Þegar Óskar upplýsti af hverju útgerðirnar keyptu Moggann

Sögulegt við­tal frá Hring­braut við Óskar Magn­ús­son, fyrr­ver­andi útgef­anda Morg­un­blaðs­ins, er orðið aðgengi­legt á Youtube. Viðtalið var sett þar inn skömmu áður en útgáfu­fé­lag Hring­brautar varð gjald­þrota. Í við­tal­inu lýsti Óskar því við Sigmund Erni Rún­ars­son hvernig útgerð­ar­fé­lög hefðu keypt Moggann sem vopn í póli­tískri og hags­muna­tengdri bar­áttu.

Óskar Magn­ús­son, sem leiddi fjár­festa­hóp­inn sem keypti útgáfu­fé­lag Morg­un­blaðs­ins af Íslands­banka árið 2009, greindi frá því í við­tali á Hring­braut árið 2016 af hverju nokkrar stór­út­gerðir fjár­festu í fyr­ir­tæk­inu. Óskar hefur um ára­bil verið stjórn­ar­maður í Samherja og tengdum félögum og sat meðal ann­ars í stjórn­inni þegar Namib­íu­málið kom upp árið 2019.  Hann var útgef­andi Morg­un­blaðs­ins frá 2009 til árs­loka 2014.

Viðtalið var upp­lýsandi og hrein­skilið um þá taktísku hugsun sem lá á bak við fjár­fest­ingu útgerð­anna. Þær vildu hafa áhrif á þrjú stór mál í þjóð­mála­um­ræð­unni: Mögulega inn­göngu Íslands í Evr­ópu­sam­bandið, Icesave og hugs­an­legar breyt­ingar á kvóta­kerf­inu.  

Viðtalið, sem Sig­mundur Ernir Rún­ars­son tók, var sýnt á sjón­varps­stöð­inni Hring­braut en var lengi vel ekki aðgengi­legt á inter­net­inu síð­ast­liðin ár. En það var sett inn á Youtube nýlega, í lok mars, áður en útgáfu­fé­lag Hring­brautar og Frétta­blaðs­ins var gefið upp til gjald­þrota­skipta um mán­aða­mótin. 

Eigendurnir nær alfarið útgerðarmenn

Eftir að þessir fjár­festar keyptu Árvakur, stærstu hlut­haf­arnir voru félög í eigu Guð­bjargar Matth­í­as­dóttur og Samherja, þá hafa fleiri stórar útgerðir komið inn í fjár­festa­hóp Morg­un­blaðs­ins á meðan hlut­hafar sem eru ekki útgerð­ar­menn hafa farið úr hlut­hafa­hópnum eða þynnst út í hluta­fjár­aukn­ingum. Kaup­fé­lag Skag­firð­inga, eig­andi FISK Seafood, Hrað­frysti­húsið Gunnvör og Rammi á Ólafs­firði komu meðal ann­ars inn í hlut­hafa­hóp­inn.  Davíð Oddsson var ráð­inn rit­stjóri Morg­un­blaðs­ins eftir yfir­töku útgerð­anna og hefur verið það síðan, í bráðum 15 ár. 

Upp­safnað tap Árvakurs á þessu tíma­bili er nú komið yfir tvo millj­arða króna á þessu tíma­bili. Þrátt fyrir þetta hafa útgerð­irnar, meðal ann­ars Samherji, lýst því yfir að þær hafi verið ánægðar með við­skiptin með Morg­un­blaðið. Þegar Samherji seldi hlut sinn í fyr­ir­tæk­inu, til Eyþórs Arnalds, árið 2017 sagði Þor­steinn Már Bald­vins­son, for­stjóri Samherja: „Við erum ánægð með hvernig til tókst, blaðið hef­ur náð að halda velli, staðið vörð um fag­lega blaða­mennsku og miðlað upp­lýs­ing­um um mál sem vörð­uðu þjóð­ina gríð­ar­lega miklu og hafa nú sum hver verið far­sæl­lega til lykta leidd. “

Sagði kaupin á Morgunblaðinu „hugsjónatengd“

Í gegnum tíð­ina hefur nokkrum sinnum verið sagt frá umræddu við­tali opin­ber­lega en ekki verið sagt frá því orð fyrir orð sem Óskar sagði í því. 

„Það var hug­sjóna­tengt val hjá þessum mönnum sem lögðu í það ferða­lag“
Óskar Magn­ús­son,
fyrr­ver­andi útgef­andi Morg­unablaðs­ins um af hverju útgerð­ar­fé­lög keyptu blaðið

Óskar tal­aði um upp­runa sinn í Sjáf­stæð­is­flokknum og hvernig hann hefði unnið hin og þessi störf fyrir hann í gegnum tíð­ina. „Ég byrj­aði sex ára gam­all að ydda blý­anta á kosn­inga­skrif­stofum Sjálf­stæð­is­flokks­ins og ég hef verið að því síðan. Það er að segja, ég hef gert það sem þurft hefur að gera hverju sinni. Stundum hef ég borið út bæk­linga og blöð og stundum gegnt ein­hverjum svona ábyrgð­ar­miklum stöðum í áróð­urs­málum fyrir Sjálf­stæð­is­flokk­inn, þó  ég sé lítið í því núna...“

Raunar fór Óskar aldrei í graf­götur með það í við­tal­inu að ákveðin taktísk hugsun var um að beita Morg­un­blað­inu sem tæki í póli­tískri og hags­muna­tengdri bar­áttu útgerð­ar­fyr­ir­tækj­anna. „Það var hug­sjóna­tengt val hjá þessum mönnum sem lögðu í það ferða­lag.  Þetta var nátt­úru­lega í raun farið á höf­uðið og það þurfti að setja í þetta pen­inga sem var safnað.“

„Það er að segja, eig­endur blaðs­ins voru með svona þrjú mál sem þeir vildu fá öðru­vísi tök á í þjóð­fé­lag­inu“
Óskar Magn­ús­son,
fyrr­ver­andi útgef­andi Morg­un­blaðs­ins

Skýr sýn um þrjú mál

Í við­tal­inu sagði Óskar að nýju eig­endur Morg­un­blaðs­ins hafi haft skýra sýn þegar þeir keyptu blaðið. Þeir vildu hafa áhrif á umrædd þrjú mál. „Menn voru með alveg skýra sýn. Það er að segja, eig­endur blaðs­ins voru með svona þrjú mál sem þeir vildu fá öðru­vísi tök á í þjóð­fé­lag­inu. Það voru Icesave, fyrst og fremst, ESB og svo sjáv­ar­út­vegs­mál. Við vitum árang­ur­inn af Icesave, og ég þakka það Morg­un­blað­inu mjög, og við vitum hvar ESB er statt en sjáv­ar­út­vegs­málin eru ennþá í óvissu og upp­námi og það þarf auð­vitað að finna á þeim ein­hvern sæmi­legan sátta­flöt við þjóð­ina. Ég starfa nú í útgerð þannig að ég tala þannig líka en ég tel að útgerðin þurfi líka að skilja þetta.“

 Þegar Sig­mundur Ernir spurði Óskar að því hvort Morg­un­blaðið væri „hags­muna­gæslu­blað“ sagði hann: „Sjálf­sagt að ein­hverju leyti. En það er svo óþægi­legt að tala um það. Menn verða að gera grein­ar­mun á þessum skoð­ana­dálkum, leið­urum og öllu því og svo hinum vand­aða frétta­flutn­ingi og umfjöllun. [...] Þar er fjöreggið og það sem menn þurfa að vanda sig við er að fikta ekki í því ....“

Kjósa
47
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (3)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Torfi Magnússon skrifaði
    Er búið að kippa þessu aftur út af Youtube? Ég finn þetta ekki.
    0
  • Ásgeir Överby skrifaði
    Vei þeim þingmönnum Sjálfstæðisflokks sem fá Morgunblaðið upp á móti sér!
    1
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár