„Jafnvel ömmum getur skjátlast“

Stutt­myndin Frú Regína var frum­sýnd í gær sækir inn­blástur í sam­skipti Jök­uls­sona og ömmu þeirra.

Hér má sjá Hrafn Jökulsson ásamt Gunnari Hrafni Kristjánssyni sem fer með hlutverk hans í stuttmyndinni og Garpi Elísabetarsyni, höfundi og leikstjóra myndarinnar.
Hér má sjá Hrafn Jök­uls­son ásamt Gunnari Hrafni Krist­jáns­syni sem fer með hlut­verk hans í stutt­mynd­inni og Garpi Elísa­bet­ar­syni, höf­undi og leik­stjóra mynd­ar­innar. Mynd: Hrafn Jökulsson / Facebook

Stutt­myndin Frú Regína eftir Garp Elísa­bet­ar­son, sem fjallar um bræður sem eru kall­aðir á fund ömmu sinnar og hvattir til að koma kærasta systur þeirra fyrir katt­ar­nef, byggir á sann­sögu­legum atburðum að sögn Hrafns Jök­uls­sonar. 

Hrafn fjall­aði um málið á Facebook í gær og sagði mynd­ina sækja efni­við í sam­skipti sem þeir bræð­urnir, Illugi og Hrafn, áttu við ömmu sína í gamla daga. Systir þeirra, Elísabet Kristín Jök­uls­dóttir, hafði tekið saman við Inga Bær­ings­son og ömm­unni leist ekki á blik­una.

„Vitaskuld var henni ekki alvara“

Illugi Jök­uls­son lýsti við­horfi ömmu sinnar til Inga í minn­ing­ar­grein um hana árið 2001:

Einu sinni var henni þó nóg boðið; þegar einn alræmdur skúrkur virt­ist þess albú­inn að leggja snörur sínar fyrir við­kvæma stúlku og engar for­tölur dugðu til að sýna barn­inu fram á hversu ger­sam­lega ómögu­legt þetta manns­efni væri.

Þá birt­ist járnið úr frú Valgerði og orðið að stáli þegar amma bauðst til að drepa mann­inn.

"Ég er nú orðin gömul kona," sagði hún með þjósti en samt dálítið ringluð.

"Mig munar ekk­ert um að eyða síð­ustu árunum á Litla-Hrauni!" Vita­skuld var henni ekki alvara. Þó vissi maður aldrei alveg um frú Elísa­betu og ekki gott að segja hvað gerst hefði ef mað­ur­inn hefði þegar til kom ekki reynst alveg svo slæmur að eina ráðið væri að drepa hann.

„Skúrkurinn“ fór í meðferð og hjálpaði ungmennum

Aðspurður um málið bendir Hrafn á að stutt­myndin sé auð­vitað sjálf­stætt lista­verk. Sögu­þráð­ur­inn sæki þó stoðir í raun­veru­legar umræður sem áttu sér stað á sínum tíma.

„Fyrst og fremst þótti mér þetta bráð­skemmti­leg mynd. Það er alltaf ávísun á snilld þegar Krist­björg Kjeld stígur á svið, og þarna hefur með sér frá­bæran leik­hóp. Pilt­arnir sem fóru með hlut­verk okkar Illuga skil­uðu því með miklum sóma eins og aðrir. Þetta var skemmti­legt tíma­ferða­lag fyrir mig, sér­stak­lega í ljósi þess hvað allt fór vel að lokum,“ segir Hrafn í sam­tali við Stundina. 

Garpur, sem leik­stýrði og rit­aði hand­ritið að stutt­mynd­inni, er sonur Elísa­betar Krist­ínar Jök­uls­dóttur og Inga Bær­ings­sonar.

„Myndin hans Garps og hans góða fólks sýnir okkur að minnsta kosti tvennt. Að jafn­vel ömmum getur skjátl­ast. Og svo hitt, að allir verð­skulda annað tæki­færi,“ segir Hrafn. „Því seinna fór hann Ingi Bær­ings­son, barns­faðir Ellu Stínu, í með­ferð og hefur síðan í ára­tugi ekki aðeins fetað sína beinu braut heldur einnig unnið við að hjálpa ung­mennum í vanda.“

Fréttin hefur verið upp­færð eftir að hún birt­ist fyrst.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár