Öllum minkabúum lokað í mars

Yfir milljón minkar hafa verið drepnir í Hollandi í sumar og hræjum þeirra fargað vegna kór­ónu­veirusmita. Ákveðið hefur verið að flýta lokun allra loð­dýra­búa í land­inu.

Loðdýrabændur í Hollandi fá bætur vegna lokunar búanna.
Loð­dýra­bændur í Hollandi fá bætur vegna lok­unar búanna. Mynd: EPA

Yfir 100 minka­búum í Hollandi verður lokað er minka­rækt verður bönnuð í mars á næsta ári. Til stóð að öllum loð­dýra­búum í land­inu yrði lokað árið 2024 en í kjöl­far þess að kór­ónu­veiru­sýk­ing kom upp meðal dýra og manna á búunum ákváðu stjórn­völd að flýta lok­un­inni.

Árlega eru 2,5 millj­ónir minka aldir upp á búum í Hollandi og er landið fjórði stærsti fram­leið­andi minka­skinna í heim­inum á eftir Danmörku, Kína og Póllandi.

[adspot]

Í vor kom í ljós að minkar gætu sýkst af kór­ónu­veirunni sem veldur COVID-19 og þegar í apríl var ljóst að starfs­menn á einu búanna höfðu smit­ast af dýr­unum. Í sumar hafði veiran breiðst út til fleiri búa eða um þriðj­ungs allra minka­búa í Hollandi. Fella þurfti öll hin sýktu dýr og grípa til mjög harðra sótt­varna­að­gerða. Farga þurfti svo hræjum dýr­anna en bændum voru greiddar bætur fyrir tapið á skinn­unum.

[links]Í júní sam­þykkti hol­lenska þingið að öllum minka­búum í land­inu yrði lokað sem allra fyrst og í lok ágúst sam­þykkti rík­is­stjórnin að öllum búunum skyldi lokað fyrir mars á næsta ári. Einnig var sam­þykkt að greiða loð­dýra­bændum sam­tals 150 millj­ónir evra í bætur eða um 1-1,5 millj­ónir evra til hvers þeirra að með­al­tali sem er um 160-250 millj­ónir króna.

Dýra­vernd­ar­flokk­ur­inn á fjögur sæti af 150 á hol­lenska þing­inu. Árið 2013 leiddi hann bar­áttu fyrir því að loð­dýra­rækt yrði hætt en þá var ákveðið að eig­endur búanna hefðu frest til árs­ins 2024 til að hætta rekstri.

Loð­dýra­bændur segja að miðað við nútíma reglu­gerðir séu minkar aldir við mann­úð­legar aðstæður. Þessu hafna dýra­vernd­un­ar­sinnar og segja ómögu­legt að halda slíku fram þegar dýrin eru alin í búrum. Kannanir hafa sýnt að mik­ill meiri­hluti Hol­lend­inga er mót­fall­inn loð­dýra­rækt.

Í sumar hefur þurft að drepa 1,1 milljón minka á 26 hol­lenskum minka­búum vegna kór­ónu­veiru­sýk­inga. Smit hafa einnig komið upp í minka­búum í Danmörku og á Spáni og farga þurfti yfir 90 þús­und dýrum á einu búi á Spáni eftir að níu af hverjum tíu dýrum reynd­ust sýkt af kór­ónu­veirunni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár