„Útvegsbændur“ virki saman skóg

Þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins segir að nú sé til­valið tæki­færi fyrir tíma­móta­sam­vinnu útgerðar og bænda.

Ásmundur Friðriksson þingmaður Sjálfstæðisflokksins.
Ásmundur Frið­riks­son þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins. Mynd: Bára Huld Beck

Ásmundur Frið­riks­son þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins gerði kaup Síld­ar­vinnsl­unnar á jörð­inni Fann­ar­dal í Norð­firði að umtals­efni undir liðnum störf þings­ins á Alþingi í dag.

Hann benti á að áformað væri að nýta jörð­ina til skóg­ræktar til að binda kolefni móti kolefn­islosun sem starf­semi fyr­ir­tæk­is­ins veldur.

„Stefnan er að hin fyr­ir­hug­aða skóg­rækt í landi Fann­ar­dals verði fram­kvæmd í sam­vinnu við Skógrækt rík­is­ins. Verk­efnið á að full­nægja öllum kröfum lofts­lags­ráðs um vottun og á rækt­unin að vera hæf til skrán­ingar í Lofts­lags­skrá Íslands sam­kvæmt vef fyr­ir­tæk­is­ins. Það er ánægju­legt að fyr­ir­tækið hugi mark­visst að verk­efnum á sviði umhverf­is­mála,“ sagði hann.

Ásmundur bætti því hins vegar við að hér væri tæki­færi útgerð­ar­innar að styðja við bakið á land­bún­aði í land­inu með því að fela bændum að taka að sér skóg­rækt fyrir útgerð­ina í stað þess að útgerðin færi að stunda land­búnað í formi skóg­ræktar.

„Fer ekki vel á því að útgerðin geri það sem hún er best í, að veiða fisk, og bændur sjái um land­bún­að­inn og skóg­rækt­ina sem þeir eru betri í en útgerðin? Samstarf um smá­virkj­anir gæti líka gagn­ast báðum aðilum. Ég sé þarna til­valið tæki­færi fyrir tíma­móta­sam­vinnu útgerðar og bænda og að gam­alt orð fái nýja merk­ingu; útvegs­bændur virkja saman skóg.“

Ætti að lýsa yfir neyðarástandi í „aðgerðaleysi á uppbyggingu flutningskerfis raforku“

Að end­ingu benti þing­mað­ur­inn á að Síld­ar­vinnslan og fleiri fyr­ir­tæki hefðu farið í raf­væð­ingu fiski­mjöls­verk­smiðja og sett upp raf­land­tengi­búnað fyrir fiski­skip sem væru spar­neytn­ari en áður og minnk­uðu olíu­notkun.

„En öll þessi við­leitni til að nýta raf­orku og bera ábyrgð á lofts­lags­málum er stöðvuð af Alþingi sem kemur í veg fyrir end­ur­nýjun flutn­ings­kerfis raf­orku og raf­orku­skortur eykur aðeins á olíu­notkun. Nú er svo komið að allur ávinn­ingur af millj­arða fram­lögum rík­is­ins til að raf­væða bíla­flot­ann hverfur þessa dag­ana út í and­rúms­loftið með olíu­reyknum,“ sagði hann.

Spurði hann jafn­framt hvort ekki væri kom­inn tími til að lýsa yfir neyð­ar­á­standi í aðgerða­leysi á upp­bygg­ingu flutn­ings­kerfis raf­orku og mæta orku­skiptum með meiri fram­leiðslu raf­orku.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár