Nýju veiruafbrigðin: Bráðsmitandi en ekki banvænni

Tvö ný afbrigði af kór­ónu­veirunni eru nú undir smá­sjá vís­inda­manna. Þau eru talin meira smit­andi en önnur og hafa því breiðst hratt út síð­ustu vik­urnar.

Um áramótin kom fólk saman í Jóhannesarborg til að minnast þeirra sem látist hafa úr COVID-19.
Um ára­mótin kom fólk saman í Jóhann­es­ar­borg til að minn­ast þeirra sem lát­ist hafa úr COVID-19. Mynd: EPA

Nýtt afbrigði kór­ónu­veirunnar SARS-CoV-2, sem fyrst greind­ist í Bret­landi, hefur nú greinst í að minnsta kosti 33 löndum, þar á meðal á Íslandi. Yfir fjöru­tíu lönd hafa hert ferða­tak­mark­anir sínar vegna afbrigð­is­ins og sett hömlur á ferða­lög til og frá Bret­landi sem og að krefja fólk sem þaðan kemur um að fara í sótt­kví og jafn­vel ein­angrun.

Afbrigðið, sem kall­ast meðal vís­inda­manna B.1.1.7., er meira smit­andi en önnur þó að enn sé ekki full­víst hversu mikið meira. Ekki er þó talið að þetta afbrigði kór­ónu­veirunnar valdi meiri veik­indum en önnur en þar sem það smit­ast hraðar manna á milli veikj­ast fleiri og þar með veikj­ast fleiri alvar­lega. Álag á sjúkra­hús, m.a. í Bret­landi og Banda­ríkj­unum, nálg­ast þol­mörk af þessum sökum.

[adspot]

Annað nýlegt afbrigði veirunnar virð­ist hafa sam­bæri­lega eig­in­leika. Það greind­ist fyrst í Suður-Afríku og er þar af leið­andi kennt við landið þó að vís­inda­menn hafi gefið því heitið 501.V2. Um 90 pró­sent þeirra kór­ónu­veira sem rað­greindar hafa verið í Suður-Afríku síðan um miðjan nóv­em­ber eru af þessum til­tekna stofni.

[links]Danir ákváðu í gær að setja ferða­bann á Suður-Afríku af þessum sökum. Í Simbabve, nágranna­ríki Suður-Afríku hafa aðgerðir verið hertar, útgöngu­bann tekið gildi og þess kraf­ist að þeir sem komi til lands­ins fram­vísi nei­kvæðu COVID-prófi.

Það að veiran sem veldur COVID-19 breyt­ist með tím­anum kemur vís­inda­mönnum alls ekki á óvart. Veirur stökk­breyt­ast. Það er þeirra „eðli“ – ef svo má að orði kom­ast. Hversu mikið er hins vegar stóri óvissu­þátt­ur­inn sem og hvaða eig­in­leikar fylgja breyt­ing­unum.

Í flestum til­vikum hafa ný afbrigði veirunnar ekki valdið miklum áhyggjum meðal vís­inda­manna. En þessi tvö sem á undan er getið og komið hafa upp á síð­ustu vikum gera það þó ein­fald­lega vegna þess að þó að ekki hafi enn unn­ist tími til að rann­saka afbrigðin í þaula virð­ast þau vera meira smit­andi en önnur sem við höfum hingað til verið að fást við.

Arnar Pálsson, erfða­fræð­ingur og pró­fessor í líf­upp­lýs­inga­tækni við Háskóla Íslands, segir í nýju svari á Vís­inda­vefnum lík­leg­ast að SARS-CoV-2 muni þró­ast í átt að „væg­ari gerð sem smit­ast greiðar en núver­andi afbrigði. Vís­bend­ingar eru um að breska afbrigðið af veirunni smit­ist einmitt greiðar, og mögu­lega einnig annað afbrigði frá Suður-Afríku“.

Breiðist mun hraðar út

Í fyrstu töldu vís­inda­menn t.d. að breska afbrigðið breidd­ist 70 pró­sent hraðar út en önnur. Nú er talið að það sé rúm­lega helm­ingi meira smit­andi. Eftir því sem rann­sóknum vindur fram er allt eins lík­legt að smit­stuð­ull­inn eigi eftir að lækka enn frekar. Tíminn er sú breyta jöfn­unnar sem mun leiða það í ljós.

Breska afbrigðið er orðið uppi­staðan í flestum smitum sem grein­ast á Bret­landseyjum. Það hefur einnig breiðst hratt út í Danmörku og er ein helsta ástæðan fyrir því að Danir hertu veru­lega á sínum aðgerðum í byrjun vik­unnar. Hið suð­ur­a­fríska hefur fyrst og fremst greinst í Suður-Afríku en nú einnig í Bret­landi, Noregi, Sviss, Ástralíu, Frakk­landi og víðar.

Veiran SARS-CoV-2, sem fyrst greind­ist í Kína fyrir rúm­lega ári, hefur ferð­ast um heim­inn í lík­ömum fólks. Og í hvert skipti sem hún kemur sér fyrir í nýjum hýsli og fer að fjölga sér breyt­ist hún örlítið. Þannig eru nú til þús­undir afbrigða af henni en aðeins fá þeirra hafa þó vakið sér­stakan áhuga og jafn­vel áhyggjur vís­inda­manna.

Talið er ólík­legt að breska afbrigðið setji bólu­setn­ingar sem nú eru að hefj­ast í eitt­hvað upp­nám. Bóluefni sem þegar eru komin á markað og önnur sem eru í þróun eiga að geta komið í veg fyrir sýk­ingu af völdum þess líkt og ann­arra. Ekki er hins vegar enn hægt að segja með vissu að bólu­efnin veiti góða vörn gegn sýk­ingu af völdum hins suð­ur­a­fríska afbrigðis. Veirur af þeim stofni hafa fleiri gadda­prótein en aðrar en það eru þau sem veiran notar til að kom­ast inn í frumur manns­lík­am­ans. Sér­fræð­inga grunar að vegna þess­ara breyttu eig­in­leika eigi veiran auð­veld­ara með að kom­ast hjá ónæm­is­vörnum lík­am­ans. Bólu­efnin verða hins vegar áfram í stöðugri þróun og því ætti að vera hægt að bregð­ast við stökk­breyt­ingum sem þessum og ná fram góðri virkni efn­anna.

Vegna þess­ara nýju og að því er talið er meiri smit­andi afbrigða kór­ónu­veirunnar hefur þrýst­ingur á að hraða bólu­setn­ingum, ekki aðeins í hinum vest­ræna heimi, heldur einnig í fátæk­ari ríkjum, auk­ist enn frekar.

Bólusetningum verði hraðað

En þangað til að það ger­ist hafa nokkur ríki nú brugð­ist við með því að herða aftur aðgerðir. Í Bret­landi er nú í gildi útgöngu­bann, í þriðja sinn frá því að far­ald­ur­inn hófst. Fleiri liggja nú á sjúkra­húsi í land­inu vegna COVID-19 en á toppi fyrstu bylgj­unnar. Skólar eru lok­aðir, einnig barna­skólar. Það helg­ast m.a. af því hversu breska afbrigðið smit­ast hratt.

Kúrfa til­fella á Írlandi og Íslandi hefur hingað til litið mjög svipað út. En nú er upp­sveifla á Írlandi vegna hins breska afbriðis og fleiri liggja á sjúkra­húsi þar í landi nú en í fyrstu bylgj­unni.

Á upp­lýs­inga­fundi almanna­varna í dag sagði Þórólfur Guðnason sótt­varna­læknir að breska afbrigðið hefði greinst á hjá 22 hér á landi, 19 á landa­mærum og þrír inn­an­lands. Öll inn­an­lands­smitin tengj­ast fólki sem hafði greinst á landa­mær­unum.

Nýtt svar á Vís­inda­vefnum um mögu­lega þróun nýju kór­ónu­veirunnar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár