Svona stýrir ríkisstjórnin umræðunni

Stundin ræðir við almanna­tengil og heim­spek­ing um orð­ræð­una varð­andi bréf Gunnars Braga Sveins­sonar. Tíma­setn­ingin virð­ist hafa verið þaul­hugsuð. Sið­ferð­is­legu álita­málin standa eftir. Óljóst hvaða góða ástæða liggur að baki því að hlusta ekki á þjóð­ina.

„Það er klár­lega ein­hver stra­tegía í gangi,“ segir Grétar Sveinn Theo­dórs­son almanna­teng­ill í sam­tali við Stundina um atburða­rás­ina sem rík­is­stjórnin hrinti af stað í síð­ustu viku. Utan­rík­is­ráð­herra sendi bréf til for­ystu Evr­ópu­sam­bands­ins á fimmtu­dag og greindi frá því að rík­is­stjórnin liti svo á að Ísland væri ekki lengur í hópi umsókn­ar­ríkja og er Evr­ópu­sam­bandið beðið um að taka mið af því. Gunnar Bragi hefur ítrekað látið hafa eftir sér að með þessu sé málið komið á enda­stöð. 

Það var RÚV sem greindi fyrst frá bréf­inu í kvöld­fréttum útvarps klukkan sex síð­ast­lið­inn fimmtu­dag. Grétar Sveinn segir tíma­setn­ing­una enga til­viljun. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár