Almannavarnadeild ver milljónum í auglýsingar vegna kórónuveirunnar

Almanna­varna­deild rík­is­lög­reglu­stjóra varði rúm­lega 4,4 millj­ónum, að frá­töldum virð­is­auka­skatti, í að birta aug­lýs­ingar í fjöl­miðlum vegna veiru­far­ald­urs­ins í mars­mán­uði. Nærri fjórð­ungi aug­lýs­inga­fjár­ins var varið í birt­ingar á frétta­vef mbl.is.

Almannavarnadeild hefur með auglýsingum sínum vísað fólki inn á vefsíðuna covid.is, þar sem finna má upplýsingar og leiðbeiningar um veirufaraldurinn.
Almanna­varna­deild hefur með aug­lýs­ingum sínum vísað fólki inn á vef­síð­una covid.is, þar sem finna má upp­lýs­ingar og leið­bein­ingar um veiru­far­ald­ur­inn. Mynd: Skjáskot af vefnum covid.is

Almanna­varna­deild rík­is­lög­reglu­stjóra varði rúm­lega 4,4 millj­ónum, að frá­töldum virð­is­auka­skatti, í að birta aug­lýs­ingar og fræðslu­efni vegna kór­ónu­veiru­far­ald­ur­ins í fjöl­miðlum lands­ins og víðar í mars.

Mest fór í aug­lýs­ingar á vef­miðlum, en tæpur fjórð­ungur heild­ar­fjár­hæð­ar­innar hefur farið í birt­ingu aug­lýs­inga á mest lesna frétta­vef lands­ins, mbl.is. Þar keypti almanna­varna­deild aug­lýs­ingar fyrir rúma milljón króna frá því um miðjan mars.

Þetta kemur fram í svari almanna­varna­deildar rík­is­lög­reglu­stjóra við fyr­ir­spurn Kjarnans, sem barst í gær, þriðju­dag­inn 21. apríl. Spurt var hversu miklu fé hefði verið varið í birt­ingu aug­lýs­ing­anna og hve miklu hefði verið varið á hverjum stað.

Svarið sem barst tekur til aug­lýs­inga sem birtar voru á tíma­bil­inu 13.-31. mars.

Almanna­varna­deild rík­is­lög­reglu­stjóra hefur verið að birta þessar aug­lýs­ingar til að minna á upp­lýs­inga­gátt sína á net­inu vegna kór­ónu­veiru­far­ald­urs­ins. Vísa vef­borða­aug­lýs­ing­arnar almanna­varna þannig inn á á vef­síð­una covid.is, sem almanna­varna­deild heldur úti í sam­starfi við land­lækn­is­emb­ættið.

Flennistórt auglýsingapláss á mbl.is leigt í þrjá daga

Mest var aug­lýst á vef­miðlum, eða fyrir um 40 pró­sent af heild­ar­upp­hæð­inni. Langmest hefur verið greitt fyrir aug­lýs­ingar á mbl.is sem áður segir, alls 1.042.000 kr., að frá­dregnum virð­is­auka­skatti. 

Á næst mest lesna frétta­vef lands­ins, Vísi, var 300 þús­und krónum verið varið í birt­ingar af hálfu almanna­varna­deildar, en minna á öðrum net­miðlum.

Sér­stak­lega er tekið fram í svari almanna­varna­deildar að aðal­skýr­ingin á þeirri upp­hæð sem varið hefur verið í kaup aug­lýs­inga á mbl.is sé sú að dag­ana 13., 14. og 17. mars voru keyptar „mjög áber­andi“ bak­grunns­aug­lýs­ingar á mbl.is. Samkvæmt svar­inu fékk sú aug­lýs­ing vel yfir þrjár millj­ónir birt­inga og skil­aði 36 þús­und smellum inn á covid.is, sem almanna­varna­deild segir „mjög mikið og hátt hlut­fall.“

Almanna­varna­deild keypti opnur og heil­síðu­aug­lýs­ingar hjá Frétta­blað­inu fyrir 800 þús­und kr. að frá­dregnum vsk. og aug­lýsti einu sinni á heil­síðu í Morg­un­blað­inu, sem þá var í frídreif­ingu, fyrir 230 þús­und kr. að frá­dregnum vsk. Einnig var keypt heil­síðu­aug­lýs­ing í Mannlífi fyrir 125 þús­und kr., en kostn­að­ur­inn við aug­lýs­ingar í dag­blöðum nam 26 pró­sentum af heild­ar­upp­hæð­inni.

Einnig hefur nokkuð verið aug­lýst í útvarpi, eða fyrir 23 pró­sent af heild­ar­upp­hæð­inni. Mestu hefur verið varið í aug­lýs­ingar á rík­is­út­varps­stöð­inni Rás 2, eða 400 þús­und krónum að frá­dregnum vsk. Á Bylgj­unni hefur verið aug­lýst fyrir 355 þús­und kr., á FM957 fyrir 150 þús­und kr. og á K100 fyrir 125 þús­und kr. Á öllum stöðum voru keyptar 12-15 sek­úndna aug­lýs­ingar sem áttu að heyr­ast alla­vega 4-5 sinnum dag­lega.

Leiknar sjón­varps­aug­lýs­ingar frá almanna­varna­deild og land­lækn­is­emb­ætt­inu hafa verið áber­andi á RÚV að und­an­förnu. Samkvæmt svari almanna­varna­deildar hefur Rík­is­út­varpið „tekið það á sig“ að birta þær end­ur­gjalds­laust.

Almanna­varna­deild hefur ekki ein­ungis aug­lýst í fjöl­miðlum, en fram kemur í svar­inu að ríf­lega 220 þús­und kr. hafi verið varið í aug­lýs­ingar á Facebook. Einnig hafa verið keyptar aug­lýs­ingar fyrir 260 þús­und á strætó­skýlum.

Svona skiptast greiðslur vegna birtinga niður:

Árvakur (31,5 pró­sent af heild)

mbl.is: 1.042.000 kr.

Morg­un­blaðið 230.000 kr.

K100: 125.000 kr.

Torg (20 pró­sent af heild)

Frétta­blaðið: 800.000 kr.

DV.is: 100.000 kr.


Sýn (18 pró­sent af heild)

Bylgjan: 355.000 kr.

Vísir: 300.000 kr.

FM957: 150.000 kr.

Rík­is­út­varpið (9 pró­sent af heild)

Rás 2: 400.000 kr.

Aðrir fjölmiðlar (10 prósent af heild)

Stundin.is: 100.000 kr.

Mannlíf: 125.000 kr.

Grapevine.is: 115.000 kr.

Skyn (sem birtir aug­lýs­ingar á net­miðlum, t.d. Kjarn­anum): 75.000 kr.

Aðrir net­miðlar (t.d. fót­bolti.net og eirik­urjons­son.is) 35.000 kr.

Aðrir en fjölmiðlar (11 prósent af heild)

Facebook: 220.440 kr.

Strætó­skýli: 260.000 kr.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kórónuveiran

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár