Risaflóðið 1872

Þegar danska veð­ur­stofan til­kynnti, í byrjun lið­innar viku, að víða í land­inu mætti búast við tals­vert hærri sjáv­ar­stöðu en venju­lega, grun­aði fæsta að þessi til­kynn­ing væri und­an­fari mesta flóðs í Danmörku síðan 1872.

Fyrstu dagar nóv­em­ber­mán­aðar árið 1872 voru vinda­samir í Norður-Evrópu. Vind­ur­inn var norð­vest­an­stæður og þrýsti sjónum um Kattegat með­fram ströndum Dan­merkur, inn í Eystra­salt og alla leið inn í Hels­ingja­botn. Í gögnum dönsku veð­ur­stof­unnar (sem var stofnuð þetta sama ár, 1872) er að finna ítar­legar upp­lýs­ingar um veð­ur­farið þessa daga. Sunnu­dag­inn 10. nóv­em­ber lygndi skyndi­lega en það reynd­ist svika­logn í orðs­ins fyllstu merk­ingu. 11. nóv­em­ber tók að hvessa og dag­inn eftir var komið ofsa­veður á austan sem þrýsti sjónum úr Eystra­salti til baka að ströndum dönsku eyj­anna. Í gögnum skýrslum dönsku veð­ur­stof­unnar segir að því sé lík­ast að tappi hafi verið settur í Litla­belti, Stóra­belti og Eyr­ar­sund því þrýst­ing­ur­inn að norðan (frá Kattegat) var enn til staðar.

13. nóvember

Eins og áður sagði var danska veð­ur­stofan sett á stofn árið 1872. Sú starf­semi sem þar var í upp­hafi á lítið skylt við það starf sem fram fer á slíkum stofn­unum í dag. Starfs­menn voru í byrjun fjórir og þeim var fyrst og fremst ætlað ýmis konar skrán­ing­ar­starf og upp­lýs­inga­söfnun. Veð­ur­spár í þeim skiln­ingi sem tíðkast í dag voru ekki til. Síminn var ekki kom­inn til sög­unnar, ekki útvarpið, engin gervi­tungl á lofti til að senda upp­lýs­ingar, engin spálíkön né annað það sem nútím­anum þykir bæði eðli­legt og sjálf­sagt. Í fáum orðum sagt: nán­ast ekk­ert af því sem veð­ur­fræð­ingar, og aðrir sér­fræð­ingar nútím­ans, byggja sínar spár á var til staðar. Þess vegna vissi eng­inn hvað í vændum var þessa örlaga­ríku daga í nóv­em­ber 1872.

Frásögn piltsins Hans Lærke

Að morgni 13. nóv­em­ber fór Hans Lærke Lærkesen, níu ára gam­all piltur búsettur á bóndabæ í Vester Ulslev á Lálandi gang­andi í skól­ann ásamt jafn­aldra sínum, sem bjó á sama bæ. Veðrið var vont, hvass­viðri og snjó­koma. Fáir nem­endur voru mættir í skól­ann og um hádegi var til­kynnt að ekki yrði kennt lengur og allir ættu að fara heim. Hans Lærke fór þá heim ásamt félaga sínum. Heim­ferðin gekk vel, þrátt fyrir að veðrið væri slæmt. Þegar þeir félagar komu heim sáu þeir, sér til undr­unar, að á bæj­ar­hlað­inu voru tugir naut­gripa frá nokkrum bæjum í nágrenn­inu, ásamt vinnu­mönnum. Þegar strák­arnir spurðu hverju þetta sætti var þeim sagt að flætt hefði að bæj­unum sem stæðu nær strönd­inni. Naut­grip­unum var svo komið í hús og þótt þar væri þröngt voru þeir hólpnir. ,,Það var ekki fyrr en eft­irá að ég átt­aði mig á hversu heppin við vorum að sleppa svona vel” sagði Hans Lærke en ítar­leg frá­sögn hans var árið 1936 skráð í Dansk Fol­kem­inde­sam­ling (deild innan Kon­ung­lega bóka­safns­ins) ásamt frá­sögnum margra ann­arra sem upp­lifðu ham­far­irnar. Fjöl­margar bækur hafa verið skrif­aðar um þessa atburði og margt af því sem þar kemur fram hreint ótrú­legt.

Sjávarborðið hækkaði um hátt á fjórða metra

Þótt auð­vitað hefðu margir veitt því eft­ir­tekt að eitt­hvað var að ger­ast og ,,sjór­inn væri að blása upp” grun­aði engan hvað í vændum var. Talið er að yfir­borð sjávar hafi náð hátt á fjórða metra umfram það sem venju­legt var og rétt er að hafa í huga að á þessum tíma voru engir varn­ar­garðar til að hefta för hans. Afleið­ing­arnar voru ólýs­an­legar. Fólk og fén­aður átti sér engrar und­an­komu auðið, flóðið hreif með sér allt sem á vegi þess varð og frá­sagnir þeirra sem af komust eru næsta ótrú­legar. Á Lálandi, sem ásamt Falstri varð verst úti, gekk sjór­inn um það bil tíu kíló­metra inn á land á 40 kíló­metra kafla milli Nysted og Nakskov. Á þessum eyjum tveim, Lálandi og Falstri fór­ust tæp­lega eitt hund­rað manns, tugir bónda­bæja urðu flóð­inu að bráð og búfén­aður í hund­raða eða þús­unda­tali drukkn­aði.

Allvíða á suð­ur­strönd Dan­merkur er að finna minjar um það sem gerð­ist, á all­mörgum stöðum hafa verið reist minn­is­merki um þá sem týndu lífi og nokkrum stöðum er einnig hægt að sjá, á súlum sem reistar hafa verið, hversu hátt sjáv­ar­yf­ir­borðið var þegar ósköpin dundu yfir.

Mörg hundruð sjómenn fórust

Þótt ekki séu til upp­lýs­ingar um fjölda þeirra sjó­manna sem þarna misstu lífið er ljóst að þeir skiptu hund­ruðum. Ekki eru heldur til nákvæmar tölur um hversu mörg skip og bátar fór­ust í þessum ham­förum 13. nóv­em­ber 1872 en talið er að talan fjögur hund­ruð sé nærri lagi. Það er mik­ill fjöldi en skýr­ingin er sú að óvenju mörg skip og bátar voru um þessar mundir á Eystra­salti vegna mik­illa timb­ur­flutn­inga frá sænskum höfnum við Hels­ingja­botn.

Tugir kílómetra varnargarða

Strax eftir að ham­för­unum linnti hófust umræður um leiðir til að koma í veg fyrir að þessi ósköp gætu end­ur­tekið sig. Ákveðið var að ráð­ast í gerð varn­ar­garða, sam­tals á annað hund­rað kíló­metra langa við strendur Lálands og Falsturs. Það verk hófst árið 1873 og lauk fimm árum síðar. Þessir varn­ar­garðar hafa síðan marg­sinnis verið end­ur­bættir og auk þess margt annað verið gert til þess að koma í veg fyrir að það sem gerð­ist 1872 geti end­ur­tekið sig. Þótt flóðið í síð­ustu viku sé ekki sam­bæri­legt við ham­far­irnar þá full­yrða sér­fræð­ingar að öll sú vinna sem lögð hefur verið í gerð varn­ar­mann­virkja á und­an­förnum ára­tugum hafi ráðið miklu um að tjónið nú varð ekki meira en raun ber vitni. Hvort þau varn­ar­mann­virki sem nú eru til staðar hefðu haldið í stór­flóði sam­bæri­legu og varð árið 1872 er spurn­ing sem ekki er hægt að svara.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár