Konurnar við ríkisstjórnarborðið þykja standa sig betur í starfi en karlarnir

Þeir fjórir ráð­herrar sem mest ánægja er með á meðal þjóð­ar­innar eru konur. Svo koma tveir karlar. Síðan fimmta konan. Og fjórir karlar verma botns­ætin. Mynstrið er svipað og þegar ánægja með frammi­stöðu ráð­herr­anna var mæld í fyrra.

Meiri ánægja mælist störf kvenna en karla í ríkistjórn Íslands í nýrri könnun frá Gallup.
Meiri ánægja mælist störf kvenna en karla í rík­i­s­tjórn Íslands í nýrri könnun frá Gallup. Mynd: Bára Huld Beck

Konurnar sem sitja við rík­is­stjórn­ar­borðið eru almennt vin­sælli á meðal almenn­ings en karl­arnir sem þar sitja með þeim, en sam­kvæmt nýrri könnun sem Gallup birti í gær eru fjórir vin­sæl­ustu ráð­herr­arnir í rík­is­stjórn Katrínar Jak­obs­dóttur konur. Mest er ánægjan með störf Katrínar sjálfrar, svo Lilju Alfreðs­dóttur og þá Þórdísar Kol­brúnar R. Gylfa­dóttur og Svan­dísar Svav­ars­dóttur, áður en fyrsti karl­inn kemst á blað.

Svipað var uppi á ten­ingnum í könnun sem Maskína birti í apríl í fyrra, en þá skip­uðu konur sér í efstu þrjú sætin þegar almenn­ingur var spurður út í ánægju sína með frammi­stöðu ein­staka ráð­herra í starfi.

Kann­an­irnar tvær eru ekki að öllu leyti eins hvað aðferða­fræði og úrtak varðar, en spyrja þó í grunn­inn sama hóp­inn, íslensku þjóð­ina, að sömu spurn­ing­unni, hversu ánægð eða óánægð hún er með störf þeirra sem sigla þjóð­ar­skút­unni.

Mest ánægja með störf Katrínar

Þjóðin er ekki ánægð­ari með neinn ráð­herra en Katrínu Jak­obs­dóttur for­sæt­is­ráð­herra og for­mann Vinstri grænna. Rúmlega 59 pró­sent lands­manna eru ánægð með störf Katrínar sam­kvæmt nið­ur­stöðum könn­un­ar­innar frá Gallup, en 21 pró­sent óánægð.

Í könnun Maskínu frá því í fyrra, sem tekið skal fram að er ekki fylli­lega sam­bæri­leg, mæld­ist ánægja með störf Katrínar 38,6 pró­sent, mun minni en hún mælist nú. Einnig mæld­ist tölu­vert meiri óánægja með störf Katrínar þá, eða 34,4 pró­sent þeirra sem svör­uðu könnun Maskínu fyrir rúmu ári síðan sögð­ust óánægð með verk for­sæt­is­ráð­herr­ans.

Katrín hefur lengi verið einn vin­sæl­asti stjórn­mála­maður lands­ins og notið vin­sælda þvert á flokka. Í skoð­ana­könnun sem var gerð árið 2015 naut hún mest trausts alls for­ystu­fólks í stjórn­málum, en þá sögð­ust um sex af hverjum tíu treysta henni, sem er einmitt svipað hlut­fall þjóð­ar­innar og seg­ist ánægt með störf hennar nú.

Umtals­vert meiri ánægja er með störf Katrínar á meðal þjóð­ar­innar en hinna leið­toga rík­is­stjórn­ar­flokk­anna um þessar mundir, en 43 pró­sent lands­manna eru ánægð með störf Bjarna Bene­dikts­sonar og 39 pró­sent með störf Sigurðar Inga Jóhanns­sonar, sam­kvæmt könnun Gallup. Þeir eru þó vin­sæl­ustu karl­arnir við rík­is­stjórn­ar­borðið.

Framsókn nýtur lítillar hylli en Lilja er áfram vinsæl

Mennta- og menn­ing­ar­mála­ráð­herr­ann Lilja Dögg Alfreðs­dóttir fór með him­in­skautum í mæl­ingu Maskínu á vor­mán­uðum 2019 og var þá sá ráð­herra sem lang­flestir voru ánægðir með, eða heil 67,6 pró­sent aðspurðra. Einungis 9,6 pró­sent óánægja mæld­ist með störf hennar í þeirri könnun.

Í könnun Gallup nú segj­ast nærri 54 pró­sent vera ánægð með störf Lilju, en rúm 17 pró­sent eru óánægð með hennar verk, sem gerir hana að óum­deildasta ráð­herra rík­is­stjórn­ar­innar, sam­kvæmt könn­un­inni.

Þegar mæl­ingin í fyrra fór fram var enn mikið rætt um Klaust­ur­málið, en Lilja var ein fjöl­margra sem núver­andi þing­menn Mið­flokks­ins töl­uðu illa um yfir drykkjum þann 20. nóv­em­ber 2018. Varð hún meðal ann­ars að þola grófar kyn­ferð­is­legar athuga­semdir frá sam­þing­manni sínum Bergþóri Ólasyni. Viðbrögð hennar í kjöl­farið vöktu mikla athygli, en hún fór í Kast­ljós­við­tal og lýsti orðum þeirra sem sátu og rausuðu á Klaustri sem algjöru ofbeldi, sem hún væri ofboðs­lega ósátt við.

Á sviði stjórn­mál­anna hefur ekki allt gengið upp sem Lilja hefur ætlað sér und­an­farin miss­eri.

Fjöl­miðla­frum­varp hennar situr til dæmis enn fast í þing­nefnd og hefur mætt yfir­lýstri and­stöðu þing­manna Sjálf­stæð­is­flokks­ins. Þá mælist Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn nú með sitt minnsta fylgi frá síð­ustu kosn­ingum, eða ein­ungis 6,4 pró­sent, sam­kvæmt könnun MMR sem birt var fyrr í vik­unni.

Einnig hafa gjörðir Lilju ekki alltaf fallið í kramið hjá sam­ráð­herrum hennar. Skýrt dæmi um það núna nýlega var þegar hún lét hafa eftir sér í hlað­varps­þætti Við­skipta­Mogg­ans að senni­lega yrði ekki hægt að opna fyrir óheft flæði fólks til og frá Íslandi fyrr en búið væri að finna upp bólu­efni við kór­ónu­veirunni.

Aðrir ráð­herrar hlupu til og sögðu ekk­ert hafa verið ákveðið um slíkt, enda væri þar um meiri­háttar stefnu­breyt­ingu að ræða sem yrði kynnt með form­legum og við­eig­andi hætti.

Lilja er talin lík­leg til þess að gefa kost á sér í for­manns­emb­ætti Fram­sókn­ar­flokks­ins fyrir kosn­ing­arnar á næsta ári og hefur hvorki sagt af eða á um hvort svo verði.

Tæpur helmingur ánægður með verk Þórdísar og Svandísar

Nær jafnar í þriðja og fjórða sæti yfir vin­sæl­ustu ráð­herrana eru þær Þórdís Kolbrún R. Gylfa­dóttir ferða­mála-, iðn­aðar- og nýsköp­un­ar­ráð­herra og Svandís Svav­ars­dóttir heil­brigð­is­ráð­herra, en um 46 pró­sent ánægja mælist með störf þeirra í könnun Gallup.

Þórdís Kolbrún var næst­vin­sæl­asti ráð­herr­ann í könnun Maskínu í fyrra og mæld­ist þar 43,2 pró­sent ánægja með störf hennar og er hún því svipuð nú. Þórdís Kolbrún er vara­for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins og óum­deild­asti ráð­herra hans, en ein­ungis rúm 18 pró­sent svar­enda í könnun Gallup sögð­ust óánægðir með störf Þórdísar Kol­brúnar.

Munar tölu­verðu á henni og Guðlaugi Þór Þórð­ar­syni, sem um 28 pró­sent segj­ast óánægð með, og þeim Bjarna Bene­dikts­syni og Áslaugu Örnu Sig­ur­björns­dóttur, sem 35 pró­sent eru óánægð með. 62 pró­sent sögð­ust óánægð með störf Krist­jáns Þórs Júl­í­us­sonar sjáv­ar­út­vegs- og land­bún­að­ar­ráð­herra.

Ánægja með störf Svan­dísar hefur vaxið gríð­ar­lega frá mæl­ing­unni í fyrra, en þá sögð­ust aðeins 19,9 pró­sent vera ánægð með frammi­stöðu hennar sem heil­brigð­is­ráð­herra.

Einungis mæld­ist minni ánægja með störf tveggja ráð­herra í mæl­ingu Maskínu þá, þeirra Krist­jáns Þórs og Sigríðar Á. Andersen, sem var þá reyndar þegar búin að segja af sér sem dóms­mála­ráð­herra vegna Lands­rétt­ar­máls­ins.

Mögulega hefur kór­ónu­veiru­far­ald­ur­inn aukið vin­sældir Svan­dísar, en sem heil­brigð­is­ráð­herra hefur hún und­an­farna mán­uði tekið og kynnt ákvarð­anir um sótt­varna­ráð­staf­anir sem almennt hafa fallið ágæt­lega í kramið.

Mælingar hafa sýnt að öllum meg­in­þorra almenn­ings þóttu þær ráð­staf­anir hóf­legar og í takti við til­efnið, þó að einnig hafi hluti þjóð­ar­innar talið að ýmist væri of mikið eða of lítið gert til þess að bregð­ast við.

Dómsmálin virðast ekki líklegt til vinsælda

Áslaug Arna Sig­ur­björns­dóttir er nýjasti og um leið yngsti ráð­herra rík­is­stjórn­ar­innar, 29 ára gömul. Hún tók við sem dóms­mála­ráð­herra í lok síð­asta sum­ars eftir að Þórdís Kolbrún hafði lengt starfs­titil sinn enn frekar með því að fylla skarð Sigríðar Á. Andersen tíma­bundið.

Áslaug Arna er rétt fyrir neðan miðjan ráð­herra­hóp­inn hvað vin­sældir varðar, en 37 pró­sent lands­manna segj­ast ánægðir með störf hennar. Á móti kemur eru næstum því jafn­margir sem segj­ast óánægðir, sam­kvæmt könnun Gallup.

Frá því að Áslaug Arna tók við emb­ætti hefur ýmis­legt verið á döf­inni á hennar mál­efna­sviði. Eitt hennar fyrstu verka var að takast á við mikla ólgu vegna langvar­andi deilna innan lög­regl­unnar og gerð starfs­loka­samn­ings við Harald Johann­es­sen rík­is­lög­reglu­stjóra í kjöl­farið. Síðan þá hefur hún skipað Sigríði Björk Guð­jóns­dóttur í emb­ættið.

Málefni flótta­fólks hafa einnig verið í umræð­unni og senni­lega bakað Áslaugu Örnu nokkrar óvin­sældir. Nú er til með­ferðar á Alþingi frum­varp hennar um breyt­ingar á útlend­inga­lögum, sem Rauði kross­inn á Íslandi hefur sagt fela í sér veru­lega aft­ur­för og rétt­inda­skerð­ingu fyrir fólk á flótta.

Fjórir karlar reka lestina í ánægjumælingunni

Hér að ofan hefur verið fjallað um hvernig kon­urnar í ráð­herra­lið­inu koma út í sam­an­burði við mæl­ingu Maskínu í fyrra. Þegar horft er til karl­anna eru þeir Bjarni og Sigurður Ingi vin­sæl­astir, en nær 43 pró­sent segj­ast ánægð með störf Bjarna og 39 pró­sent með störf Sigurður Inga, sem áður segir.

Báðir rísa þeir nokkuð mikið frá mæl­ingu Maskínu í fyrra, en þá voru ein­ungis 25 pró­sent sem sögð­ust ánægð með frammi­stöðu Bjarna og 27,8 pró­sent voru ánægð með Sigurð Inga.

Ekki er jafn mikil ánægja með hina karl­ana í ráð­herra­lið­inu, en svo sem ekki sér­lega mikil óánægja heldur, ef frá er talin sú megna óánægja sem mælist með störf Krist­jáns Þórs í könnun Gallup nú.

Þeir Guð­mundur Ingi Guð­brands­son umhverfis- og auð­linda­ráð­herra og Guð­laugur Þór Þórð­ar­son utan­ríkis- og þró­un­ar­sam­vinnu­ráð­herra falla þó langt niður ánægju­list­ann, miðað við könnun Maskínu í fyrra. Þar voru þeir tveir þeir karlar sem mest ánægja mæld­ist með, en nú hafa Bjarni og Sigurður Ingi skotið þeim ref fyrir rass.

Mæld ánægja með frammi­stöðu þeirra í starfi er þó áfram á svip­uðu róli, en um 35 pró­sent eru ánægð með störf þeirra, sem er litlu meira en í mæl­ingu Maskínu í fyrra. Ásmundur Einar Daðason félags- og barna­mála­ráð­herra er á svip­uðu róli og þeir Guð­mundur Ingi og Guð­laugur Þór og er ánægjan með hann tölu­vert meiri nú en í könnun Maskínu í fyrra, þegar hún mæld­ist rúm 22 pró­sent.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár