Reglur um nálægðartakmörk í framhalds- og háskólum rýmkaðar 14. ágúst

Hjúkr­un­ar­heim­ili þurfa að setja reglur um heim­sóknir utan­að­kom­andi en nálæg­ar­tak­mörkun í fram­halds- og háskólum og íþróttum verður rýmkuð á föstu­dag. Krafist verður notk­unar grímum við ákveðnar aðstæður.

Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra.
Svandís Svav­ars­dóttir heil­brigð­is­ráð­herra. Mynd: Bára Huld Beck

Svandís Svav­ars­dóttir heil­brigð­is­ráð­herra hefur birt aug­lýs­ingu þess efnis að reglur um tak­mörkun á sam­komum verði breytt 14. ágúst næst­kom­andi, eða á föstu­dag.

Helstu breyt­ing­arnar eru þær að reglur um nálægð­ar­tak­mörk í fram­halds- og háskólum rýmkaðar og sömu­leiðis í íþróttum. „Að öðru leyti gildir áfram meg­in­reglan um tveggja metra nálægð­ar­mörk. Við aðstæður þar sem eðli starf­semi krefst meiri nálægðar milli ein­stak­linga en tveggja metra og í almenn­ings­sam­göngum þar sem ferð varir í 30 mín­útur eða lengur skal nota and­lits­grímu,“ segir í til­kynn­ingu vegna þessa. [adspot]Við aðstæður þar sem skylt er að nota grímur líkt og skil­greint er í aug­lýs­ing­unni skal aðeins nota grímur sem upp­fylla kröfur evr­ópsku staðla­sam­tak­anna (CEN) og hefur sótt­varna­læknir jafn­framt sett nán­ari leið­bein­ingar þar að lút­andi.

Hjúkr­un­ar­heim­ilum, öðrum heil­brigð­is­stofn­unum og sam­bæri­legum stofn­unum er gert skylt að setja reglur um starf­semi sína, svo sem um heim­sóknir utan­að­kom­andi að heim­ilum og stofn­unum.

Fjölda­tak­mörk mið­ast áfram við 100 manns að hámarki.

Rýmkaðar reglur fyrir skóla og íþróttir

Í fram­halds- og háskólum verður heim­ilt að hafa einn metra á milli ein­stak­linga án þess að and­lits­grímur séu not­aðar. Þar skuli einnig sótt­hreinsa sam­eig­in­legan búnað og snertifleti minnst einu sinni á dag og áhersla lögð á ein­stak­lings­bundnar sótt­varnir.

Þrátt fyrir meg­in­regl­una um tveggja metra nálægð­ar­tak­mörkun verða snert­ingar heim­ilar milli íþrótta­fólks á æfingum og í keppnum. Í frétt á vef stjórn­ar­ráðs­ins segir að aftur á móti skuli virða tveggja metra regl­una í bún­ings­klefum og á öðrum svæðum utan keppni og æfinga. „Aðrir, meðal ann­ars þjálf­arar, starfs­menn og sjálf­boða­liðar, skulu ávallt virða 2 metra regl­una. Íþrótta- og ólymp­íu­sam­band Íslands skal setja sér­sam­böndum sínum nán­ari reglur í sam­ráði við sótt­varna­lækni, meðal ann­ars um ein­stak­lings­bundnar sótt­varnir, sótt­hreinsun bún­aðar, fram­kvæmd æfinga og keppna.“

Börn fædd árið 2005 eða síðar eru áfram und­an­skilin ákvæðum aug­lýs­ing­ar­innar sem snúa að fjölda­tak­mörkun og um almenna nálægð­ar­tak­mörkun.

Í frétt stjórn­ar­ráðs­ins segir að breyt­ing­arnar snúi ein­ungis að tak­mörk­unum á sam­komum vegna far­sóttar inn­an­lands, en gild­andi aug­lýs­ing fellur úr gildi 14. ágúst. „Í minn­is­blaði sótt­varna­læknis til heil­brigð­is­ráð­herra er einnig fjallað um mögu­legar breyt­ingar á fyr­ir­komu­lagi vegna skim­ana á landa­mærum. Gildandi reglu­gerð hvað það varðar gildir til 15. sept­em­ber.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár