Samherji segir James Hatuikulipi hafa sent Jóni Óttari póst um leynireikninga, ekki öfugt

Að mati Samherja hafa tölvu­póstar milli starfs­manns fyr­ir­tæk­is­ins og fyrr­ver­andi áhrifa­manns í Namibíu verið slitnir úr sam­hengi. Þá sé höf­undum þeirra víxlað. Starfs­maður Samherja hafi fengið póst sem hann er sagður hafa sent.

Jón Óttar Ólafsson og James Hatuikulipi.
Jón Óttar Ólafsson og James Hatuikulipi. Mynd: Samsett

Samherji segir að höf­undum tölvu­pósta sem sendir voru milli starfs­manns fyr­ir­tæk­is­ins og fyrr­ver­andi stjórn­ar­for­manns rík­is­út­gerðar Namibíu hafi verið víxlað í grein­ar­gerð rík­is­sak­sókn­ara í kyrr­setn­ing­ar­málið sem rekið er þar í landi.

Í tölvu­póst­unum er rætt um að namibísk yfir­völd hafi ekki burði til að hafa uppi á leyni­reikn­ingum í Dúbaí sem yfir­völd í Namibíu gruna að hafi verið not­aðir til að með­taka mútu­greiðslur frá Samherja í skiptum fyrir hrossa­makríl­skvóta í Namibíu.

Kjarninn greindi frá því á föstu­dag að í grein­ar­gerð rík­is­sak­sókn­ara Namibíu í kyrr­setn­ing­ar­máli tengdu Samherja kæmi fram að Jón Óttar Ólafs­son, ráð­gjafi og fyrr­ver­andi rann­sókn­ar­lög­reglu­maður sem starfað hefur fyrir Sam­herja árum sam­an, hefði átt í tölvu­póst­sam­skiptum við James Hatuikulipi, einn þeirra sex manna sem sitja í fang­elsi í Namibíu vegna gruns um að þiggja mútur frá Sam­herja, í maí árið 2019.

[adspot]Til­gangur sam­skipt­anna var að lýsa yfir áhyggjum um að yfir­völd myndu upp­götva leyni­greiðslur sem Sam­herji greiddi inn á banka­reikn­ing félags­ins Tunda­vala, skráð í eigu Hatuikulipi, í Dúbaí. Nokkur hund­ruð millj­ónir króna runnu inn á reikn­inga þess frá Sam­herja á árunum 2014 til 2019.

Í sam­skipt­unum, líkt og þeim er lýst í grein­ar­gerð­inni, reyndi Jón Óttar að slá á áhyggjur um að yfir­völd í Namibíu gætu haft upp á þeim greiðslum sem farið höfðu inn á leyni­reikn­inga í Dúbaí.

Í fyrri póst­inum sem hann er sagður hafa sent, 28. maí í fyrra, sagði: „Er ein­hver hætta á því að upp­hæð­irnar sem greiddar voru „úti” upp­götv­ist? Þeir vilja ekki búa til neina papp­íra sem fjalla um fisk­flutn­inga en að síðan komi slóð pen­ing­anna í ljós.“

Í síð­ari pósti, sem er sagður sendur af Jóni Óttari og mót­tek­inn af James Hatuikulipi sagði: „Við höf­um lok­að þeim ­reikn­ing­um. Auk þess hafa þeir ekki ­burð­i til þess að fara á eft­ir flókn­um aflands­við­skipt­u­m.“

Tölvupóstarnir slitnir úr samhengi

Í til­kynn­ingu sem Samherji birti á vef sínum 11. des­em­ber í kjöl­far frétta­flutn­ings RÚV af mál­inu sagði : „Í lok frétt­ar­innar voru sýnd tölvu­póst­sam­skipti milli ráð­gjafa Samherja og stjórn­ar­for­manns namibíska útgerð­ar­fyr­ir­tæk­is­ins Fishcor. Rangt var farið með efni tölvu­póst­anna, þeir slitnir úr sam­hengi og þá var höf­undum tölvu­póst­anna víxlað í frétt­inni. Þannig var ráð­gjafi Samherja sagður höf­undur tölvu­pósts sem hann sendi ekki."

[links]Kjarninn sendi fyr­ir­spurn á Samherja vegna þessa og óskaði eftir upp­lýs­ingum um hvort fyr­ir­tækið héldi því fram að rangt sé farið með þennan hluta í grein­ar­gerð rík­is­sak­sókn­ara Namibínu, og ef svo væri hvort Samherji hafi ein­hver gögn undir höndum sem sýni fram á þetta.

Björgólfur Jóhanns­son, annar for­stjóri Samherja, segir í svari við fyr­ir­spurn Kjarnans að það sé rétt ályktað að rang­lega sé vísað til tölvu­póst­anna milli Jóns Óttars og James Hatuikulipi í grein­ar­gerð­inni. „Tölvu­póstur, sem sagður var frá ráð­gjafa Samherja, var í reynd sendur af þáver­andi stjórn­ar­for­manni Fishcor og því var höf­undum tölvu­póst­anna víxlað. Þetta sést þegar frum­gagnið er skoðað en fjöl­miðlar hafa ein­göngu vísað til áður­nefndrar grein­ar­gerðar.“

Samherji sendi ekki gögn til að sýna fram á að þetta. Þá var ekki til­greint í svari Björg­ólfs hvor tölvu­póst­anna sem fjallað er um hér að ofan átti að vera sendur af James Hatuikulipi en ekki Jóni Óttari.

Frum­gagnið sem vísað er til í grein­ar­gerð­inni er ekki opn­an­legt á vefnum eJUSTICE Namibia, þar sem grein­ar­gerð­ina og flest fylgi­gögn er að finna, þar sem skráin er skemmd.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Samherjaskjölin

AfhjúpunSamherjaskjölin

Lög­reglan á nýrri slóð: Fundu skila­boð Þor­steins

Tækni­mönnum á vegum hér­aðs­sak­sókn­ara tókst á dög­unum að end­ur­heimta á annað þús­und smá­skila­boð sem fóru á milli Þor­steins Más Bald­vins­sonar og Jóhann­esar Stef­áns­sonar, á meðan sá síð­ar­nefndi var við störf í Namibíu. Skila­boðin draga upp allt aðra mynd en for­stjór­inn og aðrir tals­menn fyr­ir­tæk­is­ins hafa reynt að mála síð­ustu fimm ár.

16 mín. lestur

RannsóknirSamherjaskjölin

Lögmaður namibískra sjó­manna við Samherja: „Borgið það sem þið skuldið þeim“

Lögmaður skip­verj­anna tutt­ugu og þriggja sem dæmdar voru bætur vegna ólög­legrar upp­sagnar Sam­herj­a­fé­lags í Namibíu, kallar eftir því að Íslend­ingar axli ábyrgð á fram­komu sinni í Namibíu. Það stand­ist enga skoðun að Samherji hafi ekki vitað af mál­inu. For­stjóri Samherja lof­aði því að fyr­ir­tækið myndi sjá til þess að staðið yrði við allar skuld­bind­ingar og sér­stak­lega hugað að sjó­mönnum sem starfað hefðu fyrir félagið.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár