Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra og formaður VG telur mjög líklegt að ný ríkisstjórn verði mynduð í næstu viku. Fram kom í Fréttablaðinu í morgun að Bjarni Benediktsson formaður Sjálfstæðisflokksins hefði trú á unnt yrði að mynda nýja ríkisstjórn flokks hans með Vinstri grænum og Framsóknarflokki í næstu viku. Nýta þyrfti komandi helgi og daganna þar á eftir vel og trúði hann því að vinnan færi að klárast.
Katrín staðfestir þessi orð Bjarna í samtali við Kjarnann en hún segir að óvissa með talningu í Norðvesturkjördæmi hafi sett svip sinn á viðræðurnar.
[adspot]Hún nefnir enn fremur að þetta séu þrír ólíkir flokkar og auðvitað ekki með sömu stefnuskrá. „Það er krefjandi verkefni að búa til stjórnarsáttmála þó að við séum búin að vinna lengi saman. Svo þekkjumst við náttúrulega miklu betur en fyrir fjórum árum. Við vitum hvar pyttirnir eru.“
[links]Katrín bætir því við að þau hafi gefið sér góðan tíma vegna þess að ríkisstjórnin er með meirihluta og vegna rannsóknar á talningu í Norðvesturkjördæmi.
Varðandi rannsóknina þá telur Katrín að undirbúningskjörbréfanefnd hafi lagt mikið upp úr því að vanda sig í sinni vinnu.
Hún áréttar að nauðsynlegt sé að niðurstaða nefndarinnar verði að liggja fyrir áður en þing komi saman. „Það er alveg ljóst.“
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.


















































Athugasemdir