Bjarni leggur fram frumvarp sem umbyltir hlutverki kjararáðs

Fjármála- og efna­hags­ráðu­neytið, sem stýrt er af Bjarna Bene­dikts­syni, hefur birt drög að frum­varpi til nýrra laga um kjara­ráð og óskað eftir umsögnum um það. Í frum­varpi fel­ast miklar breyt­ingar á hlut­verki kjara­ráðs og mörg hund­ruð opin­berir starfs­menn verða færðir undan ákvörð­unum ráðs­ins og veittur samn­ings­réttur.

Ákvarð­anir um laun for­stjóra hluta­fé­laga í eigu rík­is­ins, svo sem Lands­virkj­unar, Lands­bank­ans, Íslands­banka og Lyfju, verða færðar aftur til stjórnar fyr­ir­tækj­anna verði frum­varpið að lögum, en þær hafa heyrt undir kjara­ráð frá því skömmu eftir hrun og því hafa grunn­laun for­stjór­anna ekki getað verið hærri en laun for­sæt­is­ráð­herra hverju sinni.

Forstjórar og biskup fá samningsrétt

Bjarni hafði þegar boðað að hann ætl­aði sér að gera breyt­ingar á lögum um kjara­ráð og færa hund­ruði emb­ætt­is­manna undan ákvörð­unum ráðs­ins og veita þeim samn­ings­rétt.

Í frum­varp­inu er meðal ann­ars lagt til að það verði ein­göngu verk­efni kjara­ráðs að ákvarða laun og starfs­kjör þjóð­kjör­inna manna, dóm­ara, sak­sókn­ara, allra ráð­herra, ráðu­neyt­is­stjóra og þeirra skrif­stofu­stjóra sem heyra undir ráð­herra sem fer með starfs­manna­mál rík­is­ins og fara með fyr­ir­svar fyrir hönd ráð­herra við gerð kjara­samn­inga, seðla­banka­stjóra og aðstoð­ar­seðla­banka­stjóra og rík­is­sátta­semj­ara.

Þá er lagt til að kjör skrif­stofu­stjóra í Stjórn­ar­ráði Íslands og sendi­herra verði látin taka mið af kjara­samn­ingum á hefð­bund­inn hátt, þ.e. kjara­samn­ingum Félags háskóla­mennt­aðra starfs­manna Stjórn­ar­ráðs­ins, og að kjör aðstoð­ar­manna ráð­herra taki mið af kjörum skrif­stofu­stjóra.

Lagt er til að sér­stök starfsein­ing, á ábyrgð fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, muni ákveða „nán­ari grunn­launa­flokkun og und­ir­flokkun starfa for­stöðu­manna rík­is­stofn­ana auk for­sendna fyrir greiðslu við­bót­ar­launa þeirra en hlut­að­eig­andi ráð­herra eða stjórn ákvarði und­ir­flokkun og við­bót­ar­laun á grund­velli for­sendna sem ein­ingin setur þar sem Félagi for­stöðu­manna rík­is­stofn­ana yrði gef­inn kostur á að fylgj­ast með og fjalla fyrir hönd félaga sinna um álita­mál sem upp kunna að koma vegna flokk­unar starfa og for­sendna við­bót­ar­launa.“

For­stjórar og fram­kvæmda­stjórar fyr­ir­tækja sem eru í eigu rík­is­ins þurfa ekki lengur að hafa áhyggjur af því að vera of lágt laun­aðir, verði frum­varpið að lögum. Það leggur til að ákvarð­anir um laun þeirra verði færðar aftur til stjórna fyr­ir­tækj­anna í stað þess að kjara­ráð ákveði hver laun þeirra séu. Stjórn­irnar eiga þá að semja um laun og starfs­kjör þeirra á grund­velli starfs­kjara­stefnu fyr­ir­tækj­anna og settrar eig­enda­stefnu rík­is­ins.

Að lokum er lagt til að ákvörðun um kjör bisk­ups, vígslu­bisk­upa, pró­fasta og presta þjóð­kirkj­unnar ráð­ist af samn­ingum innan þjóð­kirkj­unnar en fari ekki eftir ákvörðun kjara­ráðs.

Hörð gagnrýni

Laun for­­stöð­u­­manna nokk­­urra rík­­is­­stofn­ana hækk­­uðu gíf­­ur­­lega mikið eftir að nýr úrskurður kjara­ráðs um kjör þeirra lá fyr­­ir. Hækk­­an­­irnar eru aft­­ur­­virkar til allt að 1. des­em­ber 2014 og bæt­­ast ofan á 7,15 pró­­sent hækkun sem tók gildi um síð­­­ustu mán­að­­ar­­mót. Hækk­­an­­irnar komu til eftir að for­­stöð­u­­menn­irnir sjálfir eða ráðu­­neyti þeirra ósk­uðu eftir því að launin yrðu hækk­­uð.

Launa­hækk­an­irnar hafa verið harð­lega gagn­rýndar. Gylfi Arn­björns­son, for­seti Alþýðu­sam­bands Íslands (ASÍ), kall­aði eftir því í gær að Alþingi verði kallað saman til að færa ákvarð­anir launa­hækk­anir for­stöðu­manna stofn­ana til baka. Slíkt hafi verið gert vegna flug­um­ferða­stjóra og þeir sem heyra undir kjara­ráð eigi ekki að vera stikk­frí. „Ef ekki þá verður rík­is­stjórnin að axla ábyrgð á því sem yrði hennar loka­verk­efni að setja hér allt í loft upp.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Kjaramál

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár