Laun ráðherra og aðstoðarmanna áætluð 681 milljónir króna í ár

Samkvæmt fjár­lögum árs­ins 2018, sem var fyrsta heila árið sem núver­andi rík­is­stjórn starf­aði, átti kostn­aður við rekstur rík­is­stjórnar Íslands og aðstoð­ar­manna hennar að vera 461 millj­ónir króna, en reynd­ist mun meiri.

Rekstur rík­is­stjórnar Íslands, sem í fel­ast launa­greiðslur ráð­herra og aðstoð­ar­manna þeirra, er áætl­aður 681,3 millj­ónir króna á þessu ári, sam­kvæmt fjár­lögum fyrir árið 2021 sem sam­þykkt voru í fyrra. Það er 48 pró­sent aukn­ing frá áætl­uðum kostn­aði á árinu 2018, sem var fyrsta heila ár rík­is­stjórn­ar­innar Katrínar Jak­obs­dóttur við völd, en kostn­aður vegna launa ráð­herra og aðstoð­ar­manna þeirra átti þá að vera 461 millj­ónir króna sam­kvæmt sam­þykktum fjár­lögum.

Hann reynd­ist hins vegar verða 597 millj­ónir króna á árinu 2018. Árið 2019 var hann svo undir áætlun en hækk­aði samt milli ára í 605 millj­ónir króna.

Í fyrra var hann áætl­aður 660 millj­ónir króna á fjár­lögum og í ár er hann, líkt og áður sagði, áætl­aður 681,3 millj­ónir króna.

Þetta má lesa úr rík­is­reikn­ingum síð­ustu ára og fjár­lögum áranna 2020 og 2021.

Aðstoðarmenn kostuðu 269 milljónir árið 2019

Í rík­is­reikn­ingi má sjá að kostn­aður við launa­kostnað ráð­herra rík­is­stjórn­ar­innar, sem skil­greindur eru þar sem æðstu stjórn­endur rík­is­ins, var 336 millj­ónir króna árið 2019. Það þýðir að kostn­aður við aðstoð­ar­menn ráð­herra og rík­is­stjórnar var um 269 millj­ónir króna á því ári.

Lögum um Stjórn­ar­ráð Íslands var breytt árið 2011 með þeim hætti að heim­ild til að fjölga aðstoð­ar­mönnum ráð­herra var útvíkkuð þannig að hver og einn þeirra má ráða tvo slíka. Auk þess var sett inn heim­ild fyrir rík­is­stjórn­ina að ráða þrjá aðstoð­ar­menn til við­bótar ef þörf krefur. Í lög­unum segir að „meg­in­hlut­verk aðstoð­ar­manns ráð­herra er að vinna að stefnu­mótun á mál­efna­sviði ráðu­neytis undir yfir­stjórn ráð­herra og í sam­vinnu við ráðu­neyt­is­stjóra.“

Ekki þarf að aug­lýsa aðstoð­ar­manna­stöður heldur eru þeir sem sinna þeim störfum valdir af hverjum ráð­herra fyrir sig, enda oft­ast um að ræða nán­ustu sam­starfs­menn ráð­herra á meðan að hann gegnir emb­ætti.

Skömmu eftir að lög­unum var breytt var ráð­herrum fækkað í átta, en þeir höfðu verið tólf þegar rík­is­stjórn Sam­fylk­ingar og Vinstri grænna tók við völdum árið 2009.

Síðan hefur ráð­herrum verið fjölgað aftur jafnt og þétt með hverri rík­is­stjórn­inni og í dag eru þeir ell­efu. Það þýðir að fjöldi leyfi­legra aðstoð­ar­manna hefur líka auk­ist.

Aðstoðarmenn geta verið 25

Alls má rík­is­stjórnin því ráða 25 aðstoð­ar­menn og eru heim­ildir laga til slíkra ráðn­inga nú full­nýttar. Allir ráð­herr­arnir, sem eru ell­efu, eru til að mynda með tvo aðstoð­ar­menn en auk þeirra hefur rík­is­stjórnin ráðið þá þrjá aðstoð­ar­menn sem hún má ráða sam­kvæmt lögum. Þeir eru Róbert Marshall, upp­lýs­inga­full­trúi rík­is­stjórn­ar­innar, sem hefur starfs­að­stöðu í for­sæt­is­ráðu­neyt­inu. Henný Hinz, aðstoð­ar­maður rík­is­stjórnar á sviði vinnu­mark­aðs-, efna­hags- og loft­lags­mála, og Lára Björg Björns­dóttir, aðstoð­ar­maður rík­is­stjórn­ar­innar í jafn­rétt­is­málum.

Laun og starfs­kjör aðstoð­ar­manna ráð­herra mið­ast við kjör skrif­stofu­stjóra í ráðu­neytum sam­kvæmt ákvörð­unum kjara­ráðs.

Aðstoð­ar­menn­irnir hafa fengið dug­lega launa­hækkun á und­an­förnum árum. Sumarið 2016 voru laun skrif­stofu­stjóra í ráðu­neytum hækkuð um allt að 35 pró­sent. Eftir þá hækkun eru laun aðstoð­ar­manna um 1,2 millj­ónir króna á mán­uði. Launin hafa hækkað enn frekar síðan þá.

Ráð­herrar hafa líka fengið umtals­verða launa­hækkun á und­an­förnum árum. Í nóv­em­ber 2015 hækk­aði Kjara­ráð til að mynda laun ráð­herra um 9,3 pró­sent. Árið síð­ar, á kjör­dag 2016, voru laun þeirra síðan hækkuð um 35 pró­sent. Eftir þá hækkun voru laun for­sæt­is­ráð­herra 2.021.825 krónur á mán­uði og laun ann­arra ráð­herra 1.826.273 krónur á mán­uði.

Síðan þá hafa þau hækkað enn frekar. Laun for­sæt­is­ráð­herra eru nú 2.222.272 krónur á mán­uði og laun ann­arra ráð­herra 2.007.333 krónur á mán­uði.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2021

Mest lesið undanfarið ár