Tvær lykilástæður til að gleðjast yfir jákvæðum niðurstöðum Moderna

Jákvæð tíð­indi um þróun bólu­efnis frá Moderna eru jafn­vel enn gleði­legri en þau sem bár­ust af bólu­efni Pfizer í síð­ustu viku. Þau sýna nefni­lega að aðferðin sem bæði fyr­ir­tækin nota virð­ist virka og einnig virð­ist geymsla og dreif­ing vera ein­fald­ari.

Rétt eins og bóluefni Pfizer og BioNTech notast Moderna við genaupplýsingar (mRNA) fyrir svokölluð gaddprótein sem er að finna á yfirborði kórónuveirunnar, SARS-CoV-2.
Rétt eins og bólu­efni Pfizer og BioNTech not­ast Moderna við gena­upp­lýs­ingar (mRNA) fyrir svokölluð gadd­prótein sem er að finna á yfir­borði kór­ónu­veirunnar, SARS-CoV-2. Mynd: EPA

Rétt eins og í síð­ustu viku gleðst heims­byggðin í dag yfir góðum tíð­indum af bólu­efni gegn COVID-19. Fyr­ir­tækið Moderna, sem er eitt þeirra sem fékk þró­un­arfé úr „Operation Warp Speed“-verk­efn­inu sem Banda­ríkja­stjórn setti á lagg­irnar til þess að flýta þró­un­inni, gaf út í dag að bólu­efni þess hefði sýnt fram á 94,5 pró­sent virkni gegn COVID-19.

Tíðindin frá Moderna eru jafn­vel enn gleði­legri en þau sem bár­ust af bólu­efn­is­þróun Pfizer og BioNTech í síð­ustu viku, sem einnig sýndi fram á yfir 90 pró­sent virkni. Fyrir því eru tvær lyk­ilá­stæður.

1. Gefur til kynna að aðferðin virki

Rétt eins og bólu­efni Pfizer og BioNTech not­ast Moderna við gena­upp­lýs­ingar (mRNA) fyrir svokölluð gadd­prótein sem er að finna á yfir­borði kór­ónu­veirunnar, SARS-CoV-2. Þegar bólu­efn­inu er sprautað í ein­stak­linga byrja frumur lík­am­ans þannig að fram­leiða sín eigin gadd­prótein og þjálfa sig í að takast á við veiruna.

Ónæm­is­kerfið lítur á gadd­próteinin sem fram­andi fyr­ir­bæri og tekur til varna með því að fram­leiða mótefni og T-frumur, sem gera kór­ónu­veirunni erf­ið­ara um vik við að valda bólu­settum skaða.

Í nið­ur­stöðum Moderna kemur fram að 90 ein­stak­lingar sem fengu lyf­leysu hafi nú smit­ast af COVID-19, en ein­ungis 5 sem voru spraut­aðir með bólu­efn­inu, af alls 30 þátt­tak­endum í til­raunum fyr­ir­tæk­is­ins. Ellefu af þessum 95 veikt­ust alvar­lega og allir voru þeir í lyf­leysu­hópnum.

Að tvö fyr­ir­tæki sem eru að beita þess­ari sömu aðferð, sem hefur aldrei áður verið beitt við þróun bólu­efna fyrir mann­eskjur, nái bæði afbragðs­góðum árangri í umfangs­miklum til­raunum á sam­an­burð­ar­hópum, er afar jákvætt.

2. Minna vesen að geyma og dreifa

Einnig er ástæða til að gleðj­ast yfir því, varð­andi bólu­efni Moderna, að það þarf ekki að geyma við jafn ofboðs­legan kulda og bólu­efni Pfizer og BioNTech.

Hið síð­ar­nefnda er sagt þurfa að geym­ast við allt að -80°C, sem þýðir að það þyrfti að flytja í sér­út­búnum kæli­tækjum á milli staða, á meðan að bólu­efni Moderna er sagt geym­ast vel við hærra hita­stig og síðan í allt að mánuð við 2-4 gráður, sem er um það bil sama hita­stig og í ísskápnum heima hjá okkur flestum.

Dýrt og Bandaríkin njóta forgangs

Þó er vakin athygli á því, í umfjöllun Guardian um tíð­indin í dag, að búist sé við að verð­mið­inn á hverjum skammti af Moderna-bólu­efn­inu verði hærri en á öðrum bólu­efnum, eða jafn­vel 37 doll­arar hver skammtur. Á meðan stefnir Johnson & Johnson á að bólu­efni þeirra kosti 10 doll­ara skammt­ur­inn og Pfizer er að horfa á 20 doll­ara sem við­mið­un­ar­verð.

[adspot]

Bólu­efnið gæti því orðið of dýrt til þess að vera fýsi­legur eða raun­hæfur kostur fyrir fátæk­ari ríki, jafn­vel eftir að bólu­efn­is­sjóður Sam­ein­uðu þjóð­anna (UN Covax) hefur komið að borð­inu með nið­ur­greiðslu. Moderna hefur reyndar gefið það út að það muni ekki skrá einka­leyfi á bólu­efnið fyrr en far­ald­ur­inn er yfir­stað­inn, sem þýðir að það gæti verið hægt að fram­leiða það á ódýr­ari hátt.

Einnig er vert að hafa í huga að þar sem Moderna fékk tæp­lega tvo og hálfan millj­arð banda­ríkja­dala frá banda­rískum stjórn­völdum í þeim til­gangi að þróa þetta bólu­efni, verður áherslan á dreif­ingu í Banda­ríkj­unum til að byrja með og búist er við 20 milljón skammtar gætu verið til­búnir fyrir lok árs­ins 2020. Afgang­ur­inn af heim­inum mun þurfa að bíða að sinni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár