Betri horfur í spá um útbreiðslu COVID-19

Á mánu­dag var því spáð að á bil­inu 2.500-6.000 manns myndu sýkj­ast af veirunni hér á landi en nýjasta spáin gerir ráð fyrir mun færri smitum eða að 1.500-2.300 manns grein­ist með COVID-19 á Íslandi.

Gert er ráð fyrir að fjöldi greindra einstaklinga með virkan sjúkdóm nái hámarki í fyrstu viku apríl og verði sennilega um 1200 manns
Gert er ráð fyrir að fjöldi greindra ein­stak­linga með virkan sjúk­dóm nái hámarki í fyrstu viku apríl og verði senni­lega um 1200 manns Mynd: EPA

Samkvæmt nýrri spá um fjölda til­fella og álag á heil­brigð­is­þjón­ustu er gert ráð fyrir að á meðan far­ald­ur­inn gangi yfir muni rúm­lega 1.500 manns á Íslandi grein­ast með COVID-19. Þetta eru nokkuð lægri tölur en spáð var síð­ast enda hafa færri smit greinst síð­ustu daga.

Þetta er nið­ur­staða spálík­ans sem vís­inda­menn við Háskóla Íslands hafa þróað í sam­starfi við Land­lækn­is­emb­ættið, Land­spít­ala og sótt­varna­yf­ir­völd vegna COVID-19 far­ald­urs­ins.

Samkvæmt spánni sem var birt á mánu­dag og byggði á gögnum til og með 22. mars var búist við því að fyrir lok apríl hefðu lík­lega um 2.500 manns verið greindir með COVID-19, en tæp­lega 6.000 sam­kvæmt svart­sýn­ustu spá. Þá var búist við því að far­ald­ur­inn næði hámarki á fyrstu vikum apríl.

[adspot]

Nú er gert ráð fyrir að hámarki verði náð í fyrstu viku apríl. Þá er því nú spáð að á tíma far­ald­urs­ins muni um þrettán ein­stak­lingar veikj­ast alvar­lega en 23 sam­kvæmt svart­sýn­ustu spá.

Hafa ber í huga að ald­urs­dreif­ing smit­aðra ein­stak­linga á Íslandi er hag­stæð enn sem komið er. Ef fjöldi smita eykst meðal aldr­aðra ein­stak­linga mun það hafa veru­leg áhrif á spálíkanið í átt að auknu álagi á heil­brigð­is­kerfið.

Helstu nið­ur­stöður spálík­ans­ins með gögnum til og með 24. mars eru eft­ir­far­andi:

  • Gert er ráð fyrir því að á meðan far­ald­ur­inn gengur yfir muni rúm­lega 1.500 manns á Íslandi verið greindir með COVID-19, en talan gæti náð nær 2.300 manns sam­kvæmt svart­sýn­ustu spá.
  • Gert er ráð fyrir að fjöldi greindra ein­stak­linga með virkan sjúk­dóm nái hámarki í fyrstu viku apríl og verði senni­lega um 1.200 manns, en gæti náð 1.600 manns sam­kvæmt svart­sýn­ustu spá.
  • Gert er ráð fyrir að á meðan að far­ald­ur­inn gengur yfir muni rúm­lega 100 manns þarfn­ast inn­lagnar á sjúkra­húsi, en gæti náð hátt í 160 manns sam­kvæmt svart­sýn­ustu spá.
  • Mesta álag á heil­brigð­is­þjón­ustu vegna sjúkra­húsinn­lagna verður fyrir miðjan apríl en þá er gert ráð fyrir að tæp­lega 60 ein­stak­lingar geti verið inniliggj­andi á sama tíma, en svart­sýn­asta spá er 80 ein­stak­lingar.
  • Gert er ráð fyrir því að á tíma far­ald­urs­ins muni um 13 ein­stak­lingar veikj­ast alvar­lega, þ.e. þurfa inn­lögn á gjör­gæslu, á tíma­bil­inu en svart­sýn­asta spá er 23 ein­stak­lingar.
  • Mesta álag á gjör­gæslu­deildir gæti orðið í annarri viku apríl, en þá er búist við því að 5 manns liggi þar inni á sama tíma, en sam­kvæmt svart­sýn­ustu spá gætu það verið 11 manns.

[links]Fyrstu nið­ur­stöður spálík­ans­ins voru kynntar á fundi með almanna­vörnum 18. mars. Þá var gert ráð fyrir því að allt að 1.200 manns gætu greinst með COVID-19 þegar far­ald­ur­inn næði hámarki hér á landi og að fyrir lok maí gæti talan náð rúm­lega 2.000 manns sam­kvæmt svart­sýn­ustu spá.

Grein­ing­ar­vinnan mun halda áfram og spálíkanið verður upp­fært reglu­lega með nýjum upp­lýs­ingum, segir á vefnum covid.hi.is. „Hafa ber í huga að vegna fámennis geta töl­urnar um fjölda greindra til­fella breyst mikið frá degi til dags sem hefur áhrif á nið­ur­stöður spálík­ans­ins. Líkanið verður þó stöðugra eftir því sem á líður.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kórónuveiran

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár