Flóttamannaspurningin: Gunnar Bragi lofaði engri ákveðinni tölu

Utan­rík­is­ráð­herra fund­aði með öðrum utan­rík­is­ráð­herrum Norð­ur­landa og Eystra­salts­ríkja á mið­viku­dag­inn og fimmtu­dag­inn. Fyrir Íslands hönd und­ir­strik­aði hann tví­þætta nálgun sem fælist í stuðn­ingi við fólk á stríðs­hrjáðum svæðum sem og mót­töku fleira flótta­fólks.

Vill ekki taka þátt í „pissukeppni“
Vill ekki taka þátt í „pissu­keppni“ Gunnar Bragi Sveins­son utan­rík­is­ráð­herra hefur sagt í við­tali að hann vilji ekki taka þátt í pissu­keppni í umræð­unni um flótta­manna­spurn­ing­una og nefni því engar til­teknar tölur þegar hann ræðir um hversu mörgum flótta­mönnum Íslend­ingar muni taka við á næst­unni.

„Gunnar Bragi [Sveins­son] sagði að íslensk stjórn­völd og íslenska þjóðin hefðu brugð­ist hratt við og mikil und­ir­bún­ings­vinna væri nú í gangi víðs vegar um landið,“ segir í svari frá upp­lýs­inga­full­trúa utan­rík­is­ráðu­neyt­is­ins, Urði Gunn­ars­dóttur, þegar hún er spurð hvað Ísland hefði lagt til mál­anna sem sitt inn­legg í umræðum og aðgerðum til bregð­ast við komu flótta­manna til Evrópu á fundi sem Gunnar Bragi Sveins­son utan­rík­is­ráð­herra sat með öðrum utan­rík­is­ráð­herrum Norð­ur­land­anna og Eystra­salts­ríkj­anna á mið­viku­dag­inn og fimmtu­dag­inn í síð­ustu viku. 

Greint var frá fund­inum á vef­síðu utan­rík­is­ráðu­neyt­is­ins og var fleira rætt á honum en flótta­manna­spurn­ingin. „Flótta­manna­vand­inn, lofts­lags­mál, sam­skipti við Rússland og þróun mála í Úkraínu voru meðal þess sem rætt var á fundi utan­rík­is­ráð­herra Norð­ur­landa og Eystra­salts­ríkj­anna sem hald­inn var í Kaup­manna­höfn í gær og í dag.“

Í svar­inu frá utan­rík­is­ráðu­neyt­inu kemur fram að Gunnar Bragi hafi á fund­inum einnig und­ir­strikað mik­il­vægi þess að ríki Evrópu myndu leggja sitt af mörkum til að styrkja það starf sem unnið er til að hjálpa flótta­mönn­unum í þeim löndum sem þeir koma frá. „Fyrir utan mót­töku flótta­manna til Íslands og ann­arra ríkja væri afar brýnt að Evr­ópu­ríki styrktu þró­un­ar­að­stoð og mann­úð­ar­starf á þeim stríðs­hrjáðu svæðum sem flótta­fólk streymi nú frá.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

1
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár