Helmingur komufluga WOW Air of sein

Helm­ingur komufluga WOW Air voru of sein í febr­úar. Með­alseinkun var tæpur hálf­tími. Icelandair er stund­vís­asta félagið. Kefla­vík­ur­flug­völlur lenti í þriðja sæti í alþjóð­legri þjón­ustukönnun.

Keflavíkurflugvöllur lenti í þriðja sæti í alþjóðlegri þjónustukönnun og deildi sætinu meðal annars með Heathrow og Kaupmannahafnarflugvelli.
Kefla­vík­ur­flug­völlur lenti í þriðja sæti í alþjóð­legri þjón­ustukönnun og deildi sæt­inu meðal ann­ars með Heathrow og Kaup­manna­hafn­ar­flug­velli. Mynd: ISAVIA

Helm­ingur komufluga hjá WOW Air kemur of seint, sam­kvæmt nýjum tölum frá Dohop. Icelandair er stund­vís­asta flug­fé­lagið í febr­úar, en nokkrar breyt­ingar urðu á milli mán­aða. EasyJet, sem var stund­vís­asta flug­fé­lagið í jan­úar 2016, er nú óstund­vís­ast þegar kemur að brott­förum úr Keflavík, en er aftur á móti stund­vís­ast við lend­ingar.

Icelandair stundvísast heilt yfir

WOW Air kemur ekki vel út úr könnun Dohop, en helm­ingur komufluga fyr­ir­tæk­is­ins eru sein og er með­alseinkun tæpur hálf­tími, eða um 26 mín­útur. Þegar allt flug er skoðað eru 60 pró­sent véla WOW Air á réttum tíma.

Tæp 80 pró­sent brott­fara hjá Icelandair eru á réttum tíma, tæp 70 pró­sent hjá WOW Air og rúm 65 pró­sent hjá EasyJet. 70 pró­sent lend­inga Icelandair er á réttum tíma og 80 pró­sent hjá EasyJet.

Í til­kynn­ingu frá Dohop segir að þegar allt flug í febr­úar er skoðað sést að Icelandair er stund­vís­asta flug­fé­lagið og aðeins munar tveimur pró­sentum á Icelandair og EasyJet. Þó munar heilum 15 pró­sent á stund­vísi Icelandair og WOW Air.

Ánægja með Leifsstöð þrátt fyrir framkvæmdir

Þó að hlut­fall óstund­vísra véla sé nokkuð hátt þegar á heild­ina er litið virð­ist það ekki koma mikið að sök því Kefla­vík­ur­flug­völlur lenti í þriðja sæti í alþjóð­legri þjón­ustukönnun fyrir árið 2015 sem gerð er á vegum alþjóða­sam­taka flug­valla, ACI. Í til­kynn­ingu frá Isavia, sem send var fjöl­miðlum í morgun, kemur fram að Kaupa­manna­hafn­ar­flug­völlur, Heathrow í London, flug­völl­ur­inn í Porto og Vín­ar­flug­völlur deila þriðja sæt­inu með Kefla­vík­ur­velli. Í fyrsta sæti voru þrír flug­vellir jafnir, Sher­em­etyevo flug­völlur í Moskvu, Pulkovo flug­völlur í Pét­urs­borg og Sochi flug­völlur.

Haft er eftir Birni Óla Hauks­syni, for­stjóra Isavia, í til­kynn­ing­unni að árið 2015 hafi verið stærsta ár í sögu flug­vall­ar­ins og háanna­tímar sum­ars­ins hafi á stundum verið erf­iðir fyrir far­þega og starfs­fólk vegna mik­ils far­þega­fjölda og yfir­stand­andi fram­kvæmda. Gert er ráð fyrir 37 pró­sent fleiri far­þegum í ár en fóru um flug­völl­inn í fyrra. Því séu nið­ur­stöður könn­un­ar­innar sér­stak­lega ánægju­legar.

Í könn­un­inni eru far­þegar spurðir um sína upp­lifun af þjón­ustu flug­vall­ar­ins og gefa ein­kunn í fjöl­mörgum flokkum. Könnunin nær yfir alla þætti ferð­ar­innar um flug­völl­inn, hvort sem er inn­ritun, örygg­is­leit, þjón­usta í versl­unum og veit­inga­stöðum, vega­bréfa­eft­ir­lit, toll­skoðun og aðra þjón­ustu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár