Býður sig fram í 2. sæti – stefnir á að verða í framvarðasveit flokksins í Reykjavík

Brynjar Níelsson ætlar að bjóða fram krafta sína fyrir Sjálf­stæð­is­flokk­inn fyrir næstu kosn­ingar en hann hefur verið á þingi síðan 2013.

Brynjar Níelsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins.
Brynjar Níelsson, þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins. Mynd: Bára Huld Beck

Brynjar Níelsson, þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins fyrir Reykja­vík­ur­kjör­dæmi suður, býður sig fram í 2. sætið í próf­kjöri Sjálf­stæð­is­flokks­ins í Reykja­vík. Frá þessu greinir hann á Facebook-síðu sinni í dag en hann seg­ist stefna á að verða í fram­varða­sveit flokks­ins í Reykja­vík. „Hug­myndir mínar og grund­vall­araf­staða til þess hvernig þjóð­fé­lagið á að þró­ast fara mjög vel saman við stefnu Sjálf­stæð­is­flokks­ins Bjarg­föst er trú mín á ein­stak­ling­inn, dugnað hans, áræðni og sköp­un­ar­kraft. Við þurfum að skapa umhverfi til að atvinnu­lífið getið notið krafts­ins sem býr í ein­stak­lingnum og þannig skapað vel­ferð sem allir njóti,“ skrifar hann.

Þá telur Brynjar að Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn eigi sókn­ar­færi í kom­andi kosn­ingum. „Við sjálf­stæð­is­menn verðum að tala fyrir stefn­unni sem bygg­ist á okkar póli­tísku sýn og forð­ast að fest­ast í dæg­ur­um­ræðu og skyndi­lausnum. Tölum skýrt, komum hreint fram og sýnum kjark og þor.“

Skorar hann að end­ingu á fólk sem vill hafa áhrif á upp­still­ingu á lista sjálf­stæð­is­manna í Reykja­vík að taka þátt í próf­kjör­inu. „Einnig vil ég skora á sem flesta að bjóða sig fram. Margir öfl­ugir fram­bjóð­endur og góð þátt­taka mun styrkja flokk­inn fyrir kom­andi kosn­ingar í haust.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2021

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár