Frá kosningum til dagsins í dag: Svona hefur fylgi stjórnmálaflokkanna þróast

Þeir flokkar sem mynda rík­is­stjórn­ina hafa tapað 12,4 pró­sentu­stigum frá kosn­ing­unum 2017 sam­kvæmt könn­unum MMR. Fjórir stjórn­ar­and­stöðu­flokkar hafa á sama tíma bætt við sig 11,1 pró­sentu­stigum.

Katrín Jakobsdóttir, formaður Vinstri grænna og forsætisráðherra, á kjörstað 2017. Margt hefur breyst í stuðningi flokks hennar síðan þá.
Katrín Jak­obs­dóttir, for­maður Vinstri grænna og for­sæt­is­ráð­herra, á kjör­stað 2017. Margt hefur breyst í stuðn­ingi flokks hennar síðan þá. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Allir stjórn­ar­flokk­arnir þrír myndu fá sína verstu nið­ur­stöðu í kosn­ingum frá upp­hafi ef kosið væri í dag, miðað við stöðu mála sam­kvæmt síð­ustu könnun MMR. Vinstri græn eru sá flokkur sem tapar lang­mest þeirra, en fylgi flokks­ins er rúm­lega helm­ingur af því sem kom upp úr kjör­köss­unum haustið 2017.

Þrír frjáls­lyndu flokk­arnir í stjórn­ar­and­stöðu eru þeir flokkar sem bæta mestu við sig af fylgi á kjör­tíma­bil­inu, og þeir skipta þeirri fylg­is­aukn­ingu nokkuð bróð­ur­lega á milli sín. Samt blasir við að þeir þurfa að minnsta kosti einn flokk með sér ef þeir ætla að mynda rík­is­stjórn.

Svo eru það þeir sem standa í stað, eða eru jafn­vel ekki komnir á fullu af stað.

Kjarninn rýnir í hvernig stjórn­mála­flokk­unum sem mældir eru í könn­unum MMR hefur reytt af frá kosn­ing­unum í októ­ber 2017 og fram til dags­ins í dag.

Þeir sem hafa tapað fylgi

Vinstri græn -8,6 prósentustig

Vinstri­hreyf­ingin grænt fram­boð var stofnuð árið 1999 og bauð fyrst fram í þing­kosn­ing­unum það sama ár. Þá fékk flokk­ur­inn 9,1 pró­sent atkvæða undir for­mennsku Stein­gríms J. Sig­fús­sonar, sem þótti mikil kosn­inga­sigur, enda voru þetta fyrstu kosn­ing­arnar sem sam­einað fram­boð vinstri­manna á Íslandi, Sam­fylk­ingin, bauð fram líka. Fjórum árum síðar voru Vinstri græn á svip­uðum slóðum og fengu 8,8 pró­sent. Það er enn þann dag í dag versta nið­ur­staða flokks­ins í kosn­ingum. Sú besta kom eftir hrunið, árið 2009, þegar 21,7 pró­sent lands­manna kusu Vinstri græn sem skil­aði þeim í fyrstu tveggja flokka meiri­hluta­stjórn vinstri­flokka í Íslands­sög­unni. Helm­ingur þeirra atkvæða hvarf í næstu kosn­ingum á eftir. Árin 2016 og 2017, undir for­mennsku Katrínar Jak­obs­dóttur, styrkt­ist flokk­ur­inn á ný og í síð­ari kosn­ing­unum fékk hann 16,9 pró­sent atkvæða.

Eftir þær kosn­ingar ákváðu Vinstri græn að mynda umdeilda rík­is­stjórn með Sjálf­stæð­is­flokki og Fram­sókn­ar­flokki, sem fór mjög öfugt ofan í margt stuðn­ings­fólk flokks­ins sem litið hefur á þá flokka sem helstu póli­tísku and­stæð­inga þeirrar stefnu sem Vinstri græn hafa staðið fyrir.

[adspot]Á kjör­tíma­bil­inu hefur fylgi Vinstri grænna enda dreg­ist mikið saman. Í síð­ustu tveimur könn­unum MMR hefur það mælst lægra en það hefur gert frá því í mars 2016, áður en að Panama­skjölin voru opin­beruð. Í þeirri nýj­ustu mæld­ist það 8,3 pró­sent. Ef kosið yrði í dag myndu Vinstri græn því fá minnsta fylgi sitt í sög­unni, fylgið frá síð­ustu kosn­ingum myndi rúm­lega helm­ing­ast og flokk­ur­inn yrði sjö­undi stærsti flokkur lands­ins. Miðað við könn­un­ina þá hefur tæp­lega 70 pró­sent af því fylgis­tapi sem rík­is­stjórn­ar­flokk­arnir mæl­ast með orðið hjá Vinstri grænum.

Sjálfstæðisflokkurinn -3,3 prósentustig

Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn fékk 25,2 pró­sent atkvæða í kosn­ing­unum haustið 2017. Það var næst versta útkoma hans frá upp­hafi, en flokk­ur­inn fékk ára­tugum saman að jafn­aði 35 til 40 pró­sent atkvæða.

Eina skiptið sem þessi þaul­setn­asti valda­flokkur lands­ins hafði fengið minna upp úr kjör­köss­unum var í vor­kosn­ing­unum 2009, nokkrum mán­uðum eftir banka­hrunið. Þá var fylgið 23,7 pró­sent og þótti afhroð, enda hafði Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn fengið 36,6 pró­sent atkvæða í kosn­ing­unum sem haldnar voru tveimur árum áður.

Besta eft­ir­hruns­nið­ur­staða stærsta flokks lands­ins kom í kosn­ing­unum 2016, þegar 29 pró­sent lands­manna settu X við D.

Það sem af er kjör­tíma­bili hefur Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn að mestu verið að mæl­ast undir kjör­fylgi í könn­unum MMR. Lægst mæld­ist fylgi flokks­ins í nóv­em­ber í fyrra, 18,1 pró­sent. Hæst reis það fyrstu vik­urnar eftir að kór­ónu­veiru­far­ald­ur­inn skall á þegar það fór í 27,4 pró­sent.

Í nýj­ustu könnun MMR, sem birt var ell­efu mán­uðum fyrir næstu kosn­ingar, mæld­ist fylgið 21,9 pró­sent. Miðað við þá stöðu hefur Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn tapað 3,3 pró­sentu­stigum á kjör­tíma­bil­inu og stefnir í síðan verstu nið­ur­stöðu í sög­unni, ef kann­anir MMR stand­ast.

Flokkur fólksins - 3,1 prósentustig

Flokkur fólks­ins, undir for­ystu Ingu Sæland, komst inn á þing með eft­ir­minni­legum hætti á loka­metrum síð­ustu kosn­inga­bar­áttu. Þar skipti lyk­il­máli að Inga komst við og flutti mál sitt af mik­illi til­finn­ingu í síð­ustu leið­togaum­ræðum þeirrar bar­áttu. Flokk­ur­inn hafði mælst með 4,4 pró­sent fylgi í síð­ustu könnun MMR, sem birt var dag­inn fyrir kosn­ingar, en fékk á end­anum 6,9 pró­sent fylgi og fjóra þing­menn. Tveir þeirra voru reknir út Flokki fólks­ins eftir Klaust­ur­málið, og gengu til liðs við Mið­flokk­inn.

Flokk­ur­inn hefur hefur ein­ungis einu sinni mælst með yfir fimm pró­sent fylgi síð­ast­liðið ár í könn­unum MMR og í nýj­ustu könnun fyr­ir­tæk­is­ins mælist fylgið 3,8 pró­sent. Það er afar ósenni­legt að slík nið­ur­staða myndi skila flokknum inn á þing.

Þeir sem hafa bætt við sig

Píratar +4,3 prósent

Voru stofnaðir árið 2012. í stafni á þeim tíma voru Birgitta Jónsdóttir, sem hafði verið kjörin á þing fyrir Borgarahreyfinguna 2009, og Smári McCarthy. Í fyrstu þingkosningum Pírata 2013 rétt skreið flokkurinn á þing með 5,1 prósent atkvæða. Á árinu 2015 fór að bera á ótrúlegri fylgisaukningu flokksins og frá febrúar á því ári fram í mars 2016 raun fylgi Pírata í könnunum MMR úr 12,8 prósent í 38,3 prósent. Þeim gekk hins vegar illa að halda því fylgi og þegar kosið var haustið 2016 fékk flokkurinn á endanum 14,5 prósent. Það var hans besti árangur, og næstum þreföldun á fylgi, en var samt talið vera mikið vonbrigði eftir hinn mikla gang nokkrum mánuðum fyrr.

[adspot]Í síðustu kosningum segi fylgi Pírata og þeir fengu 9,2 prósent atkvæða.

Á yfirstandandi kjörtímabili hafa Píratar oftast nær verið að mælast sem þriðji stærsti flokkur landsins. Fylgið mældist minnst í október í fyrra hjá MMR, þegar 8,8 prósent sögðust ætla að kjósa flokkinn. Hæst hefur það farið í 15,4 prósent í lok júlí síðastliðins. Því er lægsta fylgið sem Píratar hafa mælst með á kjörtímabilinu nánast það sama og flokkurinn fékk í síðustu kosningum.

Nýjasta könnun MMR sýnir flokkinn með 13,5 prósent fylgi, eða 4,3 prósentustigum meira en Píratar fengu 2017. Það þýðir að enginn annar flokkur hefur bætt við sig jafn miklu fylgi á kjörtímabilinu.

Samfylkingin +3,1 prósentustig

Við stofnun stefndi Sam­fylk­ingin að því að verða alvöru mót­vægi við Sjálf­stæð­is­flokk­inn. Í fyrstu kosn­ing­unum sem hún bauð fram, árið 1999, fékk hún 26,8 pró­sent atkvæða. Það var samt sem áður ein­ungis ⅔ af því sem Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn fékk. Fjórum árum síðar fékk Sam­fylk­ingin sína bestu kosn­ingu, þegar 31 pró­sent lands­manna kusu flokk­inn undir for­ystu Össurar Skarp­héð­ins­sonar. Í þeim kosn­ingum mun­aði ein­ungis 4.999 atkvæðum á Sam­fylk­ing­unni og Sjálf­stæð­is­flokknum.

Flokk­ur­inn var á svip­uðum slóðum árin 2007 og 2009, þegar hann rataði í rík­is­stjórn eftir kosn­ingar. 2013 varð hins vegar algjört hrun. Sam­fylk­ingin tap­aði 16,9 pró­sentu­stigum milli kosn­inga og fékk 12,9 pró­sent. Það er mesta tap flokks milli kosn­inga í Íslands­sög­unni. Staðan versn­aði enn 2016 þegar Sam­fylk­ingin rétt hékk inni á þingi með 5,7 pró­sent atkvæða og einn kjör­dæma­kjör­inn þing­mann, Loga Ein­ars­son núver­andi flokks­for­mann. Kosn­ing­arnar 2017 hífðu flokk­inn aðeins upp og gerðu að þriðja stærsta flokki lands­ins, en fylgið var samt sem áður ein­ungis 12,1 pró­sent.

Á þessu kjör­tíma­bili hefur Sam­fylk­ingin oft­ast verið að mæl­ast næst stærsti flokkur lands­ins í könn­unum MMR. Lægst seig fylgið í 11,5 pró­sent í febr­úar 2018 en hæst fór það í 19,8 pró­sent í sept­em­ber sama ár. Nú mælist það 15,2 pró­sent sem myndi þýða að flokk­ur­inn bætti við sig 3,1 pró­sentu­stigi ef kosið yrði í dag.

Viðreisn +3,0 prósentustig

Viðreisn bauð fyrst fram fyrir kosn­ing­arnar 2016, undir for­mennsku Bene­dikts Jóhann­es­sonar. Uppi­staðan í flokknum, sem hafði verið form­lega stofn­aður fyr á því ári, voru ein­stak­lingar sem yfir­gáfu Sjálf­stæð­is­flokk­inn í kjöl­far þess að rík­is­stjórn sem hann sat í aft­ur­kall­aði aðild­ar­um­sókn að Evr­ópu­sam­band­inu. Einnig var þar þó að finna fólk sem hafði verið virkt í Sam­fylk­ing­unni eða hafði ekki starfað í stjórn­mála­flokkum áður.

Í fyrstu kosn­ing­unum fékk flokk­ur­inn 10,5 pró­sent atkvæða sem þótti mik­ill sigur, enda nálægt því mesta sem flokkur í fyrstu þing­kosn­ingum sínum hafði nokkru sinni náð. Viðreisn fór á end­anum í rík­is­stjórn með Sjálf­stæð­is­flokki og Bjartri fram­tíð en sú varð skamm­lífasta meiri­hluta­stjórn lýð­veld­is­sög­unnar og sprakk í sept­em­ber 2017. Í kosn­ing­unum sem fylgdu í kjöl­farið fékk Viðreisn 6,7 pró­sent atkvæða undir for­mennsku Þor­gerðar Katrínar Gunn­ars­dóttur. Það þótti varn­ar­sigur, enda mæld­ist fylgi flokks­ins 3,6 pró­sent rúmum tveimur vikum fyrir kosn­ingar og raun­veru­leg hætta á að hann næði ekki inn á þing.

Á þessum kjör­tíma­bili hefur fylgi Við­reisnar verið nokkuð stöðugt, sér­stak­lega á síð­ari hluta þess. Minnst mæld­ist það snemma árs 2018, 5,8 pró­sent. Mest mæld­ist fylgið í jan­úar síð­ast­liðnum, 12,4 pró­sent.

Í nýj­ustu könnun MMR sögð­ust 9,7 pró­sent kjós­enda ætla að kjósa Viðreisn sem þýðir að flokk­ur­inn hefur bætt við sig þremur pró­sentu­stigum á kjör­tíma­bil­inu.

Þeir sem standa nánast í stað

Miðflokkurinn +0.7 prósent

Mið­flokk­urin var stofn­aður skömmu fyrir síð­ustu kosn­ingar og náði besta árangri sem nokkur flokkur hefur náð í fyrstu fram­boðstil­raun til Alþing­is, þegar hann fékk 10,9 pró­sent atkvæða. Flokk­ur­inn var stofn­aður í kringum Sigmund Davíð Gunn­laugs­son, sem hafði hrak­ist úr for­sæt­is­ráð­herra­stóli ári áður og svo tapað for­manns­kosn­ingum í Fram­sókn­ar­flokknum.

Mið­flokk­ur­inn hefur átt storma­samt fyrsta kjör­tíma­bil, þar sem hann hefur bæði unnið sigra og gengið í gegnum miklar áskor­anir. Í sveit­ar­stjórn­ar­kosn­ing­unum 2018 gekk flokknum vel víða, náði inn tíu full­trúum í sveit­ar­stjórnir og mynd­aði meiri­hluta í Árborg með Sam­fylk­ingu, Framsókn og Á-lista. Mið­flokknum tókst líka að vekja mikla athygli, og auka fylgi sitt, þegar umræða um þriðja orku­pakk­ann svo­kall­aða stóð sem hæst, og þing­menn flokks­ins lögð­ust í for­dæma­laust mál­þóf til að tefja fyrir inn­leið­ingu hans í íslensk lög. Fyrir um ári síðan var flokk­ur­inn að mæl­ast með sitt mesta fylgi í könn­unum MMR, eða 16,8 pró­sent.

Á hinn bóg­inn varð Klaust­ur­málið flokknum til mik­ils álits­hnekkis. Eftir að það kom upp í des­em­ber 2018 sökk fylgi Mið­flokks­ins í 5,9 pró­sent.

Í nýj­ustu könnun MMR mælist Mið­flokk­ur­inn með 11,6 pró­sent, eða rétt yfir því sem flokk­ur­inn fékk haustið 2017.

Framsóknarflokkurinn -0,5 prósent

Hinn hefð­bundni valda­flokkur lands­ins, Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn, hefur gengið í gegnum ákveðna rús­sí­ban­areið síð­ustu árin. Hann beið afhroð í kosn­ingum 2007 eftir 12 ára rík­is­stjórn­ar­sam­starf við Sjálf­stæð­is­flokk­inn, og fékk þá 11,7 pró­sent undir for­mennsku Jóns Sig­urðs­sonar. Í kosn­ing­unum 2009 var nýr og ungur for­maður mættur í brúnna, Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son, sem fór með flokk­inn í aðrar áttir en hann hafði verið í. Undir for­mennsku hans vann flokk­ur­inn svo mik­inn kosn­inga­sigur 2013 þegar hann fékk 24,4 pró­sent atkvæða. Það var besta nið­ur­staða Fram­sóknar frá árinu 1979. Sig­mundur Davíð varð for­sæt­is­ráð­herra og sat sem slíkur fram á vor­mán­uði 2016, þegar hann var knú­inn til að segja af sér vegna Wintris-máls­ins. Síðar um haustið vann svo Sigurður Ingi Jóhanns­son hann í blóð­ugum for­manns­slag.

Uppskera Fram­sóknar í kosn­ing­unum 2016 (11,5 pró­sent) og 2017 (10,7 pró­sent) var ekki beysin. Um tvær verstu nið­ur­stöður Fram­sóknar frá stofnun var að ræða. Í síð­ari kosn­ing­unum verður þó að taka til­lit til þess að Sig­mundur Davíð klauf sig úr flokknum í aðdrag­anda þeirra og stofn­aði Mið­flokk­inn. Því þótti nið­ur­staðan ásætt­an­legur varn­ar­sigur.

Kannanir MMR hafa mest megnis sýnt fallandi fylgi hjá Framsókn á þessu kjör­tíma­bili, ef tíma­bilið eftir að Klaust­ur­málið svo­kall­aða kom upp er und­an­skilið. Þá rauk fylgið um tíma upp í 13,5 pró­sent. Lægst mæld­ist fylgið 6,1 pró­sent í júní síð­ast­liðnum en það hefur auk­ist umtals­vert síð­ustu mán­uði, og er nú að mæl­ast 10,2 pró­sent, eða rétt undir kjör­fylgi.

Þeir sem voru ekki með síðast

Sósíalistaflokkur Íslands + 4,6 prósent

Sós­í­alista­flokkur Íslands hefur verið hluti af mæl­ingum MMR frá því í febr­úar í fyrra, enda sýndi flokk­ur­inn skýrt póli­tískt erindi með því að ná inn full­trúa í borg­ar­stjórn Reykja­víkur í borg­ar­stjórn­ar­kosn­ingum 2018. Sós­í­alistar hafa þegar ákveðið að bjóða fram í kosn­ing­unum á næsta ári en ekk­ert liggur fyrir hvernig listar flokks­ins verða mann­aðir. Fylgi hans hefur oft­ast verið að mæl­ast rétt undir fimm pró­sentum í könn­unum MMR und­an­farið og var 4,6 pró­sent í síð­ustu könnun fyr­ir­tæk­is­ins. Það er ekki úti­lokað að slíkt fylgi gæti skilað Sós­í­alista­flokknum kjör­dæma­kjörnum þing­mönnum, en það myndi ekki duga til að fá upp­bót­ar­þing­menn, enda þurfa flokkar að fá yfir fimm pró­sent fylgi til þess.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kannanir

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár