Varað við notkun á malaríulyfjum

Engar rann­sóknir hafa sýnt fram á öryggi og gagn­semi tveggja malar­íu­lyfja í með­ferð gegn COVID-19. Banda­ríska lyfja­eft­ir­litið varar við notkun þeirra.

Lyfjafræðingur í Tórínó á Ítalíu með pakkningu af Pasquenil, nýju lyfi byggðu á hydroxychloroquine. Pasquenil hefur verið dreift í apótek og geta COVID-smitaðir fengið lyfið heim til sín.
Lyfja­fræð­ingur í Tórínó á Ítalíu með pakkn­ingu af Pasquenil, nýju lyfi byggðu á hydroxychloroquine. Pasquenil hefur verið dreift í apó­tek og geta COVID-smit­aðir fengið lyfið heim til sín. Mynd: EPA

Banda­ríska mat­væla- og lyfja­eft­ir­litið, FDA, varar við því að malar­íu­lyf sem reynd hafa verið í bar­átt­unni gegn COVID-19 geti valdið alvar­legum hjart­slátt­ar­trufl­unum. Þau ætti aðeins að nota fyrir COVID-sjúk­linga í klínískum rann­sóknum og á sjúkra­húsum þar sem hægt er að fylgj­ast gaum­gæfi­lega með hjarta­starf­semi.

Lyfin heita hydroxychloroquine og chloroquine.

Í aðvörun sem FDA birti í dag segir að stofn­unin hafi fengið til­kynn­ingar um alvar­legar hjart­slátt­ar­trufl­anir hjá sjúk­lingum með COVID-19 sem hafa fengið þessi lyf, sér­stak­lega ef þau eru gefin sam­hliða öðrum lyfjum, m.a. sýkla­lyf­inu azithromycin. Í yfir­lýs­ingu stofn­un­ar­innar er enn­fremur bent á að margt fólk hafi fengið lyf­inu ávísað til heima­brúks í þeirri von að kom­ast hjá sýk­ingu af völdum nýju kór­ónu­veirunnar.

Í frétt New York Times um málið segir að engar við­ur­kenndar rann­sóknir hafi sýnt fram á gagn­semi af því að gefa COVID-sjúk­lingum malar­íu­lyfin hydroxychloroquine og chloroquine. Heimilt er að gefa lyfin við malaríu og sjálf­só­næm­is­sjúk­dómum á borð við rauða úlfa.

Er far­ald­ur­inn breidd­ist út í Kína við upp­haf árs voru læknar á kín­verskum sjúkra­húsum ráð­þrota og reyndu ýmis lyf til að bjarga lífi sjúk­linga sinna. Rann­sóknir á árangri af notkun malar­íu­lyfj­anna tveggja voru gerðar bæði þar og í Frakk­landi sem virt­ust sýna fram á gagn­semi þeirra en þær rann­sóknir skorti, að því er fram kemur í grein New York Times, ýmsa þá þætti sem nauð­syn­legir eru í við­ur­kenndum vís­inda­rann­sóknum.

Donald Trump Banda­ríkja­for­seti mælti með notkun þeirra og sagði þau virð­ast gagn­ast, m.a. ef þau væru gefin með sýkla­lyf­inu azithromycin. Það lyf er notað til að vinna á bakt­er­íu­sýk­ingum en ekki veiru­sýk­ingum.

Mörg sjúkra­hús um allan heim hafa notað malar­íu­lyfið hydroxychloroquine í með­ferð við COVID-19. Það hefur m.a. verið notað á Land­spít­al­anum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár