphorni og síð­ustu aftök­una á Aust­ur­landi 1786. Söfnun fyrir útgáf­unni stendur yfir á Karolina Fund.

„Þetta er stór­merki­leg saga sem lét mig ekki í friði,“ segir Ásgeir, sem lýsir sög­unni sem átak­an­legri.

„Fyrst sá ég kynn­ing­ar­skilti um sög­una á Mjó­eyr­inni á Eski­firði, en þar var þessum dreng lýst sem lötum og vondum dreng. Þá hugs­aði ég að það væri ekki hægt að skrifa sögu þar sem aðal­per­sónan væri vond. Þetta var ein hrotta­leg­asta aftaka sem farið hefur fram á Íslandi, þar sem 23 ára gam­all, ólæs, fáfróður og ein­faldur drengur var háls­höggv­inn. Notuð var bit­laus exi svo höggva þurfti sjö sinnum áður en höf­uðið fauk af búknum,“ segir Ásgeir.

[adspot]

Síðar seg­ist Ásgeir hafa rek­ist á aðra útgáfu af sög­unni sem var öðru­vísi og sá þá efni­við í sína eigin skáld­sögu um atburð­ina. „Þegar ég las að böð­ull­inn hefði neitað að höggva dreng­inn, þá sá ég mögu­leika í sög­unni og skrif­aði mína eigin útgáfu,“ segir Ásgeir.

„Þetta er örlaga­drama um þrjá drengi sem struku úr vist­ar­böndum og áttu sér draum um frelsi á fjöllum en draum­ur­inn sner­ist upp í svik og hrylli­legt morð. Það var gíf­ur­leg fátækt og hung­ursneyð í land­inu en þema sög­unnar fjallar um vist­ar­böndin sem danski kon­ung­ur­inn setti á. Þau voru nán­ast þrælkun fyrir lands­menn og hent­uðu Íslend­ingum illa. Ef bú var minna virði en þrjú kúgildi þá var fjöl­skyldan leyst upp og fólkið þurfti að vinna í ánauð á öðrum sveita­bæjum. Sagan fjallar um allt órétt­lætið sem danska rétt­ar­kerfið beitti Íslend­inga fyrr á öldum. En samt þrífst ástin í hjörtum mann­anna,“ segir Ásgeir.

Söfnun fyrir útgáfu bók­ar­innar stendur nú yfir, sem áður segir, á Karolina Fund.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár