Bjarni boðar miklar breytingar á kjararáði

Bjarni Bene­dikts­son fjár­mála­ráð­herra vill gera breyt­ingar á lögum um kjara­ráð og segir það löngu tíma­bært. Hann ætlar að leggja fram frum­varp á Alþingi um breyt­ingar á lög­unum, þar sem hund­ruð emb­ætt­is­manna færu undan ákvörð­unum ráðs­ins og þeim væri veittur samn­ings­réttur. Þetta kom fram í kvöld­fréttum RÚV.

„Ég hef látið semja frum­varp þar sem við stór­fækkum þeim sem heyra undir ráðið, og færum þeim aftur samn­ings­rétt,“ sagði Bjarni við RÚV. „Losum undan ákvörð­unum kjara­ráðs stóra hópa, til dæmis skrif­stofu­stjóra, for­stöðu­menn í félögum sem ríkið er í meiri­hluta­eigu með, presta, pró­fasta, biskup og vígslu­biskup og sendi­herra.“

Hann seg­ist hafa skiln­ing á því að fólki bregði þegar það sjái miklar launa­hækk­anir í einu stökki, eins og til­fellið er núna með ráðu­neyt­is­stjóra og skrif­stofu­stjóra í ráðu­neytum, sem hækka um fjórð­ung í launum sam­kvæmt ákvörðun kjara­ráðs. Eins og Kjarninn greindi frá í morgun hefur verka­lýðs­for­ystan gagn­rýnt þetta harð­lega.

Bjarni seg­ist eiga von á breiðri sam­stöðu um breyt­ingar á kjara­ráði, en hann hefur kynnt frum­varpið for­ystu­mönnum allra flokka á þingi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár